Unga Ísland - 01.03.1910, Blaðsíða 6

Unga Ísland - 01.03.1910, Blaðsíða 6
22 UNGA ISLAND. Búskaparfólkið.0 Hvammi 12. Jan. 1908. Frændi sæll. Gleðilegt ár og þökk fyrir brjefið þitt. Jeg held að mjer gangi illa að svara öllu sem þú spyrð um, en jeg skal segja þjer, það sem jeg veit. Annars skalt þú fá þjer ef þú getur íslenska garðyrkjubók, sem Þjóðvina- fjelagið gaf út eða garðyrkjukverið hans Schierheks landlæknis og ýmis- legt er í Búnaðarritinu um þetta og i Frey. En nú ætla jeg að líta á brjefið þitt. Þú segir að garðurinn þinn sje 8 faðma Iangur og 4 faðma breiður. Nú skal jeg benda þjer á að þú þarft lengri girðingu um hann, þegar hann er allangur. Þú þarft sem sje 8—(—4—}-8-j-4 faðma eða 24 faðma, en eí þú hefðir haft liann 6 faðma á hvern veg þá heíði hann verið 4 QJ föðmum stærri, með sama ummáli. (Sjáðu 8X4=32, en 6x6=36).—Þú átt að stinga garðinn upp undir eins og klaki er úr jörðu og sá þegar tíð leyfir, líklega um miðjan maí, eða litlu siðar. Besti áburðurinn er hrossatað. Kartöflur eru mjög mis- munandi góðar og ófært að sá slæm- um kartöflum. Þær eiga að vera rneðal stórar með sem flestum augum og svo eiga þær að vera spiraðar, þegar þær eru settar niður. Þær eiga að vera settar 4—5 þuml. niður og milli þeirra sje um 10 þuml. og settar eins og myndin sýnir. Gulrófufræinu er best að sá í maí- byrjun í vermireit, það er moldar- kassa með gleri yfir og er best að hafa hann sunnan undir vegg. Sáðu 1) Sjá U. ísl. 4. tbl. fyrra ár. í hann með þumlungs millibili og svo á að taka plönturnar upp úr honum þegar víst er að öll frost eru úti og gróðurselja í garðinum með svo sem 8 þuml. millibili í skáraðir eins og kartöílurnar. Frostnætur verð- ur vermibeðið að vera byrgt með torfi, svo ekki komist frost að plönt- unum. En eins og jeg gat um fyrst þá verðurðu að fá þjer einhvern leið- arvísi og lesa liann vandlega. — En hvernig fór með hænsin. Nú verður þú að segja mjer um þau. Jeg heí hvergi sjeð neitt um hænsarækt og veit ekkert livort golt er að hafa þau. Vertu svo blessaður og sæll þín Gunna. Eyri 22. maí 1908. Kæra frænka. Það hefur dregist fyrir mjer að svara þínu góða brjefi í vetur. En nú get jeg þá sagt þjer því meira sem drátturinn liefur verið lengri. Jeg keypti mjer Garðyrkjubókina og nú er jeg búinn að sá karlöflunum í 20 ÍP) faðma og vel hálfnaður að flytja gulrófuplönturnar úr vermireitnum i garðinn. Þær verða þá í 12 □ föðm- um. Jeg þarf eina athugasemd að gera við brjefið þitf, þar sem þú talar um að garðurinn minn sje óhentugur í laginu. Sjáðu nú til, jeg gerði ráð fyrir því að liann stækkaði um helm- ing, verði 8 faðmar á hvern veg, og þá var betra að hafa hann svona fyrst, til þess að þurfa ekki að taka upp nema sem minst af girðingunni. Svo er að segja frá liænsunum. Eins og jeg talaði um í fyrra, þá lceypti jeg 3 hænur og 1 hana. Þetta voru ung- ar 8 mánaða gamlir og því á besta aldri. Jeg fjekk þau um nýár, tvær hænur voru þá farnar að verpa og nú skallu sjá livernig sá búskapur ber sig. Jeg gerði upp reikninginn á vinnuhjúaskildaga og hann er svona:

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.