Bændablaðið - 01.09.1988, Blaðsíða 2
BÆNDABLAÐIÐ 7. TBL. 2. ÁRG. SEPT.1988
Riðuundanþágan:
„EKKI EINA DÆMIÐ UM
FRÁVIK FRÁ VIDMIÐUN"
Athugasemd frá Pálma á Akri
í Bændablaðinu sem nýlega kom
út og mun vera 6. tölubl. þ.á. er frá
því greint að ég hafi fengið „undan-
þágu frá riðuniðurskurði“ eins og
það er kallað og sé eini bóndinn á
landinu, sem slíka undanþágu hafi
fengið. í greininni sem rituð er í
nokkrum fullyrðingastíl, eru auk
þess nokkur slitur úr viðtali, sem átt
var við mig í síma.
Mér þykir rétt að taka eftirfar-
andi fram varðandi þessi skrif.
Annað meginatriði þessa máls er
auðvitað það að ég fer eftir ákvörð-
un sem tekin er af landbúnaðar-
ráðuneyti og sauðfjárveikivörnum.
Ég hafði snemma vors óskað eftir
að ákvörðun þessara aðila lægi fyr-
ir áður en ég keypti áburð, því tæp-
lega var vit í að kaupa áburð og
stofna til kostnaðar við heyskap ef
mér bæri að skera léð niður í haust.
Þetta gat verið álitamál þar sem
fjögur ár eru siðan riðukind fannst
i fénu og þó viðmiðunarreglan sé
fimm ár voru fordæmi fyrir því að
frá þeirri viðmiðun væri vikið.
Þeim fordæmum hirti ég ekki um
að skýra ritstjóra Bændablaðsins
frá i síma, enda lét hann þess ekki
getið að hann ætlaði að skrifa um
málið. Þessi fimm ára viðmiðun
styðst út af fyrir sig ekki við neinn
lagabókstaf, en fyrri frávik frá
henni hafa vafalaust ráðið þvi hver
niðurstaðan varð. Það er því ekki
rétt sem blaðið heldur fram, að eina
dæmið um frávik frá þessari við-
miðun sé hjá mér.
Hitt meginatriði málsins er að því
miður eru tæplega líkur til að með
niðurskurði á 20-25 þús. fjár í haust
sé riðuveiki þar með útrýmt úr
landinu. Hætt er við að eitt og eitt
tilfelli kunni að koma upp á næstu
árum og þarf þá hverju sinni að
skera niður hjá þeim sem fyrir þvi
verða.
Ég tel eðlilegt að heilbrigðiseftir-
lit verði aukið með sauðfé næstu ár-
in á þeim svæðum sem riða hefur
fundist eða verið landlæg. Ég hef
óskað eftir slíku auknu eftirliti með
mínu fé. Fari svo að nýtt riðutilfelli
finnist verður fénu að sjálfsögðu
fargað, svo sem hvarvetna annars
staðar, þar sem riðuveikar kindur
kunna að finnast.
Allt tal um sérreglur f'yrir mig og
mitt fé og glósur um Jón eða séra
Jón eru því tilefnislausar.
Með þökk fyrir birtinguna
Fálmi Jónsson
Athugasemd ritstjóra:
Eins og fram kemur í brél'i Fálnta
fékk hann undanþágu frá riðunið-
urskurði og það var meginatriði
fréttar okkar um þetta mál. Kjartan
Blöndal framkvæmdastjóri sauð-
fjárveikivarna tjáði okkur að þetta
tilfelli væri algert einsdæmi, —
undanþágur Irá rcglunum hefðu
ekki áður vcrið veittar. Hafi slíkt
verið gert án vitundar sauðfjár-
veikivarna eykur það síst hróður
riðumála í þessu landi. En Pálmi
ætti allra hluta vegna að upplýsa
bæði sauðfjárveikivarnir og bænd-
ur um þessi l'rávik frá reglunum.
Þá er ósatt sem segir að undir-
ritaður hal'i ekki látið þess getið að
hann ætlaði að skril'a um málið. I
upphafi samtals kynnti ég mig sem
blaðamann og þá á reyndur stjórn-
málamaður að vita að um blaða-
samtal er að ræða. Enda eru þessi
mál mér persónulega óviðkomandi.
í lok samtalsins sagðist ég ætla að
„vinna úr þessu“ og við það gerði
bóndinn og alþingismaðurinn á
Akri enga athugasemd.
Allt tal um Jón og séra Jón í
þessu máli á augljóslega fullan rétt
á sér.
Bjarni Haróarson
ritstjóri.
Kúlulaga plast-tankar
Sterkari og betri
M ROTÞRÆR: fyrir sumarhús,
einbýlishús og stærri sambýli.
VATNSTANKAR: margar
stærðir.
FITUGILDRUR og OLÍU-
GILDRUR w L \
FÓÐURSÝLÓ: einnig einangruð
fyrir loðdýrafóður.
SÖLUSTADIR:
Sambandió byggingavijrur
Kaupfélögin
G.A. Böðvarsson, Sclfossi
FRAMLEIÐANDl:
KOSSPLAST H/F
GAGNHKIDI 38
80« SELFOSS
í SÍMI 98-21760
Hollur cr heimafenginn baggi og ódýrasta kjarnfóðrið scm bændur eiga völ á fæst
mcð gerð heyköggla.
