Unga Ísland - 01.06.1927, Síða 1
íslenski þjóðbúningurinn.
Allir lesendur U. ísl. þekkja þjóð-
húning þann, er konur bera hjer á
landi, skautið, upphlutinn og peysu-
fötin. En jeg veit ekki hvort allir
vita, að sumstaðar í öðrum löndum
er það alsiða, að karlar 'heri þjóð-
búning. Þykir það ]>era vott um þjóð-
rækni og ættjarðarást. Við íslending-
ar höfum engan slíkan búning átt,
er náð hefir festu hjá þjóðinni, síð-
an Jitklæðin voru borin á söguöld-
inni og nokkru eftir það.
Nú var það seint í vetúr, að
Tryggvi Magnússon málari valcti
máls á því við nokkra kunningja
sína, hyort ekki mundi gjörlegt að
endurreisa hinn forna búning ís-
lendinga fyrir alþingishátíðina 1930.
Fjekk það þegar ágætar undirtektir,
og 17. júní kom tæpra tuttugu
manna flokkur fyrst fram í búningi
þessum opinberlega. Vakti hann af-
armikla athygli og þótti hinn feg-
ursti. Síðan hafa þeir, sem eiga
hann, verið öðru hvoru í honum, og
fleiri eru alt af að bætast við.