Bændablaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 10.12.2002, Blaðsíða 8
8 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 10. desember 2002 Asýnd bvggðar um aldamðt Þau eru ófá sveitaheimilin í landinu sem skarta loflmyndum af jörðinni eftir ljósmyndarann Mats Wibe Lund. Um langt árabil hefur hann stundað það að taka ljós- myndir af bújörðum, bæði þeim sem eru í byggð og þeim sem famar eru í eyði. Hann á orðið gífúrlegt safn af slíkum myndum, svo ekki sé minnst á aðrar myndir hans af þéttbýli og landsiagi. Nú vinnur hann að því að gera þetta safh aðgengilegt almenningi með því að setja það á Netið undir heitinu Ásýnd byggðar um aldamót. Bændablaðið sótti Mats heim í Árbæinn nú á dögunum og innti hann eftir þessu verkefhi, en fyrsta spumingin var um það hvenær hann hefði byijað að taka myndir af sveitabæjum og hvers vegna. Að kynnast fólkinu í landinu „Ég flutti alkominn til landsins árið 1966, en var þá búinn að vera hér með annan fótinn í tólf ár. Ég starfaði sem blaðamaður og ljósmyndari og tók fyrst og fremst myndir sem tengdust landkynningu og nýttust með greinunum sem ég skrifaði fyrir blöð á Norðurlöndum og víðar. Svo var það í kringum 1980 að ég fór í flugferð til að taka myndir. Veðrið var dýrðlegt og Fljótshlíðin svo falleg að ég tók myndir af bæ eftir bæ. Eftir á velti ég því fyrir mér hvemig ég ætti að koma þessu á framfæri og fékk þá hugmynd að stækka myndimar, fara með þær á bæina og bjóða til kaups. Þetta var ákveðin áhætta en mér var vægast sagt tekið opnum örmum. Þetta varð mér hvatning til að halda áffarn, ekki bara til þess að selja myndir heldur var þetta ekki síður leið til þess að kynnast fólkinu í landinu. Sums staðar vom menn vissulega mjög uppteknir en annars staðar höfðu þeir betri tíma og þá gafst mér tækifæri til að fræðast um mannlífið í sveitinni, landslagið og svo framvegis.“ Síðan hefur Mats stundað þessar loftmyndatökur meðffam öðmm störfum og nú orðið em ekki margir hvítir blettir eftir á íslandskorti hans. Honum telst til að hann vanti einungis um 100 býli sem em í byggð. Það sem helst vantar em bæir austur á Fljótsdalshéraði. Auk þess hefur hann tekið fjölmargar myndir af eyðibyggðum, til dæmis á Norður- og Austurlandi þar sem stór svæði fóm í eyði eftir Öskjugosið 1875. Einnig á hann myndir af öllum eyðijörðum meðfram strandlengjunni ffá Borgamesi vestur um til Hrútafjarðar. Af sumum bæjum á hann margar myndir, teknar á mörgum ámm. „Stundum báðu bændur um sérstaka myndatöku og sjónarhom, vildu hafa bæjarfjallið með á myndinni, og þá tók ég þær aftur. Veðrið hefur ofl gert mér grikk, enda þarf ég góðar aðstæður og rétta birtu. Austur á Héraði hef ég ofl lent í því að þokan hefur sett strik í reikninginn þegar hún kom veltandi inn af sjónum.“ Árið sem hann Nonni flutti suður Blaðamann fysti að vita eftir hverju kaupendur að myndum Mats væm að sækjast. Hvað ræður því að menn vilja eiga mynd af bænum sínum? „Fyrir því geta verið ýmsar ástæður. Ein er stolt - „My home is my castle“ eins og Bretinn segir. Önnur er heimildagildi. Myndimar em líka oft keyptar til gjafa, ekki síst handa systkinum sem flutt em í burtu. Nú er ég æ oftar spurður hvort ég eigi mynd ffá 1967 eða 1982 sem var árið þegar hann Nonni bróðir flutti á mölina. Þess vegna þarf ég að passa vel upp á eldri myndimar.“ Mats rifjar upp sögu af því þegar hann tók mynd af jörð í inndölum Skagafjarðar. „Ég kom til bónda á miðjum aldri sem bjó einn og var boðið í kaffi. Ég fann að ég var ekkert að tefja hann svo við spjölluðum lengi saman. Hann segir mér í óspurðum fféttum að hann hafi aldrei komið til Reykjavíkur og stuttu síðar segist hann hafa orðið að skreppa nokkmm sinnum um dagana inn á Krók. Þá varð mér litið á myndina sem ég var að selja honum og sýndi bæinn, túnin, helstu beitilönd og fjöllin sem vörðuðu sjóndeildarhringinn. Þá rann upp fyrir mér að þetta var heimsmynd bóndans og að hann hafði engan áhuga á því sem gerðist utan hennar. Það er óskaplega notalegt að koma til svona fólks og finna þann ffið og ró sem streymir frá því. Það er sælt í sínum heirni." Gifurlegt gagnasafn Hann segir að fyrst hafi þetta verið hrein viðskiptahugmynd, hann var að afla sér