Bændablaðið - 01.01.1990, Blaðsíða 9
BÆNDABLAÐIÐ 1 .TBL.4.ÁRG.25 JANÚAR 1990
BLAÐIÐ
Markús Kristinsson:
Nokkur orð um
MELTU
- fljótandi dýrafóður
Það eru ekki mörg áð síðan farið var að tala um Meltu
sem dýrafóður hér á landi, þó að slíkt fóður hafí verið
notað um 35 ára skeið í Danmörku.
Þaö vekur oft hjá manni furöu
hvað við íslendingar eigum erfitt
meö aö notfæra okkur þau gæöi
sem landið hefur uppá að bjóöa,
en viröumst ofurseldir þeirri áráttu
aö sækja alla hluti til útlanda.
Þetta á ekki síöur viö um fóörum
húsdýranna okkar, en annað sem
þarf til þess aö líf okkar og störf
geti talist með nútfmalegum hætti.
Aö framansögöu væri fróölegt
aö spyrja sjálfan sig þeirrar
spurningar: "Hver er ástæöan fyrir
þvf aö t.d. danir, sem eins og allir
vita er mikil landbúnaöarþjóð og
að auki talsverð fiskveiöiþjóö, velja
þá leiö aö selja þaö fiskimjöl sem
þeir framleiöa til annarra landa, en
nota sjálfir meltu viö fóörun sinna
húsdýra.?"
Svarið getur ef til vill legiö í því
aö aö danir hafa uppgötvaö aö ef
borin eru saman gæöi meltu og
fiskimjöls, þá sé þaö ódýrari kostur
aö nota meltuna heima, en selja
fiskimjöliö til þeirra þjóöa sem vilja
kaupa og greiöa vel fyrir.
Flytjum inn mengunina
Hagfræði sem þessa hefur
maöur ekki oft heyrt hér á landi.
Ef til vill miklu oftar þaö sjónar-
miö aö vilja heldur þaö sem inn-
ílutt er. Það hljóti aö vera betra.
Það hefur komið fram í ræöu
og riti aö íslendingar búi viö
hreinni náttúri en margar aörar
þjóöir. Andrúmsloftiö hreint og
tært, ár og vötn ómenguð af úr-
gangi frá verksmiöjum og hafiö
skfnandi bjart. Ef þetta er svona á
íslandi en miklu verra f öörum
löndum, af hverju erum viö þá aö
kaupa inn f landiö mengunina og
óhollustuna frá öörum löndum
þegar viö getum notiö þess hreina
og góða sem okkar eigiö land
býöur upp á?
MELTA er fiskur
Hvaö er MELTA, hvernig er
hún framleidd og hvaöa ávinningur
er af henni sem fóðri?
Ef svara á spurningunni hvað
MELTA sé, er einfaldast aö segja
aö hún sé ftskur. Hætt er þó viö aö
þaö séu ekki allir sáttir við svo
einfalda skýringu og skal því reynt
aö lýsa þessu nánar.
Svariö er eiginlega þaö aö
MELTA sé uppleystur fiskur,
100% náttúruafurö í líffræöilegum
skilningi og er framleidd úr fersk-
um nýveiddum fiski. Ferskur ný-
veiddur fiskurinn sætir í fram-
leiöslunni þeirri meöferö sem ekki
skaöar næringarefnin. Hitinn sem
notaöur er viö meltuframleiöslu er
þaö lágur aö rannsóknir sýna aö
hann veldur á engan hátt skemmd-
um á próteini opg vítamínum.
Fisktegundir sem heppiiegt er aö
framleiöa Meltu úr, eru m.a. síld,
loöna og spærlingur. Þessar fisk-
tegundir eiga þaö sameiginlegt aö
vera frekar smábeinóttar og er því
hlutfall beina ekki mjög hátt miðað
viö fiskinn og þar af leiöandi
veröur kalkinnihald meltu ekki
mjög mikiö, en þaö þykir kostur.
