Unga Ísland - 01.03.1935, Blaðsíða 4

Unga Ísland - 01.03.1935, Blaðsíða 4
3Ó UNGA ÍSLAND í hjarta Hjálmars. (Sjónleikur í einum þætti.) (Lauslega þýtt). Leikendur: Tveir vöðvar (piltur og stúlka, rauðklædd). Tveir sendlar (gulklæddir). / Gestur (í svörtum hjúp). 4 hermenn úr móteiturdeildinni (hvídklæddir). Leiksvið: Hugmyndin er, að leikur þessi gerist í einu af hólfum í drengshjarta. Tjöldin eiga að vera rauð, leiksviðið er lýst með daufu rauðu ljósi. Á gólfinu, aftariega á leiksviðinu liggur rautt vitt rör þvert yfir. Við enda rörsins, við báða veggi eru einskonar handdælur. Hvort við sína dælu standa vöðvarnir og dæla hægt og ró- lega. Við hvert átak heyrist hægur hjartsláttur (t. d. má slá í trumbu). Augnabliki eftir að leikurinn hefst, heyrist vekjaraklukka hringja. Karlvödvinn (teygir úr sér): Er klukkan orðin sjö? Ég sem hélt, að hún væri ekki nema fimm. Góðan daginn systir sæl. Hvernig liður þér eftir kappleikinn í gær? Kvenvöðvinn: Æ! Ég er þreytt. En það er ekki við öðru að búast, við erum alveg óæfð. Karlvöðvinn: Satt segir þú, við vorum illa unirbúin. (Það er barið fljótlega að dyrum og inn kemur sendill. sem hefir hraðan á). Sendillinn: Heyrðuð þið vekjarann hringja, vöðvar? Hann vakti Hjálmar og nú fer hann að klæða sig. Fótleggir og handleggir þurfa strax að fá meira blóð. / Vöðvarnir: Við skulum annast það. (sendillinn fer). Vöðvarnir dæla hraðar og hjartslátturinn heyrist örari. Kvenvöðvinn: Hjálmar fer snemma á fætur í dag. (Gestur- inn Jaumast inn frá hægri án þess þau taki eftir honum). Karlvöðvinn: Það er vegna þess, að hann .byrjar að vinna í dag. Kvenvöðvinn: Því hafði ég gleymt. (Sér gestinn) Hvað á þetta að þýða? Hver ert þú? (hálf hrædd) Hingað má enginn koma inn. Óviðkomandi er stranglega bannaður aðgangur. Gesturinn: Bannaður aðgangur! í þessa myrkraskonsu. Hvaða kompa er þetta. Karlvöðvinn: Talaðu varlega maður minn, þú ert staddur í einhverjum alvirðulegasta og þýðingar mesta stað líkamans. — Myrkrakompa! Ekkinema það þó!l Gesfurinn: Virðulegasti staður líkamans ! Hvaða staður er það? Kvenvöðvinn: Það er dæluhúsið vitanlega. Gesturinn: Dæluhúsið, og ekki finnst mér það svo merki- legt heiti. Karlvöðvinn (hálf önugur): Þú ert i hjartanu ef þér finnst það hljóma betur. — En hjartað er ekkert annað en dæla. Héðan er blóðinu dælt gegnum allar slagæðar, háræðar og bláæðar, þannig að hver einasta fruma likamans kemst í sam- band við blóðið, hvar sem hún er og hver sem hún er. Gesturinn: Og hver dælir? Kvenvöðvinn: Það gerum við, vöðvarnir. Hjartaveggurinn er fullur af vöðvaþráðum, sem vinna í sam- einingu að því að dæla blóðinu, annast blóð- rásina. í hvert sinn, sem við þrýstum blóðinu áfram geturðu heyrt hjartslátt. Hlustaðu (gest- urinn hlustar). Sendill (ber að dyrum og kemur inn): Nú vantar magann meira blóð, Hjálmar er að borða hræringinn sinn og maginn verður að byrja að melta strax, viljið þið annast um það? Frh. bls 38.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.