Skátaforinginn - 01.01.1985, Blaðsíða 10
fréttir frá félögum
Mikill kraftur er nú í Skátafélaginu Eilifsbúum
á Sauðárkróki. Unnið er af stórhug við miklar og
kostnaðarsamar endurbætur á skátaheimili félagsins.
í desember var gefió út fréttabréf með starfs-
áætlun, foringjalista og öðrum gagnlegum fréttum
og upplýsingum um félagið. Forsióu fréttabréfsins
prýddi nýtt félagsmerki sem hannað var i tilefni
55 ára afmælis skátafélagsins.
1 október var haldið þriggja daga námskeió fyrir
alla flokks- og aðstoðarflokksforingja i félaginu.
Stjórnendur voru auk heimamanna þeir Kelgi Jónsson
og Þórður Kristjánsson frá Foringjaþjálfunarráði.
Báru þeir heimamönnum sérlega vel söguna, fyrir
dugnaó og eljusemi.
Sjö skátaflokkar eru starfandi i Eilifsbúum auk
tveggja Léskátasveita. Á starfsáætlun félagsins má
sjá að starfió er á mikilli uppleió, Skátahöfðingi
og framkvæmdastjóri BÍS geta eftir heimsókn sina i
nóvember sl. vottað að þaó er sko alls engin logn-
molla yfir skátafélaginu á Sauðárkróki þessa dagana.
Stjórn félagsins skipa:
Hreinn Hreinsson fél.for.
Pétur Helgason aðst.fél.fo
Andri Kárason ritari
Xnga H Andreasen gjaldkeri
Helga Helgadóttir meðstj.
Þorsteinn Valsson varam.
Skátafélagið
Eilífsbúar