Bændablaðið - 06.05.1997, Page 8

Bændablaðið - 06.05.1997, Page 8
8 Bændablaðið Þriðjudagur 6. maí 1997 Viðbrögð og varnir júgursins gegn sýkingu Algengasta orsök júgurbólgu er bakteríusýking. Júgurbólgusýkl- amir komast inn í júgrið um spena- opið. Júgrið hefur yfir ýmsum að- ferðum að ráða við að hindra slíka innrás, m.a. framleiðslu á ýmsum efnum sem hafa bein eða óbein áhrif á sýklana og hringvöðvinn sem lokar spenaopinu gegnir einnig mikilvægu hlutverki í þessu tilliti. Þessi vöðvi slaknar við mjaltir þannig að speninn opnast og er mikið opinn fyrsta hálftím- ann eftir mjaltir og hefur ekki lokast fullkomlega fyrr en eftir u.þ.b. 2 klst, það er því á þessum tíma sem mest hætta er á að smit berist upp í júgrið. Þess vegna er mjög mikilvægt að kýmar hafi þurra og hreina bása að leggjast í eftir mjaltir. Við skaða á hring- vöðvanum, t.d. við spenastig, eykst hætta á sýkingu mjög mikið. Þeir þættir sem auka hættu á spenastigi em t.d. hált gólf, allt sem heftir eðlilegar hreyfingar kúnna við að standa upp, myrkur, veikir/aumir fætur, léleg klauf- hirða, sítt júgur o.fl. Júgurbólgusýklamir hafa líka margar aðferðir til að vinna á vam- arkerfi júgursins og búa um sig í júgurvefnum. Sumar sýklategundir hafa yfir fjölbreyttari brögðum að ráða en aðrar, sem gera þær ill- skeyttari og erfiðari viðureignar fyrir kúna. Við innrás sýkla í júgr- ið streyma hvít blóðkorn um blóð- rásina frá beinmerg til júgursins. Eru mjaltakonurnar farnar? Góður mjaltamaður er lykillinn að góðu júgurheilbrigði, ekki fínar mjaltavélar. Gagnslaust er að fá slœmum mjaltamanni fínar vélar. Vel gengur góðum manni með góðar vélar. Þetta er ekki marklaus áróður, heldur stað- reynd. Þegar við heyrum orð eins og dráttarvélar, heyvinnuvélar, rúllubindivélar eða mjaltavélar þá tengjum við þau í huganum við bú- skaparhœtti nútímans, vinnuhag- rœðingu og tímasparnað. Dráttarklárar, orf, hrífa, klyfj- ar og mjaltakonur heyra fortíðinni til og þá e.t.v. hluti af sveita- rómantikinni líka. Af allri vélvœðingunni hlutust róttœkar breytingar á búskapar- háttum með tilheyrandi kostum og ókostum. Af öllum þessum „vélum “ hefur ein þá sérstöðu að vera gerð til þess að hanga á mjólkurkú, og vera í samneyti við dýrið í 5-8 mínútur tvisvar á dag við mjöltun. Þessi vél er mjaltavélin. Mjaltavélin er því miður ekki svo fullkomin, að hún hafi til að bera mannlega eiginleika forveru sinnar mjaltakonunnar, svo sem sjálfstæða hugsun, tilfinningar, nœmni og þá ekki síst mannlega hlýju í garð dýrsins. Mjaltavélin raufað miklu levti þau sterku bönd sem bundu saman mann og dýr, þar sem nœrgœtnar hendur mjaltakonunnar skynjuðu óðar ef eitthvað var að, og hjörtu manns og dýrs urðu samslátta með tilheyrandi trausti dýrsins á manninum og vœntumþykju mannsins á dýrinu. Bœndur hafa nú minni tíma fyrir hvern einstakling í hjörðinni, hver kýr skiptir minna máli. Horfin er mjaltakona. Ég nálgast umfjöllunarefnið á þennan hátt til þess að undirstrika að gamli "mjaltakonu-þátturinn " Þau gegna m.a. því hlutverki að gleypa og eyða bakteríunum. Hvítu blóðkomin em frumumar sem valda hækkun á „fmmutölu“ við júgurbólgu. Einkenni