Ólafur Eggertsson:
HEYKÖGGLAR
ERU ÓDÝRASTA
KJARNFÓÐRIÐ
Nú er að Ijúka einu erfiðasta hey-
skaparsumri sem menn muna hér
um slóðir og eftir því eru heyin. Þó
víða hafi ýmisskonar votheysverk-
un bjargað, þá stendur eftir að
meirihluti uppskerunnar er enn
verkaður í þurrhey og þar er viða vá
fyrir dyrum í fóðurmálum. Ofan á
þetta bætist langur gjafatími í vor
og því litlar fyrningar.
Én hvað tengist þetta allt gerð
heyköggla á Austurlandi?
Það sem af er þessu ári hefur
samstæðan unnið 625 m1 og væri
eðlilegt ástand með heyin mætti
vænta að kögglað yrði annað cins
til áramóta. En við núverandi að-
stæður er ekki liklegt að verkefni
verði nema 300 m' út árið.
Þetta er mikill skaði fyrir þetta
fyrirtæki sem berst í bökkum, og
ekki síöur er það skaði l'yrir bænd-
ur, sem i stað þess að breyta eigin
heyi i kjarnfóður — vissulega með
hjálp aðkeyptra efna — sjá fram á
að verða að nota dýrt, aðkeypt
kjarnfóður.
Það kæmi hins vegar ekki á óvart
þó eftirspurn eftir kögglum verði
mjög vaxandi seinna í vetur þegar
hey frá sumrinu er orðið vinnslu-
hæft.
Við skulum nú rifja upp nokkrar
tölur o.fl. sem snertir heyköggla-
gerð og hagkvæmni þeirra gagnvart
öðru fóðri.
Fyrst eru hér tölur yfir fóðurverð
á Egilsstöðum, birtar með góðfús-
legu leyfi þeirra kaupfélagsmanna.
Graskögglar 1988:
Meindýr með
innflutningi...
Það er viðar en í innflutningi á
ferfætlingum sem þarf að varast
að pestir og meindýr berist með
innflutningi. I sumar kom í ljós
„Amerískt thrips“ í blómum hér á
landi sem hefur borist með inn-
flutningi á plöntum þó svo að
leiðina hafi ekki tekist að rekja.
„Thrips“ er fluga sem leggst á
plöntur og dregur úr þeim þrótt
en er næsta viðráðanleg í blóma-
rækt þar sem hægt er að eitra
fyrir hana. Aftur á móti er þessi
skepna hinn mesti vágestur fyrir
grænmetisbændur því eðlilega er
ekki hægt að beita eins sterkum
eiturefnum í þeirri ræktun. Til
þessa hafa íslenskir gróðurhúsa-
bændur mátt glíma við svokallað
„Nelliku thrips“ og þótt nóg um.
Ennþá hefur nýja „thrips" flugan
bara fundist i blómjurtum og þeg-
ar verið gerðar róttækar hreinsan-
ir á nokkrum húsum en of
'snemmt að segja til um hvort það
Frá Skagaf.: hvert kg. 22,17 kr.
Reyðarfjarðarblanda 26,24 kr.
S.Í.S. blanda 30,80 kr.
Maís 25,90 kr.
Nú mun algengast að notuð sé
25% íblöndun og sem líklegt með-
altal skulum við segja að fari 450
kg. af heyi í m’ af kögglum.
Séu kögglaðir 20 m' eða meir er
gefinn 10% afsláttur af öllu magn-
inu, en annars kostar kögglun nú
3300 kr. á m'.
Úr góðu heyi og 25% íblöndun
má vænta köggla með fóðurgildi
1,2-1,3 kg í FE.
Kögglun án afsl. 1 m' 3.300 kr.
Fiskimjöl 90x25 kr. 2.250 kr.
Sykur 50x22 kr. 1.100 kr.
Önnur íbl. 200 kr.
Kostnaðarverð I m' eða 600 kg.
köggla 6.850 kr. eða 11,41 kr./kg.
Mismunur frá meðalfóðurverði,
sem er um leið beinn hagnaður þess
sem lætur vinna og notar hey-
köggla, er þá 5,60 kr./kg þegar tek-
ið er tillit til verðs á graskögglum og
innfluttu fóðri og hann hefur reikn-
að sér hey og vinnu. Með öðrum
orðum, þá verður rúmur helmingur
af fullu verði heykögglanna til
heima hjá bóndanum sjálfum.
Eins og staðan er í dag er megin-
málið að til séu fyrningar, eða full-
verkað hey frá sumrinu og geta
bætt það með kögglun, sé það lítils
virði en framleitt kjarnfóður úr því
sem betra er.
Því án heyköggla viljum við ekki
vera.
Ólafur Eggerlsson, Berunesi
tekst að drepa hana alveg eða
hvort þessi fylgifiskur innflutn-
ingsins er kominn til að vera...
Aheit
TIL HJÁLPAR
GÍRÓNÚMERIÐ
62 • 10 • 05
KRÝSUVÍKURSAMTÖKIN
ÞVERHOLTI 20 • 105 REYKJAVlK
S 62 10 05 OG 62 35 50