Til sjávar - 01.06.1999, Síða 1
1
Viðurkenndur
búnaður
Losunar- og sjósetningarbúnaður
Búnaðinn um borð!
- sjómenn/útgerðarmenn, gerið ráðstafanir strax
2
El Grillo
bauja
3
Spjallið
4
Evrópskt
GPS kerfi?
5
Kröfur um
búnað
6
Sigmund og
Varðeldur
6
Starfsum-
hverfi til sjós
Um langt árabil liefur það verið
kappsmál þeirra sem vinna að
öryggismálum sjómanna að
íslensk skip séu búin vönduðum og
öruggum losunar- og sjósetn-
ingarbúnaði gúmmíbjörgunar-
báta. Nú loks hillir undir það að
þessi búnaður komist um borð
eftir áralanga baráttu.
Forsaga málsins er löng og
verður ekki öll rakin í þessu
fréttabréfi en mikið hefur verið
rætt og ritað um málefnið á
undanförnum árum.
Nýjar reglur um að losunar- og
sjósetningarbúnaður skuli vera um
borð í skipunt eiga að taka gildi
um næstu áramót eftir áralangt
hlé. I dag hafa tvær gerðir sjósetn-
ingarbúnaðar öðlast viðurkenn-
ingu eftir að hafa farið í gegnum
vfðtækt prófunarferli: Sigmund og
Varðeldur.
Siglingastofnun hvetur sjó-
menn og útgerðarmenn til að gera
ráðstafanir strax og koma búnað-
inum um borð.
Starfshópur skipaður
Þáttaskil urðu árið 1996 þegar
þáverandi samgönguráðherra,
Halldór Blöndal, skipaði starfshóp
um málið.
Hlutverk hans var að skila
álitsgerð m.a. um þær kröfur, sem
gera þarf til þessa búnaðar og
hvernig hægt væri að framfylgja
þeim. I skýrslu starfshópsins var
lagt til að nokkrum ákvæðum í
þáverandi reglum, sem snúa að
Tilraunir gerðar með Sigmundsbúnað
losunar- og sjósetningarbúnaði,
yrði breytt. Jafnframt var lagt til
að viðurkenningarkröfum Sigl-
ingastofnunar yrði breytt. í maí
1997 var síðan gefin út reglugerð
(337/1997) í samræmi við tillögur
starfshópsins. Að þessu búnu vann
Siglingastofnun í samvinnu við
þriggja manna undirnefnd fyrr-
greinds starfshóps að skilgrein-
ingu á prófunaraðferðinni.
Síðar sama ár var óskað eftir
því að Iðntæknistofnun Islands
endurskoðaði prófunarferlið,
þannig að hægt yrði að viður-
kenna losunar- og sjósetningar-
búnað í samræmi við nýjar reglur.
Prófunaraðferð skilgreind
I júlí 1998 sendi Siglingastofnun
út þær prófunar- og viðurkenning-
arkröfur sem stofnunin gerir til
losunar- og sjósetningarbúnaðar
gúmmíbjörgunarbáta íslenskra
skipa. Framleiðendum var þá
þegar gerð grein fyrir að þeir
þyrftu að fá vottun á búnað sinn
og að Iðntæknistofnun gæti annast
það verkefni.
Þrjú fyrirtæki í prófunarferli
Þrjú íslensk fyrirtæki hafa fram til
þessa tekið þátt í prófunarferlinu.
Þessi fyrirtæki eru Varðeldur í
Kópavogi, Vélaverkstæðið Þór
(Sigmund) í Vestmannaeyjum og
Olsen í Keflavík.
Búnaður Varðelds og Sig-
munds hefur nú þegar fengið
viðurkenningu Siglingastofnunar
og búist er við að Olsen búnaður-
inn öðlist viðurkenningu síðar á
þessu ári.
Sjá nánar bls. 5
Hugarfarsbreyting sjómanna
Hugarfarsbreyting sjómanna er stærsta breytingin sem
orðið hefur á undanfömum áratugum í öryggismálum
sjómanna, segir Sigmar Þór. bls. 3
Galileo og GPS
ESB tekur ákvörðun í júní um hvort farið verði í
rekstur á gervihnattakerfi I samkeppni við bandaríska
GPS kerfíð. bls. 4