Unga Ísland - 01.03.1918, Blaðsíða 7
UNGA ÍSLAND
23
Ári síðar sat Telaskó eitt kvöld
heima i kofa sinum. Úti var þreif-
andi myrkur og hellirigning. Hann
heyrði að drepið var á dyr. Hann
lauk upp hurðinni. Úti fyrir dyrum
stóð maður holdvotur frá hvirfli til
ilja. Komumaður baðst gistingar.
Kvaðst hann hafa verið á dj’raveið-
um en vilst í skóginum. Telaskó
þekti að þetla var sami bóndinn,
sem liafði úthýst honum árið áður.
Hann var fyrst í vafa um hvað gera
skyldi, en afréð þó að hýsa gestinn,
og bauð honum inn. Hann bað konu
sína að bera mat fyrir hann, draga
af honum vosklæðin og breiða síðan
dýrafeld á gólfið, sem hann gæti hvílt
sig á yfir nóttina.
Morguninn eftir fylgdi Telaskó gesti
sínum á rétta leið og sagði við hann
áður en þeir kvöddust:
»Eg veitti þér húsaskjól í nótt og
gaf þér bæði mat og drykk. Manst
þú eftir manninum, sem kom til þín
í fyrra, og grátbændi þig um það,
sem eg nú hefi veitt þér, en þú út-
hýstir lionum miskunnarlaust. Eg var
maðurinn. Nú hefði eg getað hefnt
mín á þér. En það sem þú hefir lært
sem kristinn maður, og þú hefir nú
gleymt, hefir náttúran gróðursett í
hjarta mínu. Vita skaltu það, krislni
maður, að meðal þeirra manna, sem
þú kallar liundheiðna, er til gestrisni
og miskunnsemi gagnvart þeim, sein
bágt eiga. Og næst þegar einhvern
ber að garði þínum og beiðist gist-
ingar, þá minstu þess hvernig eg hefi
breylt við þig, og láttu hann ekki
synjandi frá þér fara«. Að svo mæltu
lók Telaskó í hendina á gesti sínum
og sneri heimleiðis.
Grafreitur skrimsla.
Þegar komið er inn í stóru nátt-
úrugripasöfnin í New York og öðr-
um stórborgum í Bandarikjunum, þá
verður mörgum starsýnt á risavaxn-
ar beinagrindur, sem hanga þar neð-
an í loftinu. Þessar beinagrindur eru
af dinosaurus og skrímslum, sem
lifðu fyrir þúsundum ára, löngu áður
en nokkurt mannlíf var til á jörðunni.
Hvergi í heimi hefir fundist jafn-
mikið af leifum þessara dýra og í
austurhluta Utah-ríkis. Ræður stjórn
Bandarikjanna yfir þessu svæði. IJarf
að fá sérstakt leyfi hjá henni til að
grafa þar upp steingervinga. Fær eng-
inn að grafa þá upp nema þeir, sem
vinna fyrir stór náttúrugripasöfn. Eru
það vísindamenn, sem vinna að því
með þrautseigju, og grafa upp og
festa saman steingervinga, sem geta
gelið glögga þekkingu á dýralífinu,
sem lifði á jörðinni, þegar lögin, sem
þau finnast i, voru að myndast.
Carnegie-safnið í Pittsburg liefir
látið starfa að því á síðustu árum
að safna steingervingum á þessum
stöðvum. Earl Douglass háskólakenn-
ari fann þennan forsögulega (prehi-
storic) grafreit. Liggur hann fáar
mílur frá þorpinu Vernal. Douglass
hafði heyrt, að bændurnir fyndu
stundum slór bein, þegar þeir væru
að plægja akrana. Hjarðmenn og
veiðimenn höfðu einnig rekist á þau.
(Frh.)
<a
Heilabrot.
GÁTUR.
1. Hvaða hani segir besl til veðra-
hrigða?