Unga Ísland - 01.03.1935, Síða 6

Unga Ísland - 01.03.1935, Síða 6
ÚNGA ÍSLAND 32 drengina, sem verða ríkir. En þegar Skúli heyrði þetta, varð hann mjög kát- ur. Hann hugsaði með sér: Nú er afi minn orðinn gamall og ræður ekkert við mig. Þar verður gaman að vera. Og svo fór hann til afa. En afi gamli var ekki orðinn eins ónýtur og strákur hafði haldið. Hann var góður við hann, en strangur, og svo fór á endanum, að þeir úrðu bestu vinir. Gamli maðurinn lét hann alltaf hafa nóg að vinna, lét hann finna það, að hann gæti gert gagn og að honum væri að fara fram. Þegar Skúli Magnússon kom aftur heim til pabba og mömmu, varð hann aftur ná- kvæmlega eins óþekkur og hann var áður. Þeim þótti þetta afar leiðinlegt, eins og von var, og spurðu afa, hvern- ig þau ættu að fara að því, að hafa hann góðan. Gamli maðurinn sagði: »Látið hann alltaf hafa nóg að starfa; það er eina ráðið«. Þessu var hlýtt. Skúli varð síðar einn duglegasti maður, sem lifað hefir á íslandi. Þennan dreng þótti landinu af ein- hverjum dularfullum ástæðum ákaflega vænt um. Skúli litli átti að verða verslunarmað- ur en kaupmaðurinn vildi að hann mældi og vigtaði skakkt. Það vildi Skúli ekki. Hann hætti þá við verslunarstörfin og fór að læra. Hann lærði hjá presti þar í sýslunni, og fór svo heim til Hóla þar sem biskupinn bjó og skólinn var, til þess að fá að taka stúdentspróf. En biskupinn tók þessum pilti illa og neit- aði honum um að taka prófið. Þegar Skúli reið í burtu lá honum við að gráta, en beit á jaxlinn ogsagði: Betur muntu taka mér næst. Og svoleiðis svara þeir drengir sem landinu þykir vænt um. Skúli fór út í lönd, Iærði mikið og sá margt og varð að Iokum fógeti yfir öllu landinu. Þá var sultur og seyra í land- inu eldgos, harðindi, óáran, og héldu margir að nú væri guð alvarega reiður við vesalings mennina. Skúli taldi, að ekki yrði bætt úr þessu með því að gefa út nýjar húslestrarbækur, heldur með því að athuga landið. Hann sá að það hafði verið farið afskaplega illa með það. Honum fannst að söguöldin hefði misnotað það, friðaröldin vanrækt það, Sturlungaöldin selt það konginum og konungurinn rúið það. Nú reið lífið á að verða vinur landsins. Hann sá að það var nóg af fiski í sjónum, en ekkert nýtilegt skip og enginn sem kUnni að veiða, hann sá að það mátti búa til mjúka og góða dúka úr íslensku ull- inni, en enginn kunni að vefa þá. Hann sá að það mátti rækta jörðina og láta hana gefa tífallt meira en hún gerði. En það kunni það enginn. Fyrir öllu þessu barðist Skúli: vakti og vann, hugsaði og braut heilann, fékk góða menn í félag með sér og kenndi þeim að trúa á landið. Skúli átti sér trúar- ájtningu í þremur greinum eins og aðrir menn. Hún var svona. Það á að rækta landið, það á að framleiða meira, til lands og sjávar, og það á að gera það sem við fáum í landinu að betri og dýr- mætari vöru. Þennan mann þótti land- inu vænt um. Skúli er einn af bestu sonum íslands. Hann dó árið 1794, og var jarðað- ur í Viðey. Og þegar hann var borinn til grafar vissi landið að nú mundi íbúar þess aldrei geta orðið eins blindir og áður, og að nú hafði ræst ofurlítið af því sem það hafði verið að þrá alla leið síðan það byggðist í 920 ár. Og nú voru líka ýmsir aðrír drengir, sem landið var farið að gefa auga í kyrþey.

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.