Unga Ísland - 01.03.1935, Blaðsíða 15
UNGA 1-SLAND
41
Annar sendill:
Hann reyndi að hindra vöðvana i starfi
þeirra.
Fyrsti hermaður:
Ertu mállaus? Þvi svararðu ekki? Leitið á
honum. (Hermennirnir svifta hjúpnum af gestin-
um. Á peysu hans,. sem er svört, stendur með
stóru hvitu letri „Toxin“.
Öll:
Toxin!!
Fyrsti hermaður:
Svo þú ert barnaveikiseitur og þér var ætlað
að svifta ungan dreng lifinu. Bindið hann og
farið með hann. (Gesturinn leiddur burtu) Þetta
var viðsjáll náungi. Við höfum hann til kvöld
verðar. Verki okkar er að mestu lokið Hjálm-
ari er að batna (fer).
Annar sendill:
Heyrðuð þið það? Hjálmari er að batna og
allt er það ykkur að þakka, sem alltaf hélduð
áfram, létuð dæluna ganga á hverju, sem gekk
og hversu þreytt, sem þið voruð (fer).
Karluöðyinn
(geispar): Mér leist aldrei á þennan gest,
hann var svo svipljótur og lymskulegur.
Kvenvöðvinn:
Sama segi ég, En maður kanp þó kurteisi.
Ég sá undireins að þetta var illmenni, þó ég
léti ekki á því bera. (Þau dæla áfram, það
smá dimmir tjaldið fellur.
Svar við dæmi
er birtist á bls. 25 (siðasta hefti.)
Maðurinn var 78 ára árið 1933 og
var þvi fæddur 1855.
16 karlmannanöfn.
Svar við gátum i siðasta hefti (sjá bls. 25)
1. Klaufi — Skjöldur — Erlendur —
Smári — Valur — Björn — Hrafn —
Vigfús.
2. Karl — Eilífur — Oddur — Axel
Grettir — Hringur — Smiður — Hreinn.
Gjalddagi Unga íslands
er 1. apríl.
Kaupendur eru hér með minntir á að
gjalddagi blaðsins er 1. apríl n.k. Bregð-
ist nú fljótt og vel við og sendið
andvirði blaðsins. Einstaklingum, sem fá
blaðið sent beint frá afgreiðslunni, og
skulda enn fyrir 29. árgang, verða send-
ar póstkröfur í apríl eða maí n. k., fyrir
29. og 30. árgang. — Verði þær ekki
leystar inn við fyrstu hentugleika, verður
hætt að senda þeim blaðið.
Hin síðari ár hefir þeirri reglu verið
stranglega fylgt, að láta ekki aðra fá
blaðið en þá, sem greiða það.
Munið það, vinir og unnendur U. í.,
að blaðið getur ekki til lengdar haldið
þeim séssi, að vera stærsta og um leið
ódýrasta barna- og unglingablað lands-
ins, nema andvirði hvers árgangs fáist
með fullum skilum.
Útsölumenn, látið kaupendur ykkar
greiða ykkur við fyrstu hentugleika, og
gerið skil við gjaldkera svo fljótt, sem
auðið er. — Munið, því fyr, því betra.
Virðingarfyllst.
Gjaldkerinn.
Skrítlur.
Kennslukonan spurði Ásu:
»Því hefir þú ekki lokið við það, sem þú
áttir að teikna heima«
»Afsakið« svaraði Ása »hann pabbi hafði svo
naumann tíma«.
Ása og Ari voru að leika sér, þegar á leik-
inn leið urðu þau ósátt og fóru að stríðast.
Segir þá Ása: »Hann pabbi þinn er skósmiður
en samt gengur þú í rifnum skóm«. Ari var
ekki lengi að svara: »Ég veit ekki betur en
hann pabbi þinn sé tannlæknir en samt er ekki
ein einasta tönn i munninum á honum litla
bróður þinum«.