lífsviðurværis. „En þegar mér tókst að ljúka hringnum nokkum veginn fyrir nokkrum ámm var staffæn myndvinnsla að ryðja Ljósmyndarinn tilbúinn til ferðar. sér til rúms. Þá fékk ég þá hugmynd að skanna allar þessar myndir og gera þær aðgengilegar á Netinu í tölvutæku formi. Ég hef alltaf haft áhuga á sögu, Mats Wibe Lund vinnur að því að koma Ijósmynda- safni sínu á Netið og gera tugþúsundir Ijósmynda af landinu aðgengilegar almenningi enda kom ég hingað fyrst til að starfa við fomleifauppgröft í Skálholti. Myndimar mínar segja líka ákveðna sögu, ekki síst þegar þær em teknar á sama stað með Efri mynd: Vindbelgur í Mývatnssveit. Fjallið fjær heitir Belgjarfjall. Neðri mynd: Fljótshlíðin. nokkurra ára millibili. Þá geta menn séð hvemig ástand gróðurs hefúr breyst, þróun mannvirkja og svo ffamvegis. Það má því segja að safnið sé vitnisburður um ásýnd landsins um aldamót." Mats segir að myndimar geti haft töluvert gildi jafht fyrir ffæði- menn sem almenning. „Skámyndir höfða betur til manna heldur en lóðréttar kortamyndir þar sem menn „fara“ greiðlegar inn í myndefnið. Þessar myndir em sambland af því að vera heimild og augnayndi. Óff hef ég verið beðinn um myndir vegna landamerkjadeilna, skipulags á vegaframkvæmdum og fleira.“ Safnið er orðið geysimikið að vöxtum en alls em í því á þriðja hundrað þúsunda Ijósmynda. Mats segist hafa tekið um 100.000 myndir af bújörðum og þéttbýlis- stöðum en úr því hyggst hann velja 25-30.000 myndir til þess að setja á Netið. „Það liggur gífúrleg vinna í skönnuninni og mér hrýs hálfþartinn hugur við öllu því gagnamagni sem þama verður til. Það er talið í terabætum.“ Ekki með betlistaf i hendi Það liggur í hlutarins eðli að svona vinnsla kostar sitt. Auk vinnustunda þarf öflugan tölvu- búnað, forrit og geymslupláss. Eftir að búið er að skanna myndimar þarf að hreinsa þær til og setja þær inn í skráningarkerfi sem haldið er utan um með norsku forriti sem Mats hrósar í hástert. í tölvubúnaðinum og forritum sem nota þarf liggja stórar upphæðir.Við þetta nýtur hann aðstoðar sonar síns Christopher Lund sem starffækir myndvinnslufyrirtækið Dikta í Elliðaárdalnum. Hann segist horfa á þetta í því ljósi að hann hafi komið hingað sem útlendingur og hlotið góðar viðtökur. Þess vegna finnst honum hann standa í þakkarskuld við landið og vill gjaman leggja sitt af mörkum til jjess að myndasafnið á Netinu verði að veruleika. Fyrir nokkmm ámm gekk hann til samstarfs við fyrirtækið Genealogica Islandorum hf. þar sem meðal annars átti að koma upp svona safni. „Eins og margir vita varð það fyrirtæki gjaldþrota og ég varð að taka á mig vemlegar skuldbindingar til þess að bjarga safninu út úr þrotabúinu. Ég er að greiða niður þær skuldir á sama tíma og ég er að skanna inn myndimar mínar. Vissulega sel ég stöku mynd úr safhinu en það er ekki í neinu eðlilegu hlutfalli við tilkostnaðinn við að koma safninu inn á Netið. En ég hef mikla ánægju af því sem ég er að gera. Ég vil ekki að fólk sjái mig sem mann með betlistaf í hendi heldur að ég hafi eitthvað ffam að færa sem hefúr vemlegt heimilda- gildi, sérstaklega þegar ffam líða stundir. Ég sé það fyrir mér að þeir sem leggja eitthvað af mörkum til safhsins muni fá aðgang að því á sérstökum kjörum. Meginreglan verður sú að menn kaupa myndir til notkunar samkvæmt taxta ffá Myndstefi sem er orðin viðurkennd viðmiðun í ljósmyndun. Hins vegar hef ég oft látið nemendum sem em að gera ritgerð eða búa til heimasíðu í té myndir þeim að kostnaðarlausu. Það eina sem ég bið um er að myndimar séu merktar mér og að verði ritgerðimar gefnar út á prenti verði samið um greiðslu. Þá er ég ekki að tala um stórfé heldur vakir fyrst og ffemst fyrir mér að höfúndarréttur minn sé virtur. Sem betur fer hefúr orðið stórbreyting á því og höfúndarréttur á ljósmyndum er mun betur virtur en hann var fyrir nokkrum ámm. Menn skilja að þetta em verðmæti. Safhið er enn ekki aðgengilegt í heild sinni á Netinu en það verður opnað í áföngum eftir því sem verkið skríður áffam,“ segir þessi norsk-íslenski ljósmyndari sem segist vera að endurgreiða skuld sína við landið og þjóðina sem tók honum opnum örmum. /-ÞH

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.