Unga Ísland - 01.09.1929, Blaðsíða 12

Unga Ísland - 01.09.1929, Blaðsíða 12
76 UNGA ÍSLAND fyrir lækninn. Þegar það frjettist í skólann, gladdi það alla, en þó sjei’- staklega einn, og það var Pjetur. — Drengirnir voru allir sammála um það, að þeir liefðu farið illa að ráði sínu við Björgu. Og í fritímanum báru þeir saman ráð sin um það, livað þeir ættu að gera, til þess að sýna henni, að þeir hefðu iðrast framkomu sinnar. Einn dag stakk Pjetur upp á þvi, að þeir skyldu aura saman fyrir nýja kápu handa Björgu, og var það einróma samþykt. Þeir keyptu mjög fallega lcápu, og einn dag, er Björg' var orðin svo frísk, að hún gat lekið á móti gestum, stóðu þau Pjetur og móðir hans í stofu Katrinar. „Björg“, stamaði Pjetur, „jeg kem lil þess að biðja þig fyrirgefningar, og þessi kápa er frá mjer og fleiri drengjum. Jeg vona að ]>ú takir við henni“. „Já, þakka þjer fyrir. Móðir mín! fyrirgefðu mjer, en mjer fanst að jeg ekki geta þolað stríðni drengjanna, svo að jeg faldi kápuna undir hátn- um hans Ólafs“. „Þá sæki jeg hana“, sagði Pjetur og var óðara rokinn af stað. Eftir nokkrar mínútur kom Pjetur aftur, en ekki með kápuna. Hún var horfin og hafði flotið undan bátnum mcð flóði. Elín í Norðurgarði dvaldi langa stund hjá frænku sinni. Margt bar þeim á góma. Loks mælti Elín: „Jeg á grænu kápunni afar mikið að þakka. Hún liefir leitt okkur aftur saman, frændkonur og æskuleik- sj’stur“. Tár runnu niður kinnar Katrínar; það voru gleðitár. Einnig hún átti grænu kápunni mikið að þakka. Lauslega þýtt af //. G. £ Huliðsnökkvinn. Þjóðsaga frá Indíánum. Það var einu sinni undrafögur ung stúlka. Hún dó sama daginn og hún átti að giftast ungurn, fallegum manni. Hann var hraustur og sterkur, en samt veittist honum erfitt að bera þennan missir. Frá þeirri stund er hún var jörðuð, var honum liorfinn allur friður og gleði. Oft varð honum reikað til staðarins, þar sem konurn- ar höfðu greftrað liana, og sat þar löngum sokkinn i djúpar hugsanir. Þrátt fyrir það, að nokkrir af vinum lians liöfðu ráðlagt honum að fara út á veiðar eða í harnað, til þess að sökkva sorginni. En veiði- og hernað- aðlöngun hans var með öllu liorfin, — hjarta hans var sem brostið ,og hann kastaði kylfunni, boganum og örvunum frá sjer og vildi ekki af þvi vita. Hann liafði lieyrt gamalt fólk segja frá því, að til væri vegur, sem lægi inn í land sálnanna, og hann hugsaði sjer að leggja af stað og leita hans. Hann bjóst því til brottferðar, og svo lagði hann af stað. I fyrstu var lion- um gjörókunnugt um það, livert halda skyldi, en þó liafði lionum skilist það, að vegurinn mundi liggja í suðurátt. Langa hríð gat hann ekki orðið var neinnar breytingar á útliti náttúrunnar. Skógarnir og hálsarnir,

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.