Unga Ísland - 01.05.1922, Qupperneq 5

Unga Ísland - 01.05.1922, Qupperneq 5
GA ÍSLAND 37 ÍJN er Akureyringar reistu Matthíasi skáldi á áttræðisafmæli hans, 11. nóv. 1915. Það var fjelag kvenna á Akur- eyri, sem kom upp þessum garði. Var byrjað að vinna í honum 1911, og var hann því 10 ára á s. 1. vori. Eins og sýnir, er þar þegar kominn föngu- legur trjágróður. A. Sigm.son. Mállausir vinir. Eftir S. Arason. II. Til eru margar tegundir sela; sumar þeirra eru mjög stórar t. d. sæfílar suð- urhafanna, aðrar eru mjög litlar. Allir selir eru vel syndir. Fremri hreifana nota þeir fyrir árar, svara þeir til handa okkar og handleggja. Sund þeirra er fagurt, og fljótir eru þeir með afbrigð- um. Sjórinn er borðsalur þeirra og skortir þar ekki fiskirjetti. En heimili þeirra er á ströndum eyja og útskerja, þar fæðast kóparnir og alast upp, þang- að til þeir læra að synda. Selurinn, sem hjer verður sagt frá, er sá, sem mest er útbreiddur og liæg- ast er að temja. Hann lifir í íshafinu og finst alla leið suður i Miðjarðarhafi. Hann er mjög vitur. Þar sem hann er ekki ofsóttur, er hann mjög gæfur, kem- ur jafnvel fast að bátum og til manna uppi á ströndinni. Hann er hrifinn af söng og hljóðfæraslætti og eltir stund- um báta svo milum skiftir, ef verið er að spila þar á hljóðfæri. I þorpinu Hoy í Orkneyjum þyrpist oft fjöldi sela inn í fjörðinn á sunnudögum, til þess að hlusta á klukknahringinguna. Tamdir selir eru mjög hlýðnir og auðsveipir og geta lifað lengi, ef þeir hafa nóg vatn, til þess að baða sig og synda í, og fisk til átu. Þeir eru mjög gefnir fyrir vinahót og vilja láta taka eftir sjer og kjassa sig. Þeir koma eins og hundar, þegar kallað er á þá með nafni. Það er auðvelt að kenna þeim ýmsar smá listir, og stundum hafa þeir verið hafðir til sýnis. Selir, sem nást mjög ungir, haga sjer mjög heimamannlega. Þeir liggja mak- indalega við eldinn og verma sig og telja sig auðsjáanlega í flokki heima- fólksins. Þeir eru mjög elskir að þeim, er hirða þá og sýna þeim blíðu og ástúð. Til er sönn saga af sel, sem fylgdi húsbónda sínum eins og hundur, át úr hönd hans og lá við hlið hans, þegar hann sat í sæti sínu. Hundur var á heimilinu og tókst mikil vinátta meö honum og selnum. Þegar einhver kom inn, lyfti selurinn höfðinu og athugaði hver það væri, en aldiei reyndi hann að bíla gestina eða hunda þeirra. Það var kalt og hvassviðrasamt, vet- urinn eftir að selurinn náðist. Það var því erfitt að ná í nægan fisk bæði handa fólkinu og selnum. Hann þurfti mikið að borða; var það ráð tekið að gefa

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.