Foreldrablaðið - 01.03.1951, Síða 20
MUNAÐARLAUS BÖRN
Barnahljómsveit í svissnes\um s\óla.
MUNAÐARLAUS
BÖRN OG ÖR-
KUMLA eru einhver
hryggilegasta afleiðing
styrjalda. Og síðari
heimsstyrjöldin var
sízt nokkur undan-
tekning frá því. Þús-
undir barna í löndun-
um, þar sem styrjöld-
in var háð, misstu for-
eldra sína, flæktust frá
öllum kunnugum í
hringiðu flóttafólksins
eða slösuðust svo, að
þau verða örkumla
ævilangt. Fyrir þau, sem létu lífið, verður
að sjálfsögðu ekkert gert, en hin, sem
munaðarlaus og ósjálfbjarga lifa eftir,
þarfnast mikillar umönnunar og hjálpar,
og síðan stríðinu lauk hafa risið upp víða
um lönd dvalarheimili fyrir þau, auk
þess sem fylltir voru skólar og dvalar-
heimili, er til voru áður.
Menningarstofnun sameinuðu þjóðanna,
UNESCO, gekkst í haust fyrir leiðangri
til ýmissa slíkra heimila á Frakklandi,
Sviss og Italíu með það fyrir augum að
taka niður útvarpsefni — viðtöl við börn-
in og annað frá lífi þeirra, vist og starfi.
Hefur það nú verið flutt í útvarpi víða
um lönd.
Myndir voru tekn-
ar í leiðangri þessum,
og birtast tvær þeirra
hér. Hin efri er frá
skóla í Sviss og sýnir
barnahljómsveit, er
lék fyrir útvarpsleið-
angurinn, en þar eru
sagðar notaðar óal-
gengar aðferðir til að
þroska hljómlistar-
hæfileika barnanna.
Hin neðri er af barna-
kór í skóla 1 Florence
á Italíu.
Barnahór í ítöls\um s\óla.
20 FORELDRABLAÐIÐ