Bændablaðið - 14.01.2003, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 14.01.2003, Blaðsíða 12
12 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 14. jartúar 2003 Lánasjóður landbúnaðarins Reglur Lánasj óðs landbúnaðarins um lánveitingar árið 2003 Gilda frá 1. janúar 2003 Almennt Lánasjóður landbúnaðarins er þjónustustofnun fyrir landbúnaðinn og starfar samkvæmt lögum nr. 68/1997, með síðari breytingum. Hlutverk sjóðsins er að tryggja landbúnaðinum aðgang að lánsfé til fjárfestinga á hagstæðum kjörum og stuðla þannig að æskilegri þróun atvinnuvegarins. Sjóðurinn veitir lán til bænda og afurða- og þjónustustofhana landbúnaðarins með veði í fasteignum, en við ákvörðun útlána er einnig tekið mið af rekstrarforsendum umsækjanda og hverjar rekstrarforsendur eru í viðkomandi búgrein. Samkvæmt lögum mega ekki hvíla veðskuldir á þeirri eign sem veðsetja á til annarra en Lánasjóðsins eða annarra opinberra sjóða á undan þeim veðrétti sem sjóðurinn fær. Veð sjóðsins í jörð ná til allra gagna og gæða jarðarinnar, þ.m.t. framleiðsluréttar. Vextir og verðtrygging Vextir af útlánum sjóðsins eru breytanlegir og eru nú: ■ Jarðakaupalán 4,00 eða 7,25%. ■ Bústofnskaupalán 5,00%. ■ Vélakaupalán 7,25%. ■ Framkvæmdalán 4,00 eða 7,25%. ■ Skuldbreytingalán 7,40 -7,80%. ■ Önnur lán Mismunandi vextir, oftast 7,25%. Skilyrði fyrir lánveitingu á lægri vöxtunum er að búnaðargjaldsskyld starfsemi sé stunduð á viökomandi jörð. Lánasjóðnum er heimilt að breyta vaxtakjörum allra lána er bera niðurgreidda vexti í vaxtakjör lána sem bera óniðurgreidda vexti, nú 7,25%, falli jörð úr landbúnaðamotum eða dregið verði verulega úr búnaðargjaldsskyldri starfsemi, þannig að árlegt reiknað búnaðargjald af starfseminni verði undir kr. 12.000. Þessi upphæð reiknaðs búnaðargjalds er endurskoðuð árlega. ÖIl ný lán eru verðtryggð með vísitölu neysluverðs. Ath. Líklegt er að vextir breytist um næstu áramót eða snemma á árinu 2003 í kjölfar breytinga á lögum um búnaðargjald. Lánshlutfall og lágmarkslán Lánshlutfall er að hámarki 65% af metnum kostnaði nema annað sé tekið fram. Þegar um er að ræða lán til rafstöðva og afurðastöðva er lánshlutfallið 50%. Ekki eru veitt lægri lán en kr. 500.000. Gjalddagar Gjalddagar lána eru fjórir á ári nema lántakandi óski eftir að þeir vcrði færri og lántakendur geta óskað eftir að jarðakaupa- og framkvæmdalán séu afborgunarlaus fyrstu tvö árin eftir lántöku. Vexti þarf þó að greiða á gjalddögum. Lántökukostnaður ■ Lántökugjald 1 % af lánsupphæð. ■ Stimpilgjald 1,5% af lánsupphæð. Lánstími ■ Jarðakaupalán Jarðakaupalán á lægri vöxtunum eru til allt að 40 ára, önnur jarðakaupalán eru lengst til 25 ára. ■ Bústofnskaupalán Lánstími 10 ár. ■ Vélalán Lánstimi 10 ár. ■ Framkvæmdalán Almennt er lánstími framkvæmdalána vegna nýbygginga allt að 30 ár, vegna stækkunar allt að 25 ár og vegna endurbygginga allt að 20 ár. Lánstími framkvæmdalána á 7,25% vöxtum er lengst 25 ár. Lánstími vegna búnaðar er allt að 12 ár. ■ Skuldbreytingalán Lánstími 15 ár. ■ Hitaveitulán Lánstími 20 ár. ■ Rafstöðvalán Lánstími 40 ár. ■ Önnur lán Lánstími er breytilegur, en oft 20 ár. Heimilt er að greiða upp lán hvenær sem er á lánstímanum. