Unga Ísland - 01.03.1910, Blaðsíða 7

Unga Ísland - 01.03.1910, Blaðsíða 7
UNGA ÍSLAND. 23 Hænsabú S i g u r ð a r J ó n s s o n a r. 1908 Úttekið: 1. jan. Keyptar 3 hœnur og 1 hani kr. 5,00 2. — — 20 pd. masi á °/10. . — 2,00 9. — — 10 — bankabygg °/18 — 1,30 15. apri — gömul hæna.......— 1,00 s. d, — 11 egg til útung. o/^j — 1,65 8. mai — 1 pd. tvíbökur .... — 0,40 14. — peningar í sjóði.........— 4,03 Kr. 15,38 Innlagt: Egg Asu til 14. maí 65 — Signýar sama tíma 58 — Helgu — — 73 = 196 egg. 52 seld á o/10, 77 á °/08, 67 á %c = kr. 15,38 Jeg á þá núna 4 hænur, 1 hana, 7 hænunga 3 hanaunga 3 pd. mais 2 pd. hankabygg og peninga kr. 4,03. — Þetta er alt ágóði frá nýjári. Auð- ydtað reikna jeg ekki vinnu mína eða leigu af kofanum, sem þau eru í eða matarleifar, sem jeg fæ gefins heima, það er þeirra aðal fóður. En svo skaltu sjá reglulegan reikning frá mjer um nýárið. Ef þú vilt byrja, þá fáðu þjer gamla hænu, sem vill liggja á. Gamlar hænur, verpa lítið og eru því ódýrar en þær eru góðar að unga út og sjá vel um ungana. Svo kaupirðu 13 egg frá góðu hænsakyni, ítölsk hæns eru talin best, og lætur hana liggja á þeim á afskektum stað, þar sem liún er ekki ónáðuð af öðrum hænsum eða öðru. Þar þarf hún að liafa að- gang að góðu fóðri og fersku vatni. — Hún fer sjálf og jetur, þegar liún vill. — Og svo verðurðu að hafa þarna nálægt dálítin þurran moldarbýng (sumir hafa ösku). Hænsin þvo sjer í mold. Best var að leggja á i apríl, en svo sem fyrst úr því, og ekki síðar en í mai. Ungarnir koma út eftir þrjár vikur. Fyrsta daginn eiga þeir ekki að fá neitt að borða, en næstu daga þarf að gefa þeim oft. Kveiti- brauð eða tvíbökur, bleytt í mjólk, er besi. Jeg skrifa þjer um þetta alt meira næst, ef þú ætlar að bju-ja. Vertu svo sæl þinn Siggi. Bókaíreg’ii. Dajjlegar líkainsæílnjrar efter Olav Schröder pýtt hefur Olafur Rosenkranz leikflmiskennari. Kortnaðarmaður Stefán Runólfsson, Rvk. 1909 54 bls. með 40 mynd- um. Kostar stífhelt kr. 1,00. Kverið er einkar vandað og þó að það þyki máske nokkuð dýrt eftir stærð þá er þó þess að gæta, að fyrir heilsuna er aldrei of mikið gefið, en kverið er ásínu sviði leiðarvísir til að eíla hana. Það ber einkunarorðin »Heilbrigð sál i liraustum líkama«. Grömu.1 spil. 3. Treikort. Pað er spilað á 27 spil og eru þau þessi í röð eftir gildi: Hæst er laufadrotningin, þá spaða tvist- ur, tigulkongur, hjartatvistur, laufiQarki, spaðaátta, lijartanía, tigulnía, ásar, gosar, sex (póstar), áttur og loks sjöin (besei'- arnir) sem eru líka liæstir þegar þeim er spilað út. Þrir menn spila og fá níu spil hver og eru þrenn spil spiluð í einu. Fyrir 13 slagi i þrem spilum verður maður páfi, 11 slagi keisari, 9 slagi konungur, cn sá sem fær undir 5 slögum’kamarmokari. Pau hlunnindi fylgja páfatign að hann má kjósa sjer í byrjun hvers spils besta spil lijá öðrum og besefa hjá hinum, en hann lætur einhver hrök í staðinn. Eigi sá elcki besefa, sem krafin er, fær páli ekkert lijá honum. Páfinn er úr tigninni et hann gleymir að gela spil í stað þeirra sem liann lieimtaði eða nær ekki 13 slögum í þrem spilum, og er þá byrjað af nýu.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.