Unga Ísland - 01.06.1927, Side 7

Unga Ísland - 01.06.1927, Side 7
UNGA ÍSLAND 47 mundi jeg þjer þvi hafa, eða launaði hann þjer fleira“? Auðun svarar: „Gaf hann mjer enn leðurhosu fulla af silfri, og kvað mig þá eigi fjelausan, ef jeg hjeldi því, þó að skip mitt bryti við ísland". Konungur sagði: „Það er ágæt- lega fyrirhugað, og það mundi jeg ekki gert hafa; laus mundi jeg þykjast ef jeg gæfi þjer skipið með farmi. Hvort launaði hann þjer fleira“? „Svo var víst, herra“, segir Auðun, „að hann launaði: hann gaf mjer hring þenna, er jeg hefi á hendi, og kvað svo mega að berast, að jeg týndi fjenu öllu og skipinu, og sagði mig þá ekki fjelaus- an, ef jeg ætti hringinn. Bað hann inig hringnum eigi lóga, nema jeg þættist nokkurum tignum manni eiga svo gott að launa, að jeg Adldi gefa hann. En nú hefi jeg þann fundið, því að þú áttir kost, herra, að taka hvorttveggja frá mjer: dýrið og svo lif mitt; en þú ljest mig fara þangað í friði, sem aðrir náðu eigi“. Konungur tók við gjöfinni með hlíðu og gaf Auðuni i mót góðar gjafir áður en þeir skildust. Auðun varði l'jenu til íslandsferðar og fór út þegar um sumarið til tslands, og þótti vera hinn mesti gæfumaður. é Sofðu vinur! Sofðu vinur sofðu róti, svefninn ei/kur æskuþrótt. Jeg skal vaka vinur minn, svo verði bliðari biundurinn. Láttu þína þreijttu önd, líða um dijrðleg draumalönd. Þar cr alt svo undur bjart, þar aldrci ríkir rökkrið svart. Þar á barnsins bliða sál, Ijúf <>(J fögur leyndarmál. Þar er gleðin göfg og lxrein, þar er yndislegt ungum svein. Þar er engin hrggð og kvöl, engin smán og ekkert böl. Sofðu eina ástin mín, ■ hvíldin þín er hvildin min. Úti stgnur stormurinn, það er dgrðleg birta um drenginn minn. Sofðu vinur sofðu rótt, svefninn egkur æskuþrótt. Valdimar Árnason, frá Hallbjarnarstöðum. síí

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.