Unga Ísland - 01.07.1918, Blaðsíða 2

Unga Ísland - 01.07.1918, Blaðsíða 2
50 UNGA ISLAND eins þeirra; það var af feikna stóru fjalli með hengiháum hömrum. Skúli var inn í bergið og í skútanum stóð afarstór og hrottalegur tröllkarl með reidda feikna stóra kylfu, búinn til áhlaups. Andspænis honum stóð ít- urvaxinn maður. Hafði hann bitran brand í hendi reiðubúinn til að verja sig. í hverl sinn sem Jóni litla varð litið á þessa mynd, sýndist lionum sem að tröllkarlinn mundi hlaupa á manninn. Qfl spurði Jón litli Pétur gamla, hvort hann hefði séð tröllkarlinn og hústaðinn hans, en aldrei fékst hann til að svara því, »en óhræddur mátt þú vera Jón litli, ekki sækir tröll- karlinn þig«, var Pétur gamli þá vanur að segja. ■ -w Bréf til liarnanna á íslandi. New York, 20. maí 1918. Góði vinur! Nú er vetur úr bæ. — Hæðirnar hérna með fram Hudsonsíljótinu anga í hvítasunnuskrúðanum, þó sakna eg íslensku vornóttanna hjörtu og frið- sælu. Eg hefi átt annríkt, en nú er aðalstarflnu í Kennaraháskólanum loki.ð, voru síðustu tímarnir í gær, að þeim loknum slóu tvö félög í skólanum sér saman, barnanámsfélag og sveitalífsfélag, og fóru 6 mílur upp með Hudsonsfljóti til að gera þar glaðan dag í vorhlíðunni. Vorum við um 100. Fóru flestir gangandi. Fórum við á gufubát yfir ána. Tind- um við feyskjur úr skóginuin og gerðum eld mikinn i falleguin hvammi við ána undir himinháu hamrabelti. Tókum við nú upp matföng okkar, telgdum við viðarteinunga og stung- um reyktum bjúgum á endann og steyktum þær við eldinn, hituðum kaffi og borðuðum. Höfðu ýmsir bú- ið til gamankvæði og voru þau sung- in, svo var komið i ýmsa leiki og voru allir kátir vel; loks var tekin ljósmynd af hópnum. Á morgun byrja ýms námsskeið í skólanum og standa yfir lOdaga. Hver sá er fá vill viðurkenningu frá skólanum fyrirstarf sitt (credit) verður að taka nð roinsta kosli þrjú af þessum skeiðum. Miða þau öll að gefa fólkinu leiðheinigar viðvíkjandi sumarstarfinu. En flestir í skólunum hafa lofað að leggja fram krafta sína í fríinu til að hjálpa til við eitthvað af þeim störfum sem bráðasta nauðsyn ber til, svo sem hjúkrun, ræktun landsins o. fl., o. fl. Hvílir þannig ábyrgð á þessu landi. Alt af fjölgar miljónunum víðsvegar um beim sem æpa eftir brauði og frelsi, snúa þær bænum sínum og vonum til Bandaríkjanna flestar, — Columbia University sendir á þessu vori, eins og að undanförnu, fjölda manna út um öll Bandaríkin og til flestra landa í heiminum. — Heldur kennaraskólinn þessi námsskeið til þess að búa þessa menn undir starf sitt og gefa þeim öfluga hvöt og hjálpa til að útbreiða í orði og verki hugmyndirnar sem skólinn álitur mestu varða, má í slutt máli segja, að það séu bróðernishugmyndir fram- kvæmdir i öllugu starfi, samúð, sam- vinna og félagsskapur með einstakl- ingum og þjóðum, en nú sérstök á- hersla lögð á að hver einasti með- limur þjóðfélagsins leggi fram alla orku. Eg þykist vita að hver hönd sé líka starfandi og hver hugur vak- andi heim á íslandi, þar sem auð- sæld sjávarins og frjósemi landsins bíða eftir skjótum og öflugum fram-

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.