Bændablaðið - 14.01.2003, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 14. jaitúar 2003
BÆNDABLAÐIÐ
11
Alarin iim að efla Ma-
Hfinustu I Dalabyggfi
Nýverið var haldinn samstarfsfundur ferðaþjónustuaðila og
áhugamanna um þá atvinnugrein í Dalabyggð. Að sögn Ölmu
Guðmundsdóttur, ferðamálafulltrúa Dalabyggðar, hefur orðið mikil
vakning í sveitarfélaginu eftir að Eiríksstaðir, bær Eiríks rauða, var
opnaður fyrir ferðamenn árið 2000. Hún segir að Eiríksstaðir séu
aðalaðdráttarafl Dalabyggðar lyrir ferðamenn. Nú eru hins vegar
uppi áform um að reyna að fá ferðamenn til að koma víðar við í
sýslunni á leið sinni um Dalina.
Eiríksstaðir aðdráttarajlið
„Árin 2001 og 2002 komu á
milli 9 og 10 þúsund gestir í
Eiríksstaði hvort árið. A sam-
starfsfiindinum var farið yfir
stefhu stjórnvalda í ferðamálum og
sömuleiðis var farið í gegnum
markaðsmál og kynningarstarf og
gildi þess að tengjast samtökum
eins og Ferðaþjónustu bænda varð-
andi markaðssetningu. Þá ræddu
menn einnig um þróun mála í
ferðaþjónustu hjá okkur. Enda þótt
orðið hafi mikil þróun í þessum
málum hér í Dalabyggð síðustu
þrjú til fjögur árin er því ekki að
leyna við þurfiim að taka betur á til
þess að nýta betur þann ferða-
mannaQölda sem kemur að Eiríks-
stöðum," sagði Alma.
Dalamenn eiga glæsilegt byggða-
safh á Laugum í Sælingsdal. Alma
segir að byggðasafhið sem slíkt
virðist ekki draga ferðamenn að
enda þótt það sé sérstaklega
skemmtilegt.
Hótel Edda rekur sumarhótel á
Laugum og þar hefur gestum
fjölgað mjög hin síðari ár. Dala-
byggð á stærstan hluta í fyrirtæki
sem heitir Dalagisting sem á og
rekur hótelið að Laugum yfir
veturinn. Þá er það opið eingöngu
fyrir hópa og hefur nýting verið
þokkaleg að sögn Ölmu.
Breiðajjarðareyjar
Hún segir að upp hafi komið
hugmyndir um að nota Breiða-
fjarðareyjar með einhverjum hætti
til að laða að ferðamenn. Umferð
um Dalina hafi aukist mikið og
búast megi við enn meiri umferð
eftir að vegurinn yfir Bröttubrekku
hefur verið gerður upp og mal-
bikaður. Þessa auknu umferð um
sýsluna vilji ferðaþjónustumenn
reyna að nýta betur og eins og fyrr
segir að fá ferðamenn sem heim-
sækja Eiríksstaði til að koma víðar
við.
Jólastundir
á Eiríksstöðum
„Við erum búin að ganga frá
öllu á Eiríksstöðum og erum að
efla starfið þar. Þar minnir allt á
foman tíma, bæði klæðnaður
starfsfólks og annar búnaður.
Langeldur er í gólfi bæjarins þar
sem bakað er brauð, hangikjöt er
til smökkunar og grasamjólk yfir
eldi. Rústin af hinum forna bæ er
uppgrafm og við leggjum höfuð-
áherslu á sögu þeirra Eiríks rauða
og Leifs heppna og tengjum
Laxdælu þar inn í,“ segir Alma.
Hún segir að útbúnar séu
veislur fyrir hópa þar sem setið er
við langeldinn og farið yfir
söguna, sungið og leikið á hljóð-
færi og borðaður góður matur að
fornum sið. Nú á að gera tilraun til
að hafa jólastundir á Eiríksstöðum
í desember. Langeldur verður
kveiktur, kertaljós tendruð, farið í
gegnum jólahald frá upphafi
kristni og bornar fram heitar og
góðar veitingar að sögn Ölmu
Guðmundsdóttur.
Harðplast-
gluggar og
hurðir í allar
byggingar!
A ra 1 uga rcyn sla
hcrlcndis
Líttu á nýja heimasíóu!
www.kjarnagluggar.is
án viðhalds!
200 Kópavogi • Sími 564 4714 • Fax 564 4713
HÚSBYGGJENDUR!
Við framleiðum og seljum
Þakjárn, veggklæðningar og
Innanhúsklæðningar úr aluzinki,galvaniseruðu
og máluðu efni.Steypustyrktarnet í gólf og
veggi. Seljum niðurklippt steypustyrktarstál
og beygjum
Lykkjur úr 6-16mm.Framleiðum einnig stoðir í
Gipsveggi í réttum lengdum.
Timbur og Stál ehf.
Sími5545544 fax 5545607
Lágmúli 7 Reykjavík Sími: 588 2600 • Akureyri Sími 461 4007 • www.velaver.is
Eigum örfá fjórhjól tii afgreiðsiu strax
á þessu frábæra kynningarverði
á aðeins
kr.
bán vsk.
kr. 413.340 með vsk og skráningu
Útbúnaður:
- fjórgengis mótor 10kw.
- rafstart
- 5 gírar áfram og einn afturábak
- dekk framan 22x7-10
- dekk aftan 22x10-10
bögglaberar framan og aftan
stuðaragrind að framan