Til sjávar - 01.06.1999, Síða 7
Kynning á starfsmönnum
Nýir starfsmenn og aðrir með mikla reynslu
T”"T lestir starfsmenn sem kynntir eru í þessu
-L fréttabréfi vinna á skoðunarsviði, ýmist við
skipaskoðun og/eða tœknilegt eftirlit. Einnig eru
tveir aðrir starfsmenn kynntir, annar á mjög
langan starfsaldur að baki en hinn er nýbyrjaður.
Með þessu fréttabréfi hafa nœr allir núverandi
starfsmenn stofnunarinnar verið kynntir og þegar
yfirreiðinni er lokið verða því framvegis kynntir
nýir starfsmenn hjá Siglingastofnun. í nœsta
tölublaði kynnum við fastráðna starfsmenn í
vitavörslu um all land.
Bragi Oskarsson,
tæknifræðingur, skoð-
unarsviði. Fæddur f
Reykjavík 27. mars
1935. Bragi er raf-
magnstæknifræðingur
frá Tækniskólanum í
Arósum 1970. Vann hjá Birch & Krogboe,
Arósum, 1970-1975, hjá Cargolux í Lúxemborg
1975-1985, var sjálfstætti starfandi ráðgjafi 1985-
1991 og hóf störf hjá Siglingamálastofnun ríkisins
1991. Bragi er kvæntur Sonju Hákansson,
myndlistarmanni, og eiga þau tvö böm.
Gísli Þórður Elíasson,
tæknifræðingur, skoð-
unarsviði. Fæddur 3.
mars 1951 í Hafnarfirði.
Gísli er skipatækni-
fræðingur frá Helsingör
Teknikum í Danmörku
1979. Vann sem ráðgefandi tæknifræðingur,
aðallega í olíuiðnaðinum, í Noregi og Danmörku
til ársins 1996. Kom til starfa hjá Siglingamála-
stofnun sama ár. Gísli er kvæntur Aðalbjörgu
Þóreyju Ólafsdóttur, ljósmóður og hjúkrunar-
fræðingi.
Ólafur Aðalsteinsson,
skipasmiður, skoð-
unarsviði. Fæddur í
Reykjavík 27. apríl
1937. Starfaði hjá
Slippfélaginu í Reykja-
vík 1954-1969 og lærði
þar skipasmíði. Var í Svíþjóð 1969-1972, en kom
þá til starfa hjá Siglingamálastofnun ríkisins.
Steingrímur Hauks-
son, verkfræðingur,
skoðunarsviði. Fæddur
1. maí 1959 á Sauðár-
króki. Steingrímur er
véltæknifræðingur frá
Odense Teknikum 1986
og lauk MSc prófi frá DTU í Kaupmannahöfn í
vélaverkfræði 1996. Áður en Steingrímur kom til
starfa hjá Siglingastofnun í desember 1998 vann
hann hjá St. Ö. Stefánssyni verkfræðistofu og áður
hjá Hönnun hf. Hann er kvæntur Maggý Dögg
Emilsdóttur, kjólameistara, og eiga þau tvö börn.
Þórarinn Jónsson,
tæknifræðingur, skoð-
unarsviði. Fæddur 17.
maí 1939 í Norður-
Múlasýslu. Þórarinn er
með sveinspróf í véla-
virkjun og er véltækni-
fræðingur frá Tækniskóla Islands og Aalborg
Teknikum 1970. Hann hóf störf hjá Siglinga-
málastofnun rfkisins árið 1986. Áður starfaði hann
hjá Burmeister & Wein í Kaupmannahöfn og hjá
Stálvík hf. Þórarinn er kvæntur Ásdísi R.
Guðmannsdóttur og eiga þau fjögur börn.
Skip verðlaunuð á Sjómannadaginn 6. júní 1999
t T~'ins og undanfarin ár —J—/verðlaunar Siglinga- Skip sem hlutu viðurkenningu í ár voru:
stofnun eigendur og áhafnir þeirra skipa sem taldar eru 0994 Ámes RE
1279 Brettingur NS-050
hafa sýnt góða framkvæmd á öryggis- 1412 Harðbakur EA-303
reglum og umhirðu á undanfömum árum. 1483 Skeiðfaxi AK
Viðurkenningin á að vera hvatning fyrir 1674 Sóley SH-124
áhöfn og eigendur skipa til að halda 1979 Þorsteinn BA-001
þessum málum í sem bestu horfi. 2020 Þómnn Sveinsdóttir VE-401
Yrsa Ingibjörg Vil-
hjálnisdóttir, gjald-
keri, skrifstofusviði.
Fædd í Reykjavík 1.
ágúst 1934. Lauk stú-
dentsprófi frá Versl-
unarskóla íslands 1954.
Ingibjörg hóf störf hjá Vita- og hafnamálastofnun
1967 og hefur starfað hjá stofnuninni síðan.
Ómar Kristmannsson,
útiverkstjóri, vitasviði
Fæddur 5. október 1949
í Vestmannaeyjum.
Ómar lauk 2. stigs
fiskimannaprófi frá
Stýrimannaskólanum f
Vestmannaeyjum 1974. Starfaði sem skipstjóri við
eigin útgerð áður en hann hóf störf hjá Siglinga-
stofnun í janúar 1999. Ómar er kvæntur Sonju
Hilmarsdóttur og eiga þau fjóra syni.
Steingríniur D. Sig-
urðsson, umdæmis-
stjóri í Vestmanna-
eyjum, skoðunarsviði.
Fæddur á Siglufirði 4.
janúar 1942. Útskrifað-
ist sem mótorvélstjóri á
Akureyri 1959 og úr Stýrimannaskólanum í
Reykjavík 1964. Steingrímur hefur starfað við
sjómennsku í rúm 40 ár, lengst af sem skipstjóri.
Hann hóf störf sem umdæmisstjóri skoðunarsviðs
Siglingastofnunar í Vestmannaeyjum í júní 1998.
Steingrímur er kvæntur Guðlaugu Ólafsdóttur,
leikskólakennara, og eiga þau fjögur börn.
7