Unga Ísland - 01.09.1929, Side 3

Unga Ísland - 01.09.1929, Side 3
UNGA ISLAND 67 efst í honum, og hann skammaði bæði sig og kusa. Gunna litla var svo skynsöm, að hún hljóp heim og sagði sem orðið var. Hlupu allir, sem áttu heimangengt, út, til þess að elta kusa. Gvendur hljóp úr vefstóln- um, Dóri frá reiptaglinu, pabbi Óla frá smíðunum, Veiga frá rokknum og Lauga gamla úr eld- húsinu. Hljóp nú hver sem betur gat, og stóð eltingaleikurinn all- lengi. Siggi varð fljótastur og náði hann kusa að lokum niðri í mýri. Menn urðu fegnir, þegar kusi náðist. Settist hver niður, þar sem hann var kominn, til þess að kasta mæðinni. Gleymdist það með öllu að hrakyrða Óla fyrir klaufaskap hans. Fræðimaður. Eitt kvöld um haustið sátu þau frammi í eldhúsi, Óli og Gunna btla systir hans. Óli tók til máls: „Veistu, hvað jeg veit, Gunna?“ „Nei. Hvað veistu?“ „Veistu, hvað er núna?“ „Hvað er núna?“ „Já. Veistu ekki, að það er komið haust?“ „Jú. Jeg veit það“. „Veistu, hvað kemur á eftir haustinu?" „Nei. Jeg veit það ekki“. „Þá kemur veturinn. Og þegai- veturinn er, þá eru jólin. Manstu ekki eftir jólunum?“ „Jú“. Og Gunna klappaði sam- an höndunum af fögnuði. „Veistu al' liverju jólin eru?“ „Já. Jesús Kristur fæddist á jólunum“. „En veistu, hvað er gert á jól- unum?“ „Nei“. „Þá eru kveikt mörg ljós. Þá fá allir gott að borða, Þá fara all- ir í bestu fötin sín, og þá eru allir glaðir og kátir. Þá verða okkur gefin spil og kerti, og þá er bak- að voða, voða mikið af kökum. Veistu þetta ekki, Gunna mín? Þetta veit jeg“. „Veistu meira?“ spurði Gunna. „Já. Jeg veit af hverju páskarn- ir eru“. „Nú. Af hverju eru þeir?“ „Þá reis Kristur upp“. „Reis upp, hvernig?“ „Hann reis upp úr grofinni. Hann reis upp frá dauðum“. „Og hvenær koma páskarnir?“ „Það er langt, langt þangað til. Bíðum nú við. Nú er haust, svo kemur veturinn og jólafastan; þá koma jólasveinarnir og Dóri skrifar þá alla, til þess að láta draga um þá á jólunum. Svo koma nú jólin; þá eru dagarnir stuttir og næturnar langar. Svo lengjast dagarnir, en samt eru

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.