H.f. Nýja bíó - 01.06.1928, Page 6
H.F. NÝJA BÍÓ — KVIKMYNDABLAÐ
Brostnir strengir
Sjónleikur í 8 þáttum
effir leikrifi PIERRE FRONDRLL
flðalhlutverk:
Huguette Duflos
Fjallaæfintýrið
Sjónleikur i 7 þáttum
Byggist á skáldsögu BJERREGAARDS
» P j el deventy r et«
Bjerregaard var fæddur 1792 í Ringsaker í Noregi, dáinn
1842. Hann er einn af kunnustu skáldum Norðmanna,
orti m. a. þjóðsönginn »Sönner av Norgn«. Mikla frægð
hlaut hann líka fyrir »Fjeldeventyret«, þvi sveitalífinu eins
og það var þá í Noregi kunni Bjerregaard að lýsa — oft
kýmilega. »Fjeldeventyret« hefir verið leikið oft í öllum
helstu leikhúsum Norðmanna. — Kvikmyndin jafnast alls
ekki á við fyrirmyndina, en þó ættu menn alls ekki að
setja sig úr færi að sjá þær fáu norsku kvikmyndir, sem
hér eru sýndar. Þær hafa sína kosti, eru leiknar í tilkomu-
miklu landsfagi og eru þjóðlegar.
NJOSNARINN
ÚR VESTURVÍGI
Sjónleikur í 10 þáttum
Aðalhlutverk:
Cullen Landis og Muriel Kingston
í kvikmynd þessari, sem er óvanalega spennandi,
er Jýst hvernig njósnarar ýmissa þjóða reyna að
njósna um hermál Bandaríkjanna og á hinn bóg-
inn hvernig drengir Jónatans frænda taka slíkum
kumpánum. Kvikmyndin er spennandi frá upphafi
til enda.
VEFARARNIR
Sjónleikur í 7 þáttum
gerður effir hinu fræga leikriti
Gferharts Hauptmann’s
Aðalhlutverk:
Paul Wegener, Dagny Servais o. fl.
Kvikmyndin gerist á fyrrí helming 19. aldar í Prússlandi.
Kvikmyndin gefur glögga hugmynd um kjör verkafólksins
í Prússlandi á þeim dögum. Kvikmyndin er snildarlega
leíkin og í alla staði vel frá henni gengið.