Til sjávar - 01.04.1999, Blaðsíða 6
Niðurstöður útboða
Lægstu tilboö öll undir kost naðaráætlun
Dags. Heiti útboðs Kostnaðaráætlun Lægsta tilboð % Verktaki m. lægsta tilboð Fj. tilboða
14.01.99 Borprammi . 1.497.980 . Vélsmiðjan Orri 3
04.02.99 Grindavík - Dýpkun innsiglingar, 2. áfangi 456.440.000 403.786.660 88 Skanska Dredging 11
16.02.99 Eskifjöröur - Hafskipakantur, stálþil 41.445.250 30.930.840 75 Guðlaugur Einarsson, Hafnarfirði 4
16.03.99 Raufarhöfn - Löndunarbryggja, stálþil 16.860.395 14.811.706 88 Gáma- og tækjaleiga Austurlands 3
18.03.99 Reykjanesbær/Vogar - Sjóvamir 1999 7.034.000 4.179.465 59 S.E.E.S. ehf. 4
06.04.99 ísafjörður - Dýpkun innsiglingar 41.784.460 22.852.934 55 Björgun ehf. 3
Upplýsingar um niðurstöður útboða og auglýsingar um væntanleg útboð er að finna á www.sigling.is
Skipan nefnda stuttar fréttir
Ifebrúar sl. var skipað í
tvær nefndir varðandi
málefni hafna. Önnur
nefndin á að fjalla um framtíðarskipan
hafnamála. Formaður hennar er Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri Akureyri. Aðrir í
nefndinni eru Jóhann Guðmundsson,
skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu,
Hermann Guðjónsson, forstjóri Siglinga-
stofnunar, Gísli Gíslason, bæjarstjóri,
Akranesi og Brynjar Pálsson, formaður
hafnarstjómar, Sauðárkróki.
Hin nefndin á að flalla um gjaldskrár-
mál hafna. Formaður þeirrar nefndar er
Jóhann Guðmundsson, skrifstofustjóri í
samgönguráðuneytinu Aðrir nefndarmenn
eru Sigurbergur Björnsson, Siglinga-
stofnun, Dóróthea Jóhannsdóttir, sjávar-
útvegsráðuneytinu, Ólafur M. Kristinsson,
hafnarstjóri Vestinannaeyjum, og Hannes
Valdimarsson, hafnarstjóri, Reykjavík.
Siglingar skipa með hættulega varning
Frá febrúar 1998 hefur verið starfandi
nefnd sem á að móta reglur um tilkynn-
ingarskyldu og afmörkun siglingaleiða
olíuskipa og annarra skipa sem sigla með
hættulega varning inn í íslenska efnahags-
lögsögu. Reglurnar eiga einnig að ná til
olíuskipa í siglingum milli hafna hér á
landi.
Formaður nefndarinnar er Gísli Viggós-
son, Siglingastofnun. Aðrir nefndarmenn
eru Haukur Már Stefánsson, Eimskip, Jón
Ólafsson, Hafrannsóknastofnun, Gunnar
Karl Guðmundsson, Skeljungi, Helgi
Hallvarðsson, Landhelgisgæslunni, Davíð
Egilsson, Hollustuvemd ríkisins, og Ingvar
Friðriksson, skipstjóri á Kyndli. Starfs-
maður nefndarinnar er Rúnar Guðjónsson,
samgönguráðuneytinu.
Fjallað verður um störf þessara nefnda
síðar í fréttabréfmu.
Hafnaáætlun 1999-2002
Alþingi hefur samþykkt nýja hafnaáætlun
til ársins 2002 en í síðasta fréttabréfi
(5/98) var ítarleg grein gerð fyrir efni
hennar.
