Unga Ísland - 01.01.1905, Blaðsíða 8

Unga Ísland - 01.01.1905, Blaðsíða 8
6 UNGA ISLAND ekki við að Ieggja allt f sölurnar fyr- ir það, jafnvel blóðoglíf, ef þörfkref- ur. En bölvun, óhamingja, slys, fyrir- litning og svívirðing þeim, sem svíkja landið sitt eða liggja á liði sínu á stundum hættu og neyðar. Petta fundu Svisslendingar og búa nú við fje, frama og frelsi í friði og ró í fjalladölum ættjarðar sinnar. Engin þjóð ónáðar þá, en allir virða fyrir dáð og dreng- skap. Þeir eru fagurt og göfugt dæmi æskulýð allra ianda, og honum hvöt að feta í þeirra fótspor ogelska landið sitt, vinna því og byggja það, svo lengi sem heilsa og líf endist, þegar vex vit og þroski. í- STAKA. Man jeg móður mjer um vanga mjúklega strjúka og mildilega. í hennar augum endurskein: Himinn, haf, sól og heilög ást. Konungsdóttirin í álögunum y~>y jp3 inu sinni var iðnaðarmaður. Hann átti tvo sonu. Hjet annar Hans, en hinn Hjálmrekur. Hans var góð- ur drengur og hvers manns hugljúfi. Hjálmrekur illur og óhlutvandur. Faðir þeirra unni Hjálmreki hugástum, en Ijet sjer fátt um Hans finnast og hafði hann útundan, þótt hann væri í öllu hinum betri og efnilegri. — F’annig er því oft farið í heimi þessum. Einhverju sinni gjörði harðæri mik- ið. Varð þá þröngt í búi iðnaðar- mannsins og komst hann í fjárþrot. Æ, hugsaði hann með sjer: jeg verð þó að hjara á einhverju. Oft hefur verið að þjer spurt og til þín leitað. Nú er komið til þinna kasta. Farðu á fund viðskiftamanna þinna og bið þá kurteislega og vin- gjarnlega að greiða þjer það, sem þú átt hjá þeim. Hann tók þetta ráð. Snemma morguns reis hann úr rekkju, fór heim til efnamannanna og drap að dyrum. En hjer fór sem oftar, að efni og skilvísi hjeldust ekki í hendur. Enginn vildi skuldina greiða. Iðn- aðarmaðurinn kom heim að kvöldi þreyttur og dapur í bragði með tvær liendur tómar. Hann gekk heim að veitingahúsinu, settist aleinn að hurð- arbaki hryggur í huga og mælti ekki orð frá vörum, því að hann hafði hvorki skap til að spjalla við svall- bræður sína nje þótti fysilegt að sjá framan í hið ólundarlega and- lit konu sinnar. En þótt honum væri þungt í skapi gat hann ekki að sjer gjört, að hlusta á það, sem talað var inni umhverfis hann. Par var að- kominn maður úrhöfuðstaðnum. Hafði hann frá mörgu að segja, og meðal annars, að töframaður nokkur, illur og ósigrandi hefði numið í brautu1 með sjer konungsdótturina fögru, og lagt það á hana, að hún skyldi sitja alla æfi í fangelsi, unz einhver kæmi sem gæti frelsað hana, með því að leysa þrjár þrautir, sem töframaðurinn legði fyrir hann En sá sem bæri giftu til þess, átti að eignast konungsdótt- urina, skrautlegu höllina hennar með öllu hennar gulli og gimsteinum. Iðn- aðarmaðurinn hlíddi á þessa ræðu. í fyrstu gaf hann henni lítinn gaum, en eftir því sem á söguna leið, gjörðist hann forvitnari, tók að velta því fyrir sjer, er hann heyrði, og hugsaði að lokum: Hjálmrekur sonur minn er skyr maður, og mun kunna að ráða þessar 1) haft á burt með sjer.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.