Unga Ísland - 01.03.1935, Blaðsíða 12
38
UNGA ÍSLAND
Frh. frá bls. 30.
Karlvöðvinn:
Já tafarlaust.
Sendillinn:
Það var nú bið á blóðinu í gær. Maginn
fékk ekkert blóð aukreitis, til að melta mið-
degismatinn svo Hjálmari varð bumbult og
maganum var kennt um.
Kvenvöðvinn:
Við áttum enga sök á því. Hjálmar hvíldi
sig ekki neitt eftir máltiðina. Hann hljóp strax
af stað i knattspyrnu þegar hann var buinn
að borða, svo við urðum að láta útlimina fá
meira blóð og ekki geta allir hlutar likamans
fengið aukablóð i einu, þessvegna gat maginn
ekkert fengið eins og þú skilur.
Karlvöðvinn:
Hjálmar má ekki hamast svona rétt eftir mál-
tið. Það er vitleysa sem honum verður oft á.
Sendillinn:
Eg skal skýra fyrir maganum af hverju töfin
stafaði. (Fer).
Gesturinn:
Það væri synd að segja, að ykkur sé of
þakkað erfiðið í þessari smásmuglegu myrkra-
kompu.
Kvenvöðvinn:
Smásmuglegu myrkrakompu!! Hjartað í
Hjálmari er eins stórt og kreptur hnefi hans,
svo eg held að það sé svo sem nógu stórt.
Karlvöðvinn:
Þetta er bara hluti af öllu hjartanu. Hólfin
eru fjögur. Hægra megin er bæði fram og aft-
ur hólf, og er sama að segja um vinstra helm-
ing þess.
Gesturinn
(svipast um): Og i hverju hólfinu erum við
nú stödd ?
Karlvöðvinn:
Þetta er vinstra afturhólf. Vinstri heimingur
hjartans er sterkari og hefir meira starf að inna
af hendi.
Kvenvöðvinn:
Hægri helmingurinn sendir blóðið bara til
lungnanna Það er ekki löng leið. í lungunum
hreinsast blóðið og tekur í sig súrefni og þeg-
ar það kemur hingað, er það hreint og súrefnis-
rikt og svo dælum við, llérna vinstra megin,
um allan likamann.
Karlvöðvinn
(bendir ofan i dæluna): Komdu og sjáðu hvað
blóðið er rautt og hreint, sem kemur frá lung-
unum.
Kvenvöðvinn:
Hjálmar hefir allt af opinn glugga á svefn-
herberginu sínu, svo það er nóg af súrefni í
loftinu, sem hann andar ofan i iungu sín.
Gesturinn:
Jú, það litur bara þokkalega út þetta blóð.
Karlvöðvinn:
Það er þrungið af súrefni. Hver smá fruma
í likama Hjálmars þarfnast súrefnis og svo
ýmislegs annars, sem blóðið flytur.
Gesturinn:
Hvað er það annað, sem blóðið flytur? Mér
sýnist þetta bara vera rauðlitað vatn.
Kvenvöðvinn:
Níu tiundu partar af því er vatn, en i blóð-
inu er líka sykur, bætiefni, fita og margt, margt
fleira, t. d. töluvert af venjulegu matarsalti.
— Frumurnar taka það, sem þær þurfa með.
Og svo er úrgangurinn frá frumunum, blóðið
flytur hann i burtu. Þú ættir bara að sjá hvað
blóðið verður dökkt á leið sinni gegnum
líkamann.
Gesturinn:
Þetta er allt saman harla merkilegt, sem þið
hafið sagt mér, en feginn er eg að þurfa ekki
að vinna hérna.
Karlvöðvinn:
Já, ekki er hægt að neita þvi,, að vinnu-
tíminn er langur — 24 timar á sólarhring og
allt af haldið áfram.
Gesturinn:
Hvílist þið aldrei?
Kvenvöðvinn:
Vitanlega ekki. Ekki má blóðrásin nema
staðar. Ef hjartað hætti að dæla blóðinu myndi
Hjálmar deyja.
Karlvöðvinn:
Á nóttunni vinnum við fjarska hægt. Þegar