júgurbólgu Efni sem myndast í átökum vamarkerfis júgursins og sýklanna valda bólgubreytingum í júgurvefnum. Til að byrja með eykst blóð- streymi í háræðum og Auður L. Arnþórsdóttir, dýraleeknir, Hvanneyri þær verða lekar, vökvi safnast fyrir í vefnum og hvít blóðkom streyma út. Dæmigerð bólgueinkenni koma í ljós: Hiti og roði - vegna aukins blóð- streymis, þroti - vegna vökvasöfnunar í vefn- um, eymsli - vegna efna sem erta taugaenda og skert virkni vefjarins og þar með fall í nyt. Bólgan er mismikil og önnur einkenni mis- munandi m.a. eftir því hvers orsök júgurbólg- unnar er. Hún getur ver- ið dulin eða sýnileg og bráð eða langvinn. Við dulda júgurbólgu eru engin sýnileg ein- kenni en við prófun kemur í ljós hækkun á frumutölu. Þegar breyt- ingar sjást á mjólkinni (t.d. striml- ar) og/eða bólgubreytinga verður vart í júgrinu er talað um sýnilega júgurbólgu. Frumutala Frumutala í mjólk úr heil- brigðu júgri er innan við 100.000 frumur/ml. Frumurnar em að mestu leyti hvít blóðkom eins og áður hefur komið fram, sem streyma til júgursins við sýkingu, skaða eða mikið álag á júgurvef- Júgurbólga - leiðbeiningar dýralæknis Júgurbólga - leióbeiningar mjúlkurefdrlitsmanns má aldrei gleymast, og er enn þatm dag í dag mikilvægastur, ef bæta á júgurheilbrigði. Bændur og ráð- gjafar þeirra verða að gera sér grein fyrir mikilvægi þessa þáttar, í látunum við að vél- væða mjaltir þannig að allt sé sjálfvirkt og mannshöndin komi helst hvergi nærri. Hér á eftir verða nefnd helstu atriði í formi einfaldra leið- beininga um búnað til mjalta, sem skipta máli í baráttu okkar að bættu júgurheilbrigði, og til lækkunar frumutölu í mjólk. Ekki verður fjallað nánar um mjaltatækni þó hún vegi þungt í þesum málum. Mörgu verður þó að sleppa svo ekki verði úr of langt mál, en önnur grein um frœðilegu hliðina, virkni, viðhald og hirðingu mjaltabúnaðar mun líta dagsins Ijósfljótlega. Sumu geta bændur sjálfir hugað að og lagfært, annað verða þeir að fá si'na eftirlits eða þjónustumenn til að mæla og lagfæra. Það skiptir gríðarlega miklu máli, að mjalta- kerfin og vélbúnaðurinn vinni rétt, og að bændur geti með minnstri mögu- legri áhættu notað þá miklu tækni sem nú stendur til boða, og allt er gott um að segja, sé hún rétt notuð. Til þess að svo megi verða, þarf að tryggja að reglubundið sé fylgst með ástandi og virkni mjalta- búnaðarins. Mjaltavélar Sogið og sogjafninn. Soghæð hefur á undanfömum árum verið lœkkuð í áföngum, allavega á þeim svæðum sem hafa virkt mjólkur- eftirlit, og hjá þeim sem samið hafa um reglubundnar heimsóknir þjónustumanna. Soghæð á venjulegum rör- mjaltakerfum í tveggja metra hæð ætti ídag ekki að vera hærri en 47- 48 kpa., 44-45 kpa í hálínu mjaltabás, og 41-43 kpa í láglínu- bás og á vélfötum. Þarna er miðað við 14mm innanmál mjólkur- slöngu. Gullvæg regla er að mjólka ný- bærur, kvígur og kýr í með- höndlun, í sérstaka vélfötu, (eina af þessum gömlu) ofiast tengda rörmjaltakerfinu. Setja þarf lítið lóð í vélfötuna 70 grömm til að lækka sog undir Kristján Gunnarsson mjólkur- eftirlitsmaður hjá MsKEA inn. Þó júgurbólga sé oftast af völdum sýkingar er það