Unga Ísland - 01.06.1927, Page 10

Unga Ísland - 01.06.1927, Page 10
50 UNGA ÍSLAND drauma, eitthvað langt burt frá daglegu störfunum, stritinu og kuldanum, eitt- hvað langt, langt út yfir vötn og velli. Vinur! Hefir þú fundið hve það er yndislegt að dvelja á landi draumanna? Hefir þii fundið til þess, hve mikil birta stafar af þeim, sem eiga bjarta og fagra drauma, hve allar hreyfingar þeirra eru fjörlegur og lifandi? Jeg veit, að þú hlýt- ur að hafa fundið það! Reyndu af fremsta megni að hafa sál þína upp í veldi draumanna, reyndu með því að íjetta J)jer iífsbyrðina og skapa J)jer möguleika til að láta þjer nægja J)að, sem J)ú hefir. Það, sem lífið legg- ur Jijer til. — Jeg veit að J)að er yndis- legt, að geta notið sem flestra unað- semda lífsins. Jeg veit að Jiað er yndis- legl, að ferðast land úr landi og skoða íullkomleik fjarlægra staða, en jeg veit samt ekki hvort J)að er nokkuð affara- sælla eða fegurra, en að njóta hvíldar í örmum kvöldfriðarins eftir vel unnið dagsverk, loka augunum og láta hug- ann svífa á vængjum ljúfra drauma eitthvað langt, langt — út yfir vötn og velli. — Valdimnr Árnason, Tvær krumma-sögur. Krummi vísar á luið. Þessi saga gerð- ist í tíð lang-ömmu minnar, sem hjet Þórunn. Einu sinni um hausttíma var verið að þurka húð af stórgrip. Eitt kvöhlið gleymdist að taka húðina inn, en um nóttina gerði rok svo að húðin fauk. Um morguninn var hafin leit að húðinni, en árangurslaust. Um sama hil og fólkið kom úr leitinni kom hrafn heim að bænum, gargaði ákaft og flaug til og frá. Þórunn húsfreyja virti hrafn- inn fyrir sjer um stund og sagði svo: „Nú ætla jeg að leita húðarinnar og vita hvort krummi minn vísar injer ekki leiðina“. Fólkið hló og hjelt að lítið mark væri á J)ví takandi, J)ó að krunkandi hrafn kæmi heim að bænum. Húsfreyja slceytti því engu, en ferðbjó sig og fylgdi hrafn- inum eftir. Krummi flaug spöl og spöl, en settist á milli og beið eftir hús- freyju. Hún fylgdi honum alt af eftir, og J)ar kom, að hún fann húðina eftir til- vísun krumma. Hún tók nú húðina og bar hana heim, Þegar heim kom sagði hún við fólkið: „Þið sjáið nú, að jeg hefi ekki farið alveg ónýtisferð, þó að ykkur J)ætti lítið mark takandi á krumma mínum“. — Rjett á eftir kom krummi aftur heim á hlað. Húsfreyja gaf honum góðan bita í fundarlaun, og er ekki annars getið en að krummi hafi tekið því með þökkum. Krummar stela eggjum. Fyrir mörg- um árum voru ménn á ferð með æðar- egg í fötum. Á leiðinni komu Jieir við á liæ til þess að fá sjer kaffisopa, en skildu eggin eftir kippkorn frá bænum. Þegar Jieir komu til baka sáu þeir nokkra hrafna á vakki, þar sem þeir höfðu skilið eggin eftir, og þegar þeir gættu betur að sáu þeir að flest öll egg- in voru horfin úr einni fötunni. Þeir fóru nú að leita að eggjunum, en lengi vel fundu Jieir ekki neitt. Hrafnarnir l'lögruðu hátt yfir höfði leitarmanna og krunkuðu ánægjulega. Þeir bjuggust auðsjáanlega við veislu þegar mennirnir hypjuðu sig á brott. ' Eftir langa leit fanst fyrsti felustað- urinn, svo annar og siðan hver af öðr- um. Hvar haldið þið að lirafnarnir hafi

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.