Þegar Melta er búin til er sett
maurasýra saman viö fiskinn, en
þaö vcldur þvf aö hann leysist upp
lyrr og beinin hverfa. Þegar upp-
lausnin er alger er meltan eins og
vatn á aö líta. Vökvinn er nú látinn
fara f gegn um skilvindur og fitan
skilin frá, þar sem menn hafa kom-
ist aö þeirri niöurstööu aö þegar
fundist hefur fiskbragð af kjöti, er
þaö f raun og veru bragö sem
stafar af fitunni í fiskinum, en ekki
af fiskinum sjálfum.
Lífrænt en
bakteríulaust fóður
Eins og getiö er um áður er
sett maurasýra f meltu og þaö
hefur komiö f ljós aö bakteríur lifa
ekki f jafn súrum vökva og hér um
ræðir. Ekki eru heldur dæmi um
að salmonella þrífist viö þessar
aöstæöur.
Þar sem fiskimjöl hefur veriö
þekkt sem dýrafóöur alllengi af
flestum sem við landbúnaö fást, er
ekki óalgengt aö veriö sé aö bera
saman próteinið f meltu og fiski-
mjöli. Slíkur samanburöur er í
hæsta máta óraunhæfur og eru
ýmsar ástæöur til þess. í fyrsta lagi
má nefna ferskleika hráefnisins.
Andstætt ferskum fiski sem er
alger forsenda þess aö notaöur sé
viö framleiðslu Mcltu, er óhætt aö
segja aö hráefniö sem notað er viö
fiskimjölsframleiöslu, sé vægast
sagt á allbreytilegu aldursstigi.
Dæmi eru til aö fiskimjöls-
verksmiöjur safni allt aö mánaðar-
birgöum af hráefni. Slíkt hráefni
getur aö sjálfsögöu aldrei orðiö
úrvals hráefni og úr þvf er þar af
leiðandi aldrei hægt aö framlciöa
úrvals vöru.
Viö framleiðslu á fiskimjöli er
notaður mikill hiti, eöa frá um
130°C til allt að 450°C, eftir þvf
hvort verið er aö gufuþurrka eöa
eldþurrka mjöliö. Hitinn eyöi-
leggur töluvert af vítamfnunum og
próteiniö rýrnar einnig viö þennan
mikla hita. Þessu er þveröfugt fariö
meö meltu, þar sem ekki er notað-
ur skaölegur hiti viö framleiðsluna
og vítamfn og prótein haldast
óbreytt eins og náttúran skilar
þeim.
Meö því aö nota meltu daglega
fæst fóöur sem hefur hátt líffræöi-
legt gildi og viö þaö bætist aö pró-
teinið í meltunni veldur þvf aö pró-
teiniö f öðru fóöri nýtist betur.
Þetta setur meltuna f sérstakan
fóöurflokk af allt ööru og gildis-
meira mati en t.d. fiskimjöl, soya-
mjöl, kjötbeinamjöl o.þ.l. Aö auki
skapast betra jafnvægi milli mikil-
vægra Aminosýra og mikilvægra
B-vítamfnflokka, þar sem hiö
dýrmæta vítamín B12 skipar
öndvegi.
Aminosýrurnar ellefu
Þegar fiski hefur veriö breytt f
þunnan vökva, eins og aö framan
er lýst, hefur próteiniö veriö brotiö
niöur f aögengilegar lausar Amino-
sýrur. Rúmlega 20 Aminosýrur eru
þekktar, en af þeim eru 11 Iffs-
nauösynlegar, þ.e.a.s. þaö veröur
aö gefa skepnunum þær í fóörinu
sem þær éta. í meltu etu allar
mikilvægu Aminosýrurnar, ekki
sfst Lysin, sem oft er of lftiö af í
ööru fóöri. Aminosýrur þurfa að
vera f lausu aðgengilegu ástandi, til
þess að skepnurnar geti nýtt þær,
en þannig eru þær einmitt f melt-
unni.
Við höfum líkinguna um
keöjuna: "Engin keöja er sterkari
en veikasti hlekkurinn." Þannig má
kannski koma meö líkingu um
skcpnufóðrið, þar sem vitaö er aö
Meltu geta bændur keypt eða
framleitt heima á bæjunum. Þessi
mynd er af meltuútbúnaði í
Vogsósum í Selvogi en bóndinn
þar sækir hráefni f Þorlákshöfn.
Aminosýrur mynda keöju, og
segja: "Notagildi fóöurs afmarkast
af Aminosýrunni scm minnst er
af."
