Foringinn - 01.11.1964, Síða 14
Hátíðafundur Ljósálfa
Dagskrár fyrir hátíðafundi eða aðr-
ar skemmtanir hljóta ávallt að verða
eins mismunandi og foringjarnir eru
margir. Þess vegna er ekki gott að
koma með neinar ákveðnar tillögur
um uppbyggingu dagskrár.
Eftirfarandi er aðeins til þess að
minna á og gefa nokkur ráð, sem gott
er að hafa í huga. — Ljósálfaforingj-
ar ættu alltaf að undirbúa dagskrá og
hátíðafundina í heild í samráði við
ljósálfana. — Ef gestum er boðið og
veitingar hafðar um hönd, þá þarf
einn hópurinn að sjá um að dúka
borðið smekklega, annar hópurinn sér
um að skreyta borðið og útbúa borð-
skraut. Þriðji hópurinn gengur um
beina og sá fjórði þvær upp. — Ef
mikið er um dýrðir og margt gesta,
þá þarf að fá aukahjálp og er þá gott
að geta komið sér vel við nokkrar
skátastúlkur í deildinni og fá hjálp
við t. d. framreiðslu og uppþvott.
Gott að hafa í huga:
að undirbúa í tíma,
að fá aukahjálp,
að ljósálfarnir sjálfir hafa oft margar
góðar hugmyndir um dagskráratriði,
Framh. á bls. 13.
14 FORINGWN