Skátaforinginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Skátaforinginn - 01.01.1985, Qupperneq 4

Skátaforinginn - 01.01.1985, Qupperneq 4
á næstunni Skákmót BÍS Hugmyndir eru uppi um að halda Skákmót BÍS laugar- daginn 23. febrúar 1985. Aóal mótsstaðurinn verður i Skátahúsinu við Snorrabraut i Reykjavík en vonir standa til aó hægt verði að halda mót á Akureyri, ísafirói og jafnvel viðar. Hvert skátafélag getur þessvegna staóið fyrir sinu eigin skákmóti ef félagar eiga þess ekki kost aó sækja mót annaó. Öllum skátum er heimil þátttaka án tillits til getu eða aldurs. Skákmeistarar hvers móts eiga mögu- leika á að komast i "skáklió BÍS" sem væntanlega tekur þátt í skákmóti Æskulýóssambands íslands. Þeir keppa jafnframt innbyrðis um titilinn "SKÁKMEISTARI BÍS 1985" og er veglegur farandbikar i boói. Þau skátafélög - sambönd - félagsforingjar eða skátar sem hafa á máli þessu áhuga, vinsamlegast hafió samband vió skrifstofu BlS hið fyrsta og eigi siðar en 25. janúar. Eins og fram kom í sióasta bandalagspóst veróur Forsetamerkiö afhent á Bessastöðum 9. mars en ekki 23. febrúar. Vegna þessa framlengist skilafrestur dagbóka til 22. janúar 1985. Þió hafió því enn tima til að fullkomna sköpunarverkió.

x

Skátaforinginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátaforinginn
https://timarit.is/publication/909

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.