Unga Ísland - 01.03.1935, Síða 14

Unga Ísland - 01.03.1935, Síða 14
40 UNGA ISLAND að gert. En nú er hver einasti barnaveikissýk- ill, sem komist hefir inn í likamann, í óða önn að framleiða eitur. Eitur þetta kalla læknar »Toxin«. Sýklarnir berjast með þessu eitri, tox- ininu, og hermenn okkar neyðast til að láta undan því, ráða illa vlð það. Kvetivöðuinn: Þetta er afar hættulegt. Mjög alvarlegt. Fyrsti sendill (kemur inn): Getið þið sent meira blóð upp eftir? Hálsinn hrópar á hjálp. Likaminn er að útbúa aukalið til baráttunnar, en sýklarnir eru mjög margir og magnaðir. Vöðvarnir: Við skulum gera það, sem við getum. (Send- illnn fer). Kvenvöðvinn: Ef satt er sagt, þá er ég bæði þreytt og illa fyrirkölluð. Karlvöðvinn: Sama segi ég. — En við megum ekki hugsa um það. Hversu þreytt, sem við erum, verðum við að halda áfram starfi okkar. Kvenvöðvinn: Vitanlega. Ekki megum við bregðast Hjálm- ari þegar mest á riður. (Annar sendill kemur aftur). Sendillinn: Hvernig gengur það? Það er ekki alveg von- laust ef þið getið haldið áfram Líkur til bata eru ekki miklar, en þó svolitlar. j Karlvöðvinn (óviss): Við erum að vona að við getum unnið svolitið lengur. Sendillinn: Læknirinn hefir dælt inn í likamann móteitri, móteitri, sem ónýtír eitur barnaveikissýklanna. Okkar eina von er að það nægi. (fer). Kvenvöðvinn: En hvað ég þrái hvild. Ég er svo máttlaus og veik. Karlvöðvinn: Við verðum að halda áfram. Við megum ekki bregðast. Gesturinn: Ykkur er óhætt að hætta. Svona hættið nú (gripur i handlegg Kvennvöðvans. Hvildu þig bara, það er úti um Hjálmar. Kvenvöðvinn: Láttu mig vera. Þú mátt ekki hindra mig í vinnu minni. Farðu. Karlvöðvinn (æstur): Slepptu henni undireins! (Sleppir déel- unni, grípur í gestinn og kastar honum í gólfið út undir vegg, hleypur síðan til dælu sinnar og dælir. Annar sendill (hann kemur inn hræddur og æstur): Hvað er að? Hjartað sleppti úr slagi. Við urðum hrædd. Kvenvöðvinn (bendir aumingjalega á gestinn): Það var hann. Sendillinn: Hvaða náungi er þetta? Gesturinn (hefir risið á fætur og dustað sig): Gildir ekki einu hver ég er Það er úti um ykkur. Sýklarnir hafa sigrað ykkur. Þið eigið ekki eftir að lifa nema fáar mínútur eða jafnvel sekúndur. Þið skuluð ekki halda að ég óttist ykkur. Fyrsti sendill (kemur inn): Nú er alt að lagast. Móteitrið vinnur á eitrinu. Móteitrið bindur og lamar eitrið og hvítublóðkornin éta það svo á eftir. Það er hraustlega af sér vikið (flýtir sér út). Annar sendill: Heyrirðu það? Þarna hljópstu á þig kunningi. Þú sagðir að við ættum aðeins fáar minútur eftir ólifaðar. Gesturinn: Ég ætla að fara. (Hann er ekki alveg eins borginmannlegur og áður. Hann laumast burtu). Verið þið sæl. Fyrsti hermaður (stendur i dyrunum): Hingað og ekki lengra. Ætli þú sért ekki sá, sem verið var að leita að. Hver ert þú? Karlvöðvinn: Svo móteitursmennirnir eru komnir hingað, þá er okkur borgið. (Fieiri hermenn koma inn. Þeir horfa hvast á gestinn).

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.