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að takmarka að einhverju eða öllu leyti lánveitingar til einstakra búgreina meti hann það nauðsynlegt með tilliti til markaðsaðstæðna eða annarra aðstæðna í viðkomandi búgrein eða búgreinum. Lánaflokkar: 1. Lán til jarðakaupa Lánasjóðurinn veitir lán til kaupa á jörðum. Sjóðurinn gerir að jafnaði kröfu um að á viðkomandi jörð sé stundaður búrekstur í atvinnuskyni og að á henni sé föst búseta. Þó má lána til jarðakaupa án þess að þessum skilyrðum sé fullnægt, svo sem ef um er að ræða sameiningu jarða í þeim tilgangi að bæta búskaparskilyrði. Ekki er lánað umfrarn 70% af virðingarverði jarðar og aldrei umfram kaupverð hennar skv. kaupsamningi. Æskilegt er að í kaupsamningi sé kaupverð sundurliðað þannig að fram komi kaupverð jarðar, íbúðarhúss, bústofns og véla. Þegar gerður er samningur um kaup á jörð í eigu hlutafélags (keyptur hlutur í félaginu) þarf að koma ffam í kaupsamningi hverjar eru eignir félagsins sem verið er að kaupa. Sjóðurinn veitir ekki jarðakaupalán þegar um er að ræða viðskipti einkahlutafélags og eigenda þess né viðskipti hjóna eða sambýlisfólks. Þegar um er að ræða kaup á jörð með búnaðargjaldsskylda starfsemi gildir eftirfarandi viðmiðun sem meginregla varðandi lán á 4,00% vöxtum: Jarðakaupalán á 4,00% vöxtum er aðeins veitt til kaupa ájörðum með árlega veltu yfir kr. 1.500.000 kr. Lánað er kr. 10,700 á hverjar kr. 10.000 af búnaðargjaldsskyldri veltu. Hámarkslán á 4,00% vöxtum erkr. 10.000.000. Heimilt er að veita viðbótarlán á 7,25% vöxtum allt að 15% af kaupverði, þó aldrei hærra en kr. 6.000.000. Lán til kaupa á jörð þar sem er engin eða óveruleg búnaðargjaldsskyld framleiðsla fer eftir ákvörðun sjóðsins hverju sinni. 2. Lán til bústofnskaupa Lánasjóðurinn veitir frumbýlingum sem hófu eða hefja búskap á árunum 2001, 2002 eða 2003 lán til kaupa á bústofni. Rétt til bústofnskaupaláns eiga einnig þeir sem eru að taka upp sauðfjárbúskap að nýju eftir skipulagðan niðurskurð vegna sauðfjársjúkdóma og bændur sem hafa hætt búskap í a.m.k. 5 ár, enda hafí eldra bústofnskaupalán verið greitt upp eða yfirtekið af öðrum ábúanda. Ef búskap er hætt, bústofninn seldur eða honum fargað, fellur lánið allt í gjalddaga, en kaupanda bústofnsins er þó heimilt að yfirtaka lánið. Ekki er lánað til stækkunar bús umfram greiðslumark í nautgripa- og sauðíjárrækt. Lánað er skv. skattmati á hvem grip. Veitt eru lán til kaupa á allt að 30 kúm eða kelfdum kvígum eða 300 ám/lömbum eða 40 gyltum eða 3.400 varphænum eða 600 minkalæðum eða 150 refalæðum. 3. Lán til vélakaupa Lánasjóðurinn veitir lán tii kaupa á búvélum sem eru nýskráðar eða keyptar nýjar á árunum 2001, 2002 eða 2003. Með umsókn þarf að fylgja affit sölureiknings, sem staðfest er með áritun söluaðila. Heimilt er að lána nýjum ábúendum 65% lán til kaupa á búvélum og tækjum, óháð aldri hins keypta. Vextir 7,25%. Einnig er heimilt er að veita lán með veði í skráningarskyldri vél, t.d. til félagslegra verkeffia bænda. Lánstími allt að 8 ár. Vextir 8,25%. 