Til sjávar - 01.09.2002, Side 1
3.-4. tbl. 6 árg. september 2002
Fréttabréf S i g I i n g a s tof n u n a r
1
Öryggisvika
sjómanna
Alþjóðasiglingadagurinn á ísland
Öryggisvika sjómanna
3-4
Æfingar um
borð í skipum
Dagana 26. september til 3. októ-
ber 2002 verður haldin öryggis-
vika sjómanna í tengslum við ár-
legan alþjóðasiglingadag Alþjóða-
siglingamálastofnunarinnar, ÍMO.
5-6
Áætlun um
æfingar
7-8
Eldvarnir í
skipum
Að undirbúningi öryggis-
vikunnar standa sam-
gönguráðuneyti, Siglinga-
stofnun Islands, Slysavarnaskóli
sjómanna, Landhelgisgæsla
Islands, Samband íslenskra kaup-
skipaútgerða, Landssamband
íslenskra útvegsmanna, Lands-
samband smábátaeiganda,
Farmanna- og fiskimannasamband
Islands, Vélstjórafélag Islands,
Sjómannasamband Islands og
Reykjavíkurhöfn.
Æfingar og slysavarnir
I öryggisvikunni verður megin-
áherslan lögð á æfingar og
slysavarnir um borð í skipum.
Öryggisdagur sjómanna verður
haldinn laugardaginn 28. sept-
ember og verður þá ýmislegt um að
vera við Reykjavíkurhöíh.
Þriðjudaginn 1. októberkl. 13:00
verða haldnar æfingar um borð i
öllum íslenskum skipum. Starfs-
menn Slysavamaskóla sjómanna
munu leiðbeina um æfingar í
öryggisvikunni.
Búið er að útbúa gátlista íýrir
áhafnir skipa um æfingar og er
honum dreift með fréttabréfinu,
sjá bls. 5 til 6.
Ráðstefna
Vikunni lýkur svo með ráðstefnu,
sem haldinn verður fimmtudaginn
3. október, um aukið öryggi
sjófarenda.
Til ráðstefnunnar er boðið þeim
aðilum sem að öryggismálum
sjómanna koma á einn eða annan
hátt.
A dagskránni verða Ijöhnörg
erindi um öryggismál sjómanna.
Siglingastofnun Islands vill
hvetja sjómenn, útgerðarmenn og
alla þá sem láta sig varða öryggis-
mál sjófarenda til að taka virkan
þátt í dagskrá vikunnar, en hún
verður nánar auglýst á heimasíðu
Siglingastoftiunar.
9-10
Fallhætta
í skipum
11-12
Nýliða-
fræðsla
13-14
Öryggi við
hífingar
Úr bæklingunum Nýliðafræðsla og Æfingar um borð í skipum.
15
Sjómenn! Munið æfinguna 1. október kl. 13:00!
Slysavarnir
í höfnum
Blaðið er að þessu sinni helgað öryggismálum öryggismál sem gefnir eru út í tengslum við lang-
sjófarenda. Með blaðinu fylgja fræðslubæklingar um tímaáætlun í öryggsmálum sjófarenda 2001-2003.