Landneminn - 01.06.1948, Page 4
til að röksanna staðhæfingar ykkar um þræl-
dómsást okkar sósíalista. En þrjóti rökin, þá
er bent í austur. Að vísu veit ég, að þið trúið
ekki sjálfir orðum ykkar, þegar þið romsið upp
úr ykkur sögunum um vald „mannanna í
Kreml“ yfir skoðunum okkar, hugsunum og
hræringum. Þið vitið fullvel, að við ungir sósíal-
istar, kynslóð stríðsáranna, höfum þvert á móti
orðið fyrir meiri áhrifum úr vesturátt en nokk-
ur önnur kynslóð íslenzk. Hins vegar álítum
við skylt og lærdómsríkt að fylgjast með fram-
kvæmd sósíalismans í Sovétríkjunum og þeim
öðrum ríkjum Evrópu, þar sem hún er hafin.
Við eigum hins vegar erfitt með að skilja fjand-
skap ykkar í garð þessara ríkja. Óvini ykkar er
ekki lengur að finna í herbúðum hins alþjóð-
lega auðvalds, heldur í þeim „bræðraflokkum“
ykkar, sem reynzt hafa trúir hugsjón sinni og
stefnu. Málgagn ykkar, sem fyrir aðeins nokkr-
um árum barðist ötullega gegn ásælni auðvalds-
ins bæði hér á landi og annars staðar, beinir
ekki lengur örvum sínum í þá átt. „Auðvalds-
ríki" er óþekkt orð í opinberum málgögnum
ykkar í dag, það hefur orðið nafnabreyting: auð-
valdsríki verður að lýðræðisríki. Hefur ])á góð-
um tnönnum loks tekizt að koma vitinu fyrir
kapítalistana, hafa þeir afsalað sér völdunum
yfir framleiðslutækjunum, fjármagninu og af-
komu einstaklingsíns, eru þeir allt í einu liljóða-
laust horfnir úr sögunni, eða börðuzt þið bara
við vindmyllur hér á árunum, kæru vinir?
Onéi. En livað þá? Þeirri spurningu ættuð þið,
vinir góðir, að svara sjálfir.
Það er ef til vill ósanngjarnt að bendla ykk-
ur við ávirðingar foringja ykkar, þið hafið
margir hverjir sýnt, þegar á reið, að tryggð ykk-
ar við málstað íslenzkrar þjóðar var einlægari
og móður ykkar meiri en þeirra. En samt. . . .
Þið álítið ykkur marxista, eða svo hefur mér
skilizt. Að ykkar áliti er hið kapítalíska (ég vona,
að vkkur mislíki ekki orðið) þjóðfélag því stétta-
þjóðfélag, þar sem háð er barátta milli auðvalds-
ins og verkalýðsins, þeirri baráttu mun ljúka
með valdatöku verkalýðsins, mikils meirihluta
þióðarinnar og framkvæmd sósíalismans, með
þjóðnýtinau helztu fyrirtækja og skipulagningu
atvinnulífsins með þjóðarhag fyrir augum. Þetta
ættum við að geta orðið sammála um. Þið ætt-
uð einnig að þekkja svo mikið til þióðfélagsmála
eða a. m. k. til mannlegs eðlis, að þið gerðuð
ykkur það Ijóst, að sósíalisminn verður aldrei
Asmundur
Sigurjónsson.
íramkvæmdur baráttulaust, að kapítalistarnir
munu aldrei afsala sér sérréttindum sínum
liljóðalaust, og því nauðsynlegt að gera ráðstaf-
anir til að fyrirbyggja skemmdarverk þeirra
gegn framkvæmd sósíalismans. í viðræðum við
ykkur hefur mér skilizt, að þið séuð mér fylli-
lega sammála um þetta. En þó eruð þið fullir
fjandskapar til þeirra ríkja, sem gengið hafa
þessa braut til sósíalismans. Nærtækt dæmi:
Tékkoslóvakía. Þar ákveður mikill meirihluti
þings og þjóðar með kommúnista og sósíaldem-
okrata í fararbroddi að framkvæma fyrirætlanir
um þjóðnýtingu helztu atvinnugreina. Grund-
völlur undir framkvæmd sósíalismans ér lagður
eftir nákvæmlega þeim reglum, sem þið ásarnt
okkur álítið nauðsynlegar, éf hún á að takast
farsællega. Jafnframt er komið í veg fyrir.
skemmdarverk kapítalista og leigusveina þeirra
gegn framkvæmdum, sem yfirgnæfandi meiri-
hluti þjóðarinnar hefur lýst fylgi sínu við. Áróð-
ur fyrir kapítalisma, fyrir örbirgð, ranglæti og
öryggisleysi er lýstur ósamrýmanlegur þjóðar-
hagsmunum og varðar við lög. Og þá mótmælið
þið, hrópið í kór með öllum málpípum auð-
valdsins: Hinn ógurlegi glæpur er drýgður,
„lýðræðið" (les: kapítalisminn) er afnumið. Þið
fyrireefið, að mér veitist erfitt að skilja.
Málgögn ykkar fyllast hryllingi, er þau minn-
ast þeirrar kúgunar og þess ofbeldis, sem þau
ásamt öllum auðvaldsmálgögnum heims segja,
að Sovétríkin beiti ná,grannaþjóðir sínar. Hins
vegar eiga þau ekki riógu sterk orð til að lýsa
örlæti, lýðræðisást og baráttu Bandaríkjanná
Framhald á bls. 11.'
4 LANDNEMINN