Landneminn - 11.06.1953, Side 1
8■ tbl. 11. JÚNÍ 1953 7. árg.
Frambjókndur unga fólksins
MiiKnún Kjartantison
í Ilafnartirði
lnKÍ R. Hclgason
í Itcykjavík
^‘iturjón Einarsson
1 ' -Isaf jarðarsýslu
®jörn I'orsteinsson
* ' ‘IWuavataissíslu
TTinn 28. júní n.k. fara frani hcr á landi
afdrifaríkar kosningar. Þann dag vel-
ur þjóðin 52 fulltrúa til að fara ineð æðsta
vald í málefnum sínum næstu fjögur árin.
Afdrifaríkari kosningar hafa ekki verið
háðar á íslandi. Forkólfar borgarastétt-
arinnar, sem svikið hafa erlendan her inn
i landið, stórlega skert lífskjör alþýðu
/nanna til sjávar og sveita og brugðið
fæti fyrir æsku landsins, hvggja nú á enn
stærri þjóðsvik en nokkru sinni. Þeir œtla
áð gera ísland að' einu hernáðarvirlci.
Þeir œtla að leggja atvinnulíf lands-
manrui í auSn og binda vinnuafl þjóSar-
innar við ófrjóa hernaSarvinnu í þága
Bandaríkjanna. Og þeir œtla áð stofna
innlendan her gcgn verkalýðshreyfing-
unni og þjóðfrelsishreyfingunni.
Þessi áform verða framkvæmd þegar
á næsta kjörtímabili, ef þjóðlin grípur
ekki í taumana í þessum kosningum. —
Sérstaklega á sú æska, sem nú er að vaxa
í landinu til vits og þroska miklu ábyrgð-
arhlutverki að gegna. Vonir hennar um
frjálst Island, um framtíðarmöguleika sína
í landinu og gróandi þjóðlíf eru í veði.
Æskan á að erfa landið og heill hennar
kr.efst þess, að snúið verði við á óheilla-
braut undanlátsseminnar við Bandaríkja-
menn og stöðvuð verði hin geigvænlega
efnahagslega öfugþróun, sem af henni
leiðir. Með atkvæðisrétti sínum er æsk-
unni veitl aðslaðla til áhrifa um þessi
þýðingarmiklu mál og raunar getur hún
ráðið úrslitum í kosningunum, ei' hún
fylkir sér einhuga um hina jákvæðu þjóð-
hollu stefnu.
Sósíalistaflokkurinn átti frumkvæðið að
nýsköpuninni á árunum 1944—46. Sú ný-
sköpun var fólgin í endurnýjun atvinnu-
tækja landsmanna og miðaði að því að
skapa hér á landi stórvirkt framleiðslu-
kerfi, sem byggt væri á skynsamlegri hag-
nýtingu vinnuafls þjóðarinnar og auðlinda
landsins. Crundvöllur nýsköpunarinnar og
takmark var aukin hlutdeild hins vinnandi
fjölda í vaxandi þjóðartekjum og liorn-
steinn hennar var trú á landið og mögu-
Ieika þess, trú á þjóðina og framleiðslu-
getu hennar.
Sósíalistaflokkurinn fór úr ríkisstjórn-
inni, þegar yfirstéttin hafði ákveðið að
ofurselja landið Bandaríkjunum og eyði-
leggja nýsköpunina. Síðan hefur hann
verið í stjórnarandstöðu. staðið einn á
Alþingi ísiendinga gegn ágengni Banda-
ríkjanna og barizt af öllum kröftum gegn
eyðileggingu alvinnuveganna. Saga þeirra
ára er saga niðurlægingar, atvinnuleysis,
húsnæðisleysis og betliferða. Og nú er svo
komið, að heilbrigt atvinnulíf landsmanna,
dregst óðfluga saman en vinnuafl þióðar-
innar notað í þágu hervæðingar landsins.
Gegn þessari öfugþróun rís Sósíalista-
flokkurinn enn á ný með jákvæðar tillög-
ur um heilbrigt athafnalíf, sem byggðar
eru á brottrekstri erlenda hersins úr land-
inu og einbeitingu krafta þjóðarinnar að
frjósömum framleiðslustörfum. Og Sósíal-
istaflokkurinn kallar á œsku landsins til
fylgis við sig, því án hennar verður honurn
ekkert ágengt, en ef liún fylkir sér undir
rnerki hans er sigur íslands vís.
Hér eru birtar myndir af 8 frambjóð-
endum Sósíalistaflokksins. Alll eru það
ungir menn, sem æska landsins þekkir.
Þessir 8 frambjóðendur ungu kynslóðar-
innar eru á listum Sósíalistaflokksins
vegna liinnar jákvæðu og þjóðhollu stefnu
hans.
Jónas Árnason
í S-l»iní?eyjarsýsln
HaraUlur Jóliannsson
í Borgarf jarðarsýslu
Guðm. J. Guðmundss.
í Smefellsnessýslu
Sigurður Guðgeirsson
í A-Húnavatnssýsln