Kýr - 500 gr. á dag
Mjólkurkúm má gefa 500 gr.
af meltu á dag, en hafa skal þaö f
huga aö betra er aö skipta
magninu og gefa f tvö mál, 250 gr.
hvort skipti. Þegar melta er gefin
skal draga samsvarandi frá kjarn-
fóðurgjöf.
Kálfum má byrja aö gefa meltu
7-10 daga gömlum og má þá gefa
þeim 50 gr. á dag en síðan skal
auka gjöfina smátt og smátt þannig
aö þegar kálfarnir hafa náö tveggja
mánaöa aldri sé gjöfin orðin 500
gr. á dag. Þessi 500 gr. af meltu á
dag jafngilda jafngilda um 2,5 - 3
lítrum af mjólk hvað prótein
áhrærir. Meltan virkar mjög vel á
maga kálfa þar sem pH talan er
mjög lág (3,8 - 3,9), en eins og
áöur er getiö þrffast bakteríur ekki
viö þaö sýrustig. Hægt er aö sjá á
háralagi kálfanna hvort aö magi
þeirra cr í lagi, þvf aö fallegt hára-
lag og góður magi fylgjast aö. Hér
aö framan var minnst á vítamíniö
B12 en þaö eykur vöxt dýranna.
Þetta vftamfn mynda kálfarnir ekki
sjálfir meöan þeir eru undir 6
mánaöa aldri.
Gott fyrir litla grísi
Gyltum má gefa 500 gr. af
mcltu á dag. Gefa skal meltuna
óþynnta og hella henni yfir annaö
próteinfóöur. Melta er próteinríkt
fóður, þessvegna skal minnka pró-
teingjöf í ööru fóöri, þvf aö viö þaö
eykst notagildiö. Ekki skal nota
flskimjöl og meltu samtímis.
Dagskammtur grísa fer eftir
aldri þeirra og skal vera frá
10 - 300 gr. á dag. Kostir meltu-
gjafar cru margir og má þar nefna
hátt líffræðilegt gildi, f öðru lagi
hentar melta vel f litla viökvæma
grfsamaga vegna þess að hún inni-
heldur dálftiö af zinki og f þriöja
lagi eykur hún matarlyst. Mælt er
meö aö dagskammtur slátursvína
sé um 200 gr. á dag og meltugjöf
sé hætt um 3 vikum fyrir slátrun.
Eitt skulum við hafa f huga.
Þaö er ekki rétt aö miöa fóöur
ætfð viö fóðureiningar, þvf aö
fóöur getur gert svo margt, sem
alls ekki er skilgreint f
fóöureiningum. Þaö má til dæmis
nefna hvernig skepnurnar lfta út,
þaö má nefna frjósemi bæöi hjá
gyltum og kúm, það má nefna
magann f smágrfsum og kálfum og
þaö má nefna fallegra háralag
kálfa. Góö matarlyst og hraustir
smágrfsir eru líka einkenni, sem
ekki er hægt aö reikna f fóöúr-
einingum.
Melta er ef til vill ekki neitt
töfralyf, en þaö sem um hdna
hefur veriö ságt hér að framan ér
án efa vel þess viröi aö því sé
gefinn gaumur. Hér er aö minnsta
kosti um aö ræöa innlenda ffam-
leiðslu úr ferskum fiski, veiddum
viö strendur íslands.
Höfundur er forstjóri fyrir-
tækisins Valfóður sem framleiöir
meltu til útflutnings. Þó svo að
hér sé því ekki um "hlutlausan"
greinarhöfund aö ræða taldi
undirritaöur að efni þetta ætti
fullt erindi við bændur landsins
og þá sem vilja styöja og styrkja
sem best þá innlendu framleiðslu
sem við höfum. Meltan hefur
lengi verið umdeilt fóður og
blaöið er vissulega opið fyrir
athugasemdum viö þaö sem hér
stendur.
ritstj.
ÁSKRJFTA-
SÍMINN ER
98-313 76
EINANGRUÐ HITAVEITURÖR ÚR STÁU
EINANGRUN FYRIR PLASTHITAVEtTUR
LEGGJUM PLASTHITAVEITUR
RÁÐGJÖF VIÐ HÖNNUN HITAