Unga Ísland - 01.06.1927, Blaðsíða 9

Unga Ísland - 01.06.1927, Blaðsíða 9
UNGA ÍSLAND 49 Skák-kongur Islands. Það hefir jafnan þótt góð skemtun að tefla skák og lengi verið iðkað, bæði hjer á landi og erlendis. Á síðari árum hefir áhugi manna fyr- ir skáktafli farið vaxandi og er það vel farið, því að um þá skemtun er gott eitt að segja. Hún er handhæg og hávaðalaus en reynir tals- A7ert á athygli og íhugun. Undanfarið hafa verið háð skákþing á hverju ári fyrir alt land- ið, og hefir sigui’vegarinn hlotið nafnbótina: skák-kongur íslands. Síðasta skákþing var háð á Akureyri snemma í maí s. 1. og varð Egg- ert Gilfer píanóleikari frá Reykjavík hlut- skarpastur. Hann er því skákkongur íslands þetta ár og heldur því virðingarnafni uns ann- ar snjallari ber sigur úr býtum á hinu árlega skákþingi Islendinga. Eggeri Gilfer. velli. — Þessir draumar færa mjer frið og ró, nýjan dug og nýja þróttmikla löngun til þess að lifa og stárfa. Þeir lata mig gleyma því, sem erkallogöm- urlegt, láta mig gleýma myrkri og kulda skamindegisins, veita nýjum Ijóma, nýj- um yljandi geislum inn í sál mína. — Við barm draumanna finn jeg það gleggst, hve líkaminn er vesæll og van- máttugur, hve hann er lítils virði, ef hann hefir ekki að geyma vængljetta sál, sal sem megnar að hefja sig yfir örðug- leika ytri lífskjara og stefna hátt móti vori og sól. — Jeg elska þessa yndislegu drauma, jeg elska þetta háfleygi huga míns og jeg þrái að það .endist sem lengst. .Teg' telc glaður til starfa hvern morgun og hlakka til kvöldsins, kvöldsins þegar jeg fæ hvíld, get lokað augunuin og látið hug- anna svífa á vængjum ljvifra yndislegra Út yíir vötn og velli. (Brot.) Þegar jeg er þreyltur, þegar erfiði dagsins er lokið og kvöldhúmið nálgast hægt og hljótt, þá legg jeg aftur augun og lad hugann svífa á vængjum ljúfra drauma eitthvað langt út yfir vötn og velli. Þegar útþráin hvislar í eyru mjer ótal yndislegum seiðaiidi orðum um unaðs- ríka slaði fyrir liandan höf og lönd, seg- ir mjer frá glæsilegum borgum með ið- andi lífi og fjöri, frá ilmandi skógum með fjölhreyttu blómskrúði og dýrðleg- um fuglasöng, þá finnur hugur minn enga torfæru, enga örðugleika i vegi til þess að fá notið þessara unaðsemda, heldur liður í vonbliðum draumi út í geisladýrð æfintýranna, vit yfir vötn og

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.