Til sjávar - 01.09.2002, Page 16
Vitar á íslandi fæst í mörgum bóka-
verslunum. Auk þess er hægt að panta
bókina hjá útgefanda og fá hana senda í
pósti, síminn er 560 0000.
Verð kr. 7.650 með vsk.
Útgáfa og dreifing:
SIGLINGASTOFNUN
Vesturvör 2, 200 Kópavogi, sími 560 0000
Vitar á fslandi
Þann 1. desember 1878 var íslenska skammdegismyrkrið í fyrsta
sinn rofið af vitaljósi þegar tekinn var í notkun landsins fyrsti viti
á Valahnúk á Reykjanesi. Vitalýsing var forsenda þess að hægt
væri að halda uppi siglingum til (slands að vetrarlagi og um langt
skeið voru vitarnir meðal mikilvægustu leiðsögutækja sjófarenda.
Bókin Vitar á íslandi er menningarsögulegt rit um sögu og þróun
vitamála á íslandi og í henni er að finna fjölda mynda og teikninga
auk umfjöllunar um alla íslenska vita.
Allt frá því fyrsta íslenska vitaljósið var tendrað hafa Ijós vitanna
klofið nætursortann og vitageislar vísað sjófarendum örugga
leið. Ljós vitanna hafa mörgu sjómannslífi borgið og bygging
og reksturvita og annarra leiðsögumannvirkja hefureflt
öryggi sjófarenda meira en flest annað.
íslandi er saga íslensku vitaþjónustunnar rakin frá upphafi,
fjallað um vitaskipin og þátt vitavarðanna, breytileg vitatækni
er skýrð og skilgreind og hér er fjallað um byggingarlist
íslenskra vita og tengsl byggingarstíls þeirra við strauma og
stefnur í byggingarlist á hverjum tíma.