Neytendablaðið - 01.02.2000, Síða 2
Leiðari
Lög um innheimtustarfsemi sem fyrst
Fyrir nokkrum árum fengu
Neytendasamtökin til um-
sagnar erindi frá Samkeppn-
isstofnun. Þar var spurt um
álit Neytendasamtakanna á
því hvort banna ætti Lög-
mannafélagi íslands aö gefa
út leiðbeinandi veröskrá um
útselda þjónustu lögmanna.
Ástæöan fyrir þessu var sú
aö verðlagning á þjónustu
lögmanna var frjáls og því
þótti óeðlilegt aö þeir notuöu
sameiginlega veröskrá, enda
eru slíkar veröskrár aö mati
margra til þess fallnar aö
halda verðlagi uppi og hindra
samkeppni.
í umsögn sinni féllust
Neytendasamtökin á aö eðli-
legt væri aö banna útgáfu
leiðbeinandi veröskrár, og
tóku undir þaö sjónarmiö aö
eðlilegt væri aö lögmenn
kepptu sín á milli í veröi. Þó
var á þaö bent aö um inn-
heimtustarfsemi þyrftu aö
gilda sérstakar reglur.
Ástæöan er ofur einföld: Þaö
er ekki skuldarans aö velja
hver innheimtir skuld sem
hann hefur ekki staðið í skil-
um meö, þaö gerir eigandi
skuldarviöurkenningarinnar.
Neytendasamtökin töldu í
svari sínu nauðsynlegt aö
setja lög um innheimtustarf-
semi þar sem meöal annars
væru ákvæöi um hámark á
þá þóknun sem innheimtu-
aðilar mega taka.
Nú hefur viðskiptaráð-
herra í þrígang lagt fram á al-
þingi stjórnarfrumvarp um
innheimtustarfsemi. Frum-
varpiö hefur þó ekki enn ver-
iö afgreitt og því miður hefur
viðskiptaráðherra ekki lagt
þetta frumvarp fram á yfir-
standandi þingi. Neytenda-
samtökin telja meö öllu óá-
sættanlegt aö slíkt frumvarp
skuli ekki lagt fram og af-
greitt. Meö frumvarpinu er
einungis veriö aö reyna aö
tryggja rétt lítilmagnans í ís-
lensku þjóöfélagi. Meö því
aö afgreiða ekki frumvarp
um slíkt réttlætismál sem er
hér til umræöu eru alþingis-
menn aö láta innheimtuaðila
vita aö þeir geti gert eins og
þeim sýnist.
Þingmenn
eru einfald-
lega aö
veita inn-
heimtu-
mönnunum
veiðileyfi á
þá einstak-
linga sem
oftar en ekki mega sín
minnst.
Neytendasamtökin hafa
ítrekaö bent á aö í flestum
nágrannalanda okkar, þar á
meöal alstaðar annarstaöar
á Noröurlöndum, hefur lög-
gjafarvaldið taliö eöilegt aö
setja skýrar reglur um inn-
heimtustarfsemi og jafnframt
sett þak á innheimtuþóknun.
Viö búum aö mörgu leyti viö
svipaöa löggjöf og frændur
okkar Danir og þar er aö
sjálfsögöu búiö aö setja slík
lög.
Auk þess aö setja þak á
þóknunina eru slík lög nauö-
synleg til aö ákvaröa
ákveönar reglur um þaö ferli
sem fer í gang þegar skuld-
ari getur ekki staöiö viö
skuldbindingar sínar. Þetta
er eölilegt, enda er oft mikið í
húfi fyrir skuldarann, jafnvel
íbúö hans aö veði. Því þarf
löggjafinn aö veita inn-
heimtuaöilum nauðsynlegt
aöhald meö því aö setja
ákveðnar reglur sem þeir
veröa aö fara eftir. Neyt-
endasamtökin telja þaö meö
öllu ótækt aö innheimtulög-
menn geti staðið í vegi fyrir
því aö sett séu lög um þetta
efni. Oft hefur veriö bent á aö
þrýstihópar hafi talsvert aö
segja þegar veriö er aö
ganga frá ýmsum reglum.
Neytendur eru dreiföur hópur
og því auðveldara fyrir þing-
menn aö hunsa réttlætismál
þeirra. Því verður þó ekki trú-
aö aö óreyndu aö fámennur
þrýstihópur innheimtulög-
manna geti hindraö aö frum-
varp til laga um innheimtu-
starfsemi veröi aö lögum.
Neytendasamtökin hvetja
hinn nýja viðskiptaráðherra,
Valgeröi Sverrisdóttur, til aö
leggja þetta frumvarp fram
sem allra fyrst. Jafnframt þarf
aö tryggja aö alþingi afgreiöi
frumvarpiö á sem skemmst-
um tíma. Ef viðskiptaráð-
herra treystir sér ekki til aö
tryggja framgang þessa máls
ber honum sem æösta
manni samkeppnismála aö
sjá til þess aö samkeppnisyf-
irvöld setji reglur þar sem
ákveöiö þak er sett á inn-
heimtuþóknun. Allt annaö er
óásættanlegt og til vansa,
bæöi fyrir löggjafar- og fram-
kvæmdavaldiö.
Jóhannes Gunnarsson
Efnisyfirlit
Frá kvörtunar-
þjónustunni 3
í stuttu máli 5
Verð - gæði:
Mikill hljómur í litlu
samstæðunum 9
DVD - mynd-
geislaspilar 10
Litlar myndavélar
með fastri linsu 18
Höfundaréttur og
hugbúnaður 15
Umhverfismálin:
Svanurinn óþekktur á
íslandi 16
Rætt við umhverfis-
ráðherra um kynningu
á svaninum 16
Mikill verðmunur
á filmum og
framköllun 22
Neytendasamtökin
skipta um aðsetur 24
Tímarit Neytendasamtakanna, Síðumúla 13,108 Reykjavík, s. 545 1200. Netfang: ns@ns.is
Veffang: http://www.ns.is Ábyrgðarmaður: Jóhannes Gunnarsson. Umbrot: Blaðasmiðjan.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Pökkun: Bjarkarás. Upplag: 20.000. Blaðiö er sent öllum félags-
mönnum í Neytendasamtökunum. Ársáskrift kostar 2.800 krónur og gerist viðkomandi þá um leið
félagsmaður í Neytendasamtökunum. Heimilt er að vitna í Neytendablaðiö í öðrum fjölmiölum sé
heimildar getið, óheimilt er þó aö birta heilar greinar eða töflur án leyfis Neytendasamtakanna.
Upplýsingar úr Neytendablaðinu er óheimilt að nota í auglýsingum og viö sölu, nema skriflegt leyfi
Neytendasamtakanna liggi fyrir. Neytendablaðið er prentað á umhverfisvænan pappír.
2
NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 2000