Verktækni - 01.01.1985, Blaðsíða 5

Verktækni - 01.01.1985, Blaðsíða 5
Framkvæmdir hafnar við verkfræðingahús Nú rétt fyrir jólin tók Davíð Oddsson borgarstjóri, fyrstu skóflustunguna að hinu nýja húsi Verkfræðinga- félagsins og lífeyrissjóðsins, sem reist verður á svoköll- uðum Ásmundarreit norðan við Suðurlandsbraut — skáhallt á móti Hótel Esju. Við þetta tækifæri flutti Vífill Oddsson formaður húsráðs, ræðu þá sem hér fer á eftir. Vífill Oddsson. Forsaga Þegar þessum merka áfanga hefur verið náð, er margs að minnast. Jón Þórláksson (forsætisráð- herra og borgarstjóri) var sá fyrsti sem lagði fé til verkfræð- ingahúss, en það var árið 1921 og var því vel viðeigandi að borgar- stjórinn í Reykjavík tók fyrstu skóflustunguna. Frá þessum tíma var stöðugt safnað fé til væntan- legs verkfræðingahúss og fyrir stríð voru töluverðir peningar fyrir hendi í sjóði, en verðbólga stríðs- og eftirstríðsáranna rýrðu sjóðinn verulega. Á árinu 1951 var síðan skipað húsráð til að sjá um framkvæmd- ir í húsnæðismálum félagsins og var Finnbogi Rútur Þorvaldsson kosinn fyrsti formaður þess. Með honum í þessu húsráði var m. a. Jakob Gíslason, sem er einn eftir- lifandi. Störf þessa fyrsta húsráðs leiddu síðan til kaupa á Vt hlut- um í 3. hæð húseignarinnar Brautarholt 20, sem keypt var árið 1958 og 10 árum síðar var lokið öllum greiðslum vegna þessara húsakaupa. Fljótt varð ljóst að Brautarholt 20 væri ekki viðunandi húsnæði fyrir félagið og var það einkum vegna sambúðarinnar með skemmtistaðnum Þórscafé. Því kontu fljótlega, eftir að Brautarholtið var keypt, fram óskir um að félagið ætti að koma sér upp öðru húsnæði, byggja eða kaupa annars staðar. Á 50 ára afmæli félagsins 1962 gaf Reykjavíkurborg félaginu fyrir- heit um lóð undir eigið hús. Menn voru broshýrir cflir að borgar- stjórinn liafði tekið fyrstu skóflu- stunguna, enda langþráðu markmiði náð. Eftir art verkirt var hafið með stunguskóflu tóku stórvirkari tæki við. Ekki ber á öðru en að Ágúst Valfells, formaður VFÍ, sé liæst- ánægður með framvindu mála. Á áttunda áratugnum skaut húsbyggingarmálinu upp öðru hvoru og voru þá meðal annars gerðar kannanir á því, hvort verkfræðingar vildu byggja og þá hversu stórt og hvort vera ætti í samvinnu við önnur félög um slíka byggingu. Árið 1980 var svo skipað nýtt húsráð með Ragnari S. Halldórs- son sem formann. Húsráð fékk það vegarnesti frá stjórn félagsins að fá lóð undir væntan- legt verkfræðingahús og hefja undirbúning að byggingu þess í samvinnu við Lífeyrissjóð VFÍ. Húsráð þetta starfaði af mikl- um krafti næstu 4 árin og á þeim tíma fékkst þessi ágæta lóð, sem við erum nú nýkomnir frá og veitti borgarstjóri fyrrverandi og núverandi og borgarverkfræð- ingur félaginu mikilvægan stuðn- ing í því máli og eiga þeir bestu þakkir skilið. Þá tókst að selja eignina í Brautarholti á viðun- andi verði og var Þórshöll hf. kaupandi. Þá hélt áðurnefnt hús- ráð einnig samkeppni um væntanlegt hús og hlutu arkitekt- arnir Egill Guðmundsson og Þór- arinn Þórarinsson 1. verðlaun í þeirri samkeppni. l.ýsing á húsi og væntanlegum frainkværndum í byrjun þessa árs var skipað nýtt húsráð. Þetta húsráð skyldi sá um framkvæmdir við væntan- legt verkfræðingahús. í byrjun voru valdir meðhönnuðir og hafist handa við að fullgera teikningar. Þá var gengið frá sameignarsamningi milli VFÍ og LVFI og á Verkfræðingafélagið 60%, en Lífeyrissjóðurinn 40% í húsinu. Áformað var að hefja fram- kvæmdir við grunn nú í ágúst- mánuði, en málið tafðist af ýms- um orsökum. En nú eru þeir erf- iðleikar yfirstignir og búið að fá gott tilboð frá góðum verktaka í að gera grunn hússins. Um miðjan febrúar er siðan áformað að bjóða húsið út til- búið undir tréverk og á þeinr áfanga að ljúka um áramót ’85— ’86 og þá verður hafist handa við lokafrágang 2. hæðar hússins og e. t. v. meir, eftir því sem fjár- hagur leyfir. Áformað er að félagið og lífeyrissjóðurinn geti flutt í hið nýja hús fyrri hluta ársins 1986. Stærð hússins er sem hér segir: Jarðhæð 438 m1 !. hæð 450 m! 2. hæð 412 m! 3. hæð 228 m1 + þakrými 42 m; Samtals 1570 m1 og 5600 m’ VERKTÆKNI • 5

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.