ekki algilt og því er ekki beint samhengi á milli sýkingar og hárrar frumutölu. Stundum em bólgubreytingarnar (og þar með hækkun frumutölu) ekki af völdum sýkla, júgrið getur hafa orðið fyrir höggi, kramist eða eitthvað annað valdið skaða á júgurvefnum. Önnur skýring getur verið sú að kýrin hafi unnið á sýkingu en júgrið er oft bólgið og fmmutalan há í langan tíma á eftir, eins og áður hefur komið fram. Sýklarannsókn er því nokkuð oft neikvæð þó frumutala sé há. Þegar júgurbólga er af völdum illskeyttra júgurbólgusýkla, s.s. Staphylo- coccus aureus og Streptococcus agalactia, verður oftast mikil fjölgun á frumum, upp fyrir 600.000 fmmur/ml og í bráða hluta sýkingarferilsins getur fmmutalan hlaupið upp í 10 - 20 milljónir fmma/ml. Mildari júgur- bólgusýklar, s.s. kóagúlasa nei- kvæðir Staphylococcar, Streptoc- occus uberis o.fl., valda oftast minni hækkun á frumutölu (200- 500.000 fmmur/ml). Kýr, sem er heilbrigð við upp- haf sýkingar, getur í mörgum til- fellum unnið á sjúkdómnum sjálf og frumutalan komist í eðlilegt horf á stuttum tíma, ef aðbúnaður og fóðrun em góð og ekki er um að ræða illskeyttar bakteríur. Gera má ráð fyrir að frumutalan sé nokkuð há og/eða rokkandi í þrjár til fjórar vikur eftir að júgurbólga hefur verið meðhöndluð. Hve langur tími líður þar til hún lækkar aftur veltur m.a. á því hve miklar spenaenda frá kerfissoginu, úr 48 í 43 kpa. Helstu mjólkurbú og þjónustuaðilar eiga þetta til á lager. Þetta er afar gagnlegt. Látið skipta um sogiafna (sog- ventil) ef þið eruð enn með gömlu gerðina með bláa jámlóðinu, og setjið upp nákvæman membru- jafha, þeir gömlu eru ónákvæmir og eiga það til að festast. Ofhátt kerfissog og tómmjaltir valda þvi', að slímhimna spenaops- ins dregst út og hringvöðvinn í spenanum skemmist, og þar með eyðileggjast náttúrulegar varnir kýrinnar gegn sýkingu. Þar af leiðir, að mikil hœtta er á að við völdum óbætanlegu tjóni, jafnvel á kúm sem eru í eðli sínu júgurhraustar og með góða júgur- byggingu og spenagerð. Munið að eina smitleiðin er upp í gegnum spenaopið, eða sár á spenanum, og því verða spenar að vera óskaðaðir Sogskiptarnir. Nokkrar gerðir eru á markaðinum, vök\’a, raf eða loftknúnir. Algengastir eru vökva- sogskiptar sem áður voru með skiptihlutfalli 70/30 þ.e. 70% í mjöltun á móti 30 i' hvíld, en síðustu ár hafa verið unnið að þvi á flestum svæðum að breyta hlutföllunum i 60/40. Þetta er einföld breyting á sogskiptinum, aðeins þarf að skipta um litla nælonplötu í botninum, en það verður að gerast með alla skiptana iafnt. Eg mæli eindregið með þessari einföldu breytingu, og held að hún skili betri spena. Hreinsa þarf sogskiptana reglulega og hafa með þeim gott eftirlit, sjálfir geta bændur talið slagafjöldann sem á að vera ná- lægt 60 tvöföldum slögum á mínútu, en fösun skiptisins eiga þjónustumenn að mæla, og er mikilvægt að svo nefndur d.fasi sé réttur. Tengikrossinn. í umferð eru margar tegundir og stærðir tengi- krossa, og bændum gengur misvel hvort heldur innra rými tækisins er mikið eða lítið. Þó er augljóslega betra að krossinn hafi sem mest

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.