Slysum fækkar til sjós
Á síðastliðnu ári voru sjóslys mun færri en
undangengin ár. Tilkynnt sjóslys til
Tryggingastofnunar ríkisins voru 378
samanborið við 460 árið 1997. Þrjú
fiskiskip fómst á árinu og vom þau öll undir
12 m að lengd. Árið 1997 fómst hins vegar
9 ftskiskip þar af 6 undir 12 m að lengd. Eitt
dauðaslys varð á fiskiskipi árið 1998, en
þau vom 2 árið 1997 og 9 árið 1996.
Skýrslur um sjóslys
í upphaft ársins kom út skýrsla Rannsóknar-
nefndar sjóslysa fyrir árið 1995. Skýrsla
fyrir árið 1996 er væntanleg í vor skv.
upplýsingum nefndarinnar.
í júní 1998 gaf Hagfræðistofnun
Háskóla íslands út skýrslu um kostnað
vegna sjóslysa á íslandi. Skýrslan var unnin
fyrir Landlæknisembættið.
www.sigling.is
Mörg ný laga- og reglugerðaákvæði líta dagsins Ijós
Dags. Heiti Nr. S01 nr. Gildistaka
18.08.98 Reglugerð um innflutning, sölu og uppsetningu á GMDSS fjarskiptabúnaði í skip 513/1998 2.2.3.6 18.08.98
10.11.98 Rcglugerð um breytingu á reglugerð um fjarskiptabúnað og Qarskipti íslenskra skipa nr. 295/1994 665/1998 2.2.3.4 10.11.98
10.11.98 Reglur um breytingu á reglum um smíði og búnað báta með mestu lengd allt að 15 m 693/1998 2.2.1.2 10.11.98
19.11.98 Reglugerð um tilkynningarskyldu skipa scm flytja hættulegan vaming 7ID/1998 6.2.9 19.11.98
10.12.98 Auglýsing um frestun á gildistöku ákvæða um losunar- og sjósetningarbúnað gúmmíbjörgunarbáta 744/1998 2.2.3.1 10.12.98
14.12.98 Reglugerð um lágmarkskröfur er varða öryggi, hollustuhætti og heilsu við vinnu um borð í fiskiskipum 785/1998 2.2.5.16 14.12.98
14.12.98 Reglugerð um ráðstafanir er stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna um borð í skipum 786/1998 2.2.5.17 14.12.98
26.01.99 Gjaldskrá fyrir hafnir 60/1999 9.2.5 01.02.99
26.01.99 Reglugerð um gjöld fyrir skoðun, skráningu, mælingu skipa o.fl., 61/1999 2.2.5.3 01.02.99
04.02.99 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 128/1997 um hafnarríkiseftirlit 97/1999 2.2.5.12 04.02.99
05.02.99 Reglugerð um björgunarbáta sem gerðir em út frá landi 123/1999 2.2.1.9 05.02.99
24.02.99 Reglugerð um breytingu á rg. nr. 533/1993 um kæli- og varmadælukerfi með ósoneyðandi kælimiðlum... 137/1999 4.2.10 24.02.99
25.02.99 Reglugerð um breytingu á hafnarreglugerð fyrir Gmndartangahöfn nr. 214/1980 168/1999 9.2.2-02 25.02.99
10.03.99 Reglugerð um halonslökkvikerfi 187/1999 2.2.3.8 10.03.99
11.03.99 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 465/1998 um viðbrögð við bráðamengun sjávar 203/1999 4.2.17 11.03.99
08.03.99 Auglýsing um hafnaáætlun 1999-2002 8/1999 9.10.1 08.03.99
18.03.99 Lög um opinberar eftirlitsreglur 27/1999 19.1.9 30.03.99
18.03.99 Lög um brcytingar á lögum nr. 43/1987 um lögskráningu sjómanna með síðari breytingum 28/1999 7.1.2 30.03.99
19.03.99 Lög um breytingar á lögum um tilkynningarskyldu íslenskra skipa nr. 40/1977 með síðari breytingum 39/1999 6.1.3 30.03.99
22.03.99 Lög um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvamir nr. 7/1998 59/1999 4.1.5 22.03.99
6