Unga Ísland - 01.03.1935, Qupperneq 16
42
UNGA ISLAND
LESKAFLAR FYRIR LITLV RÖRNIN
f ♦
Svarti bangsi.
Niðurlag.
Leikbræður.
Blakkur hnipraði sig saman innst
inni í tjaldinu. En allt í einu hrökk
hann við og leit í kring um sig.
Honum fannst eitthvað koma við
sig. Hann sá þegar að þetta var
lítill drengur, eirrauður á hörund.
Bangsi sá að ekkert var að óttast,
lagðist út og sofnaði.
Drengurinn, sem hét Arnarvæng-
ur, var svo lítill, að hann hafði
ekki vit á að hræðast. Hann var
himinlifandi glaður yfir þessum nýja
leikbróður. Hann togaði í lubb-
ann á bangsa, skreið upp á
bakið á honum og brunaði sér
niður, skellihlæjandi. En bangsi
rumskaði varla. Hann var svo
hræðilega syfjaður. Loks tók Arn-
arvængur að þreytast. Hann lagð-
ist fyrir í kverkinni á bangsa og
sofnaði vært.
Þannig sváfu þeir báðir, þegar
pabbi og mamma drengsins komu
heim. Móðirin rak upp angistaróp
og þreif drenginn upp. Hann vakn-
aði, teygði hendurnar til bangsa,
orgaði og braust um á hæl og
hnakka, svo að mamma hans missti
hann úr örmum sér niður á haus-
inn á Blakk. Bangsi vaknaði við
allan þennan gauragang. Hann urr-
aði ekki og sýndi engin reiðimerki,
heldur leit hann rólega á foreldra
Arnarvængs, og nuddaði hausnum
vingjarnlega við öxlina á honum.
Strákur hætti að orga og hljúfraði
sig ánægjulega upp að bangsa.
Pabbi Arnarvængs hló og sagði:
»Það er best að lofa bangsa að
vera hér og gera honum ekkert
mein, þar sem hann og Arnarvæng-
ur eru svona góðir vinir«.
Mömmu Arnarvængs leist ekki
á það í fyrstu. En hún varð brátt
sannfærð um að bangsi væri alveg
meinlaus. Hún sá hve hann var
góður við Arnarvæng, og skildi
vel, hvað drengnum þótti vænt um
hann. Þessvegna fékk Blakkur að
dvelja í Indíánatjaldinu um veturinn.
Góð barnfóstra.
»Nú líður mér vel«, sagði Blakk-
ur við sjálfan sig. »Það er ég viss
um, að enginn björn hefir áður
dvalið heilan vetur í Indíánatjaldi.
Ég þaif að segja gráa bangsa frá
þessu í vor«.
Það var notalega hlýtt í tjaldinu
á nóttinni, þegar dyrunum var lok-
að. Þá svaf bangsi vel. En hann
vakti á daginn og var þá hinn fjör-