Bændablaðið - 06.05.1997, Page 24

Bændablaðið - 06.05.1997, Page 24
Baendabkiðið Lífeyrissjóður bænda Útflutningur á hrossum til EES-landa Hæsta ávfixtun eigna undanfarin áp Ársreikningur Lífeyrissjóðs bænda var lagður fram á fundi stjórnar sjóðsins þann 11. apríl sl. Á fundinum kom meðal annars fram að fjöldi sjóðfélaga sem greiddu ið- gjöld til sjóðsins á síðasta ári voru 6.073 en 3.621 sjóðfélagi fékk greiddan lífeyri á árinu. Hrein eign til greiðslu lífeyris nam í árslok 8.164 m.kr. og hækkaði um 10,1% milli ára. Ávöxtun eigna lífeyrissjóðsins var góð á árinu 1996 og var sú hæsta síðastliðin sjö ár. Ávöxtun umfram verðbólgu var 8,71% samanborið við 5,52% ávöxtun árið 1995. Ef hlutabréfaeign sjóðsins hefði verið færð miðað við verðmæti á hlutabréfamarkaði hefði ávöxtun lífeyrissjóðsins orðið 11,09%. Horfumar fyrir árið 1997 eru góðar og má búast við góðri ávöxtun lífeyrissjóðsins ef fram fer sem horfir. Gert er ráð fyrir að Ávöxtun umfram veröbólgu mót. Þetta samstarf lífeyrissjóðs- ins, Verðbréfamarkaðar íslands- banka og Kaupþings hefur þegar skilað góðum árangri og hefur meðal annars leitt til markvissari aðferða við ávöxtun eigna sjóðsins og hærri ávöxtunar. Þegar núver- andi umsjónaraðilar tóku við ávöxtun og vörslu eigna sjóðsins staðfesti stjóm hans fjárfestingar- stefnu til næstu ára. Stefnan felur í sér að allt að 80% af ráðstöfunarfé sjóðsins er notað til kaupa á skuldabréfum ríkisins, sveitarfé- laga og banka og sparisjóða. Að auki er hluta ráðstafað til kaupa á innlendum hlutabréfum og er- lendum verðbréfum. Ný nefnd um málefni Lífeyris- sjóðs bænda var skipuð í ársbyrjun 1996. Skal nefndin vinna að endurskoðun laga um sjóðinn. Ekki hefur enn fengist niðurstaða um framtíðarfyrirkomulag ið- gjalda og mótframlags til sjóðsins þannig að óvissa ríkir áfram um mótframlag til sjóðsins vegna annarra búgreina en sauðfjár- og mjólkurframleiðslu á árinu 1997 og í framtíðinni. Iðgjöld vegna annarra búgreina voru bókuð til fullra réttinda hjá sjóðnum árið 1996 án þess að mótframlag bærist. Mikilvægt er fyrir framtíð- arstarfsgrundvöll sjóðsins, að lausn finnist á þessu máli hið allra fyrsta. Lífeyrissjóðurinn flutti starfsemi sína í byijun árs 1996 úr Húsi verslunarinnar í Bænda- Blóðpróf íelld niúur í desember á síðasta ári voru samþykktar nýjar reglur um innflutning hrossa, sem fædd eru á íslandi, inn á Evrópska efnahagssvæðið. Öll hross sem flutt hafa verið á lönd í EES hafa hingað til þurft að gangast undir blóðpróf (Cogg- ins test) þar sem leitað er að sjúkdómnum „Smitandi blóð- leysi í hrossum" (Equus infectious anemia). Nýju regl- urnar viðurkenna að, þessi sjúkdómur finnst ekki á íslandi. Þessar reglur tóku gildi 17. janúar sl. og því er frá þeim tíma ekki lengur þörf á að taka blóð- sýni til rannsókna á smitandi blóðleysi úr íslenskum hrossum sem flytja á til EES./H Bændur og hestamenn RAFGIRÐINGAR MR búiin • Laugavegi 164 Símar: 5511125 • 552 4355» Fax: 581 4450 hlutabréfaverð haldi áfram að hækka út árið og ekki er búist við umtalsverðum vaxtabreytingum á árinu. Hins vegar er gert ráð fyrir að verðbólga verði meiri en á árinu 1996 eða um 3%. í mars 1996 var samið við Verðbréfamarkað ís- landsbanka og Kaupþing um ávöxtun og vörslu eigna Lífeyris- sjóðs bænda. Hvor aðili um sig tók að sér vörslu helmings eigna sjóðsins en heildareignir hans voru um 8,2 mrð. króna um síðustu ára- Dilkakjðt tíl kaup- enda í 17 IDndum Útflutningur á kindakjöti á vegum Kjötumboðsins á liðnu ári var 2.865 tonn - til kaup- enda í 17 löndum í öllum heimsálfum nema Ástralíu. Dilkakjöt var 2.427 tonn þar af nokkur hundruð tonn neytendapökkuð og ærkjöt 438 tonn. Til Færeyja fóru 79 tonn af sviðum og 18 tonn af innmat auk þess rúllupylsa, saltkjöt og fleiri unnar vörur í neytenda- pakkningum. Af lambaeistum fóru 8 tonn til Bandaríkjanna. Úr- beinað hrossakjöt var 10 tonn til Japans og 18 tonn með beini til Danmerkur. Húðir og skinn voru 66 tonn, selskinn 500 stk., kálfsmagar 1000 stk. og æðardúnn 714 kg. Útflutningur á innmat í gæludýrafóður var 48 tonn. Auk þessa var flutt út smávægilegt af öðrum vörum. höllina við Hagatorg. Fram- kvæmdastjóri lífeyrissjóðsins er Sigurbjörg Bjömsdóttir. Varnarsvæði: 1. Landnámshólf 2. Borgarfjarðarhólf syðra 3. Borgarfjarðarhólf nyrðra 4. Mýrahólf 5. Hnappadalshólf 6. Snæfellsnesshólf 7. Dalahólf syðra 8. Dalahólf nyrðra 9. Steingrímsfjarðarhólf 10. Reykjanesshólf 11. Miðvestfjarðahólf 12. Vestfjarðahólf 13. Rauðasandshólf 14. Arnarfjarðarhólf 15. Miðfjarðarhólf 16. Vatnsnesshólf 17. Húnahólf 18. Skagahólf 19. Skagafjarðarhólf 20. Eyjafjarðarhólf vestra 21. Eyjafjarðarhólf eystra 22. Skjálfandahólf 23. Öxarfjarðarhólf 24. Sléttuhólf 25. Norðausturlandshólf 26. Héraðshólf 27. Austfjarðahólf 28. Suðurfjarðahólf 29. Suðursveitarhólf 30. Öræfahólf 31. Síðuhólf 32. Skaftártunguhólf 33. Álftavershólf 34. Mýrdalshólf 35. Rangárvallahólf 36. Árnesshólf Tilraunastöðin á Keldum og Yfirdýralæknir. Litamerking búfjár á íslandi SvæðaskiDtina

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.