4. Framkvæmdalán. Lánað er til nýbygginga og varanlegra endurbóta Lánasjóðurinn veitir lán til nýbygginga, gagngerðra endurbóta og breytinga á útihúsum og kaupa á búnaði. Við lánveitingar til endurbóta og endumýjunar er miðað við að um sé að ræða verulegar og varanlegar endurbætur, en sjóðurinn lánar ekki til smávægilegra viðgerða eða venjulegs viðhalds. Framkvæmdalán á lægri vöxtunum geta aldrei numið hærri upphæð en 25 millj. kr. á hverri jörð. Hámarksupphæð er breytileg eftir jörðum og búgreinum. Lánað er til eftirfarandi bygginga og búnaðar: ■ Nautgriparækt. Lánað til byggingar fjósa, mjólkurhúsa, mjaltaaðstöðu og haughúsa. Einnig kaupa á fóðrunarkerfum, mjaltakerfum og mjólkurtönkum. ■ Sauðfjárrækt. Lánað til byggingar fjárhúsa og áburðarkjallara. Hámarksdýpt kjallara í mati til láns er 150 cm. ■ Svínarækt. Lánað til byggingar svínahúsa, haughúsa, innréttinga og fóðrunarkerfa. ■ Alifuglarækt. Lánað til byggingar alifuglahúsa með tilheyrandi búnaði að mati sjóðsins. ■ Hrossarækt. Lánað til byggingar hesthúsa og áburðarkjallara. Einnig til byggingar reiðskemma með tilheyrandi aðstöðu að mati sjóðsins. Hámarkslán vegna reiðskemma er kr. 5.000.000. ■ Garðyrkja. Lánað til byggingar gróðurhúsa og garðávaxtageymslna, pökkunaraðstöðu og tæknibúnaðar. ■ Loðdýrarækt. Lánað til byggingar loðdýraskála, búra og tilheyrandi aðstöðu að mati sjóðsins. Lánshlutfall vegna kaupa á búrum allt að 50% af matsverði. Eingöngu er lánað til kaupa á nýjum búrum. ■ Hlöður. Lánað til byggingar hlaða, fóðurgeyma íyrir laust fóður og kom, þurrkunarbúnaðar fýrir kom og annars búnaðar í hlöður. Lánshlutfall vegna kaupa á tæknibúnaði allt að 50%. ■ Vélageymslur. Lánað til byggingar vélageymslna. 5. Lán til skuldbreytinga Lánasjóðurinn veitir lán til skuldbreytinga á lausaskuldum bænda sem tengjast búrekstrinum. Með lausaskuldum er átt við viðskiptaskuldir og veðskuldir með upphaflegan lánstíma skemmri en 5 ár. ■ Lán til endurfjármögnunar. Lánað til endurfjármögnunar á föstum lánum og lausaskuldum bænda sem tengjast búrekstrinum með það að markmiði að bæta greiðslustöðu þeirra. Með umsókn um endurfjármögnunarlán skal fylgja tæmandi listi yfir skuldir umsækjanda og affit af greiðsluseðlum eða staðfesting Iánadrottins. Með endurfjármögnunarláni er í samvinnu við lánastofnanir og aðra lánadrottna reynt að tryggja að heildarlausn fáist á fjármálum umsækjanda. Skilyrði er að lántaki hafi viðunandi rekstrarforsendur eftir endurfjármögnun. Hámarkslán kr. 6.000.000. Vextir 7,40%. ■ Lán til skuldbreytingar afborgana. Lánað til skuldbreytingar gjaldfallinna afborgana í fast lán. Skilyrði fyrir lánveitingu er að gjaldfallnir vextir, dráttarvextir og annar kostnaður sé greiddur. Að jafnaði skal ekki veita hverjum lánþega slíkt lán oftar en einu sinni. Vextir 7,80%.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.