Til sjávar - 01.06.1999, Blaðsíða 3
Spjallið
Hugarfarsbreyting sjómanna
stærsta breytingin
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson í spjalli um öryggismál sjómanna
Sigmar Þór Sveinbjörns-
son er sá fyrsti sem
tekinn er í „Spjall“ á síðum
Til sjávar. Framvegis verður
„Spjallið" fastur þáttur í efni blaðsins.
Hvenœr liófnst afskipti þín af
öryggismálum sjómanna? „Það var í
kringum 1968-69 í kjölfar sjóslyss þar
sem margir félagar mínir fórust. Síðan hef
ég tengst þessum málum órjúfandi
böndum."
Hver finnst þér vera megin-
breytingin sem átt liefur sér
stað á þessum tíma? „Það er
fyrst og fremst hugarfars-
breyting sjómannanna sjálfra.
Hér áður fyrr var gert grín að
þeim mönnum sem hugsuðu
um öryggismál en því er ekki
að heilsa í dag, þvert á móti,
og það má ekki síst þakka
Slysavarnaskóla sjómanna. Siglingastofn-
un og forveri hennar hafa einnig sinnt
mikilvægu hlutverki við fræðslu og
upplýsingamiðlun."
A síðustu árum hefur sjóslysum fœkkað,
sérstaklega dauðaslysum. Hvað skýrir þá
þróun? „Það eru margir aðilar sem koma
að slysavörnum sjómanna og skiljanlega
vilja allir eiga hlutdeild í árangrinum.
Sjálfur hef ég í yfir 20 ár, ásamt félögum
mínum í Vestmannaeyjum, barist í þessum
málum og með nokkrum árangri að okkar
mati. Nefna má baráttu okkar fyrir marg-
umtöluðum sleppibúnaði gúmmíbjörg-
unarbáta sem hefur bjargað 22 sjómönnum
frá árinu 1981. Þetta hefur komið fram í
sjóprófum undanfarinna ára og segja má
með sanni að þetta eigi sinn þátt í fækkun
dauðaslysa á sjó. Ég fagna því sérstaklega
að sleppibúnaðarmálið er loksins til lykta
leitt eða ég vona að svo sé.
Það er fleiri aðilar sem hafa átt þátt í að
bjarga sjómönnum frá dauða. Ég vil nefna
fyrst þyrlur Landhelgisgæslunnar, ekki
hvað síst nýju þyrluna, TF Líf, og áhöfn
hennar sem bjargað hefur tugum sjómanna
t.d. í hinni frækilegu björgun áhafnar
Dísarfellsins sem fórst 9. mars 1997 og í
sömu viku áhöfnum Víkartinds og
Þorsteins GK, alls 39 sjómönnum.
Einnig má nefna að eftirlit með skipum
hefur verið hert og þar vil ég sérstaklega
nefna stöðugleikaátakið sem
hófst 1992 með stöðugleika-
mælingum á minni þilfars-
skipum um allt land. Og á
síðustu tveimur árum hefur
sambærilegt átak verið í
stærri skipum. Þetta átak
Siglingamálastofnunar og
síðar Siglingastofnunar
hefur án efa átt þátt í að
færri dauðaslys hafa orðið á síðustu árum.
Enn fleiri þætti mætti nefna og ekki
síst Slysavamaskóla sjómanna sem unnið
hefur mjög gott starf og sömuleiðis
loftskeytamenn strandastöðva, sem sjaldan
fá hrós fyrir sitt mikilvæga starf í
tengslum við sjóslys. Auðvitað koma fleiri
aðilar og þættir til, sem stuðla að færri
dauðaslysum en í stuttu viðtali er því
miður ekki hægt að telja alla upp.“
Hver eru helstu verkefnin framundan
sem taka þarfá? „Það er mjög margt sem
hægt er að gera í því skyni að fækka
sjóslysum. Siglingastofnun hefur þar verk
að vinna og ég vona að hún eigi í
framtíðinni eftir að standa sig vel í að
gæta öryggis sjómanna við íslands-
strendur. Hún hefur alla burði til að gera
það.“
Sú ánægjulega þróun hefur átt sér stað undanfarin ár
að dauðaslysum til sjós hefur fækkað allverulega og
binda menn vonir við að hér sé um varanlega
tilhneigingu að ræða. Enga einhlíta skýringu er að
ftnna og vafalaust margir samvirkandi þættir sem
skiia árangri. Til sjávar fékk Sigmar Þór
Sveinbjörnsson í stutt spjall um þessa þróun og
almennt um öryggismál sjómanna.
Sigmar, sem er fæddur 1946 í Vestmannaeyjum, er
einn þeirra manna sem er vakinn og sofinn yfir
öryggismálum sjómanna. Hann var lengi til sjós á
ýmsum bátum frá Veslmannaeyjum og stýrimaður á
Herjólft. Einnig gegndi Sigmar starfí umdæmisstjóra
Siglingastofnunar í Vestmannaeyjum í 5 ár. Um
þessar mundir er Sigmar starfsmaður stofnunarinnar
í Kópavogi.
Vitavarðaskipti
Nýr vitavörður á Bjargtöngum...
Vitavarðarskipti hafa orðið á
Bjargtöngum. Jónas Hörðdal Jónsson
hefur látið af störfum og við hefur tekið
Keran Stueland Ólason. Hann er frá
Geitagili í Örlygshöfn. Keran keypti
jörðina Breiðavík af Jónasi og hefur hafið
búskap þar.
... líka í Dyrhólaey
Stefán Gunnarsson, vitavörður í Dyr-
hólaey, er að láta af störfum og í stað
hans kemur um stundarsakir Þorsteinn
Gunnarsson, bróðir Stefáns, á Vatns-
skarðshólum.
Óli aftur á Horn?
Ólafur Þ. Jónsson, fyrrverandi vitavörður
á Hornbjargi, starfar í sumar við land-
vörslu á Horni og sinnir einnig þjónustu
við ferðamenn. Óli mun dvelja í vita-
varðarhúsinu.
sigling.is nýtur ntikilla vinsælda
Vefsetur Siglingastofnunar, www.
sigling.is, nýtur vaxandi hylli. Langmest
umferð er inn á upplýsingakerfið um
veður og sjólag og er komið inn á þá síðu
um 8.000 sinnum í hverjum mánuði.
Umsókn samþykkt
A aðalfundi Parísarsamkomulagsins um
hafnarríkiseftirlit í Stokkhólmi í maí var
umsókn íslands um fulla aðild að
samkomulaginu samþykkt.
Nýr starfsmaður
I móttöku á skrifstofusviði er kominn nýr
starfsmaður, Þórlaug Haraldsdóttir, sem
hóf störf í aprfl sl.
Hafnarframkvæmdir á Djúpavogi
Hafnaáætlun gerir ráð fyrir að hafnar
verið framkvæmdir árið 2000 við nýjan
viðlegukant við fiskimjölsverksmiðjuna,
sem stendur við Innri Gleðivík. Sam-
gönguráðuneytið hefur nú heimilað að
framkvæmdunum verði flýtt þannig að
byrjað verði á verkinu þegar á þessu ári.
A Siglingastofnun er nú unnið að gerð
frummatsskýrslu um mat á umhverfis-
áhrifum framkvæmdarinnar og gert er ráð
fyrir að henni verði skilað til skipulags-
stjóra ríkisins í þessum mánuði.
3