Unga Ísland - 01.09.1908, Síða 7

Unga Ísland - 01.09.1908, Síða 7
UNGA ISLAND. 71 langferð — til heitu landanna. Þær eru að æfa flugið. Nú leggja þær af stað og stefna lil suðurs yfir holt og hæðir. »Geturðu nú sagt mjei', hver það er, sem segir lóunum, hvenær þær eiga að fara, og bendir þeim, hvert þær eiga að lialda, þegar þær fljúga um geiminn?« »Það er guð«, svaraði Bjössi. »Rjelt er það. — En skildir þú nú það, sem þú sást í sjónaukanum? Ef þú hættir við að lesa töfluna, áður en þú ert búinn að læra hana, fer þú eins að og fiskimaðurinn, sem var orðinn leiður á því að dorga og verða ekki var, og dró upp færið rjett í því að stóri fiskurinn rendi sjer aðþví. Fjármaðurinnvarþolinmóðari. Hann stritaðist við að ná fjárhúsinu, — því marki, sem hann hafði sett sjer, þótt það kostaði liann mikla áreynslu. Hann hafði sterkan vilja á að ná tak- markinu og viljinn bar hann að þvi. Hann ættir þú að hafa þjer til fyrir- myndar. Þú sagðir áðan, að það væri guð, sem rjeði ferðum lóanna og leiðbeindi þeim. Það er rjett. Og sami mátt- urinn styður þig og styrkir, ef þú heldur áfram starfi þínu ókvíðinn eins og þær, og ert þolinmóður, þótt seint gangi. Haltu því áfram við töfl- urnar. Síðar munt þú þurfa að leysa ei'fiðari verlc af hendi, ogefþú manst þá eftir því, sem jeg hef núsýntþjer og sagt, mun þjer auðnast að yfir- vinna allar torfærur«. I því hili vaknaði Bjössi. Hann mundi vel alt, sem liann hafði dreymt, og var nú ekki lengi að læra töflurn- ar, og fór að því búnu út að leika sjer. Og jafnan, þegar liann er að gefast upp við eitthvað, sem houum finnst sjer ofvaxið að framkvæma, minnist hann draums þessa. Tli. Arnason. Haustvísa. Fönnin hijlur fjöllin há, fölleit hníga blömin. Legst í fjötur lindin blá með Ijúflings pýða óminn. J. F. Myndirnar. Hákon VII. konungur Norðmanna er fæddur 3. ágúst 1872, annar sonur Frið- riks VIII. Danakonungs, og heitir haun rjettu nafni Karl Friðrik. Hann kvong- aðist 22. júli 1896 og gekk að eiga Maud dóttur Játvarðar Englakonungs. 5. júlí 1903 eignuðust þau hjón son, er Alexander var nefndur, en nú er hann kallaður Olafur, síðan er faðir hans varð konungur Norðmanna, en pað gerðist 18. nóvember 1905, er Norðmenn höfðu sagt upp sambandinu við Svía. Frá konungskomunni. Myndirnar tvær á 69. biaðsíðu, eru frá pví að Friðrik VIII. var lijer á ferð í fyrra sumar. Fessar mvndir hafa hvergi sjest áður; pær voru teknar handa Unga tslandi ásamt fleiri myndum, er pvi miður varð ekki liægt að sýna. Á fyrri myndinni sjest úr fjörunni út til konungsskipanna, sem skjóta kveðju- skotunum, en á hinni er kongur stíginn út í bát sinn, sein liggur við hafnarbryggj- una og sendir síðustu kveðju í land. Sitt af hverju. Skipakomur til íslands. Frá árinu 1787, (þegar verzlun við ís- land var gefln frjáls öllum dönskum pegn- um), eru lil hjer um bil óslitnar skýrslur um siglingar til landsins. Árið 1858 kom fgrsta gufuskipið til íslands. Fað var enskt skip i danskri þjónustu. Hjer er meðaltal skipakomu: Árin Skip tals Smálestir samtals 1787-1800 55 4366 1— 00 o 00 o 42 3531 1811—1820 33 2665 1821—1830 54 4489 1831—1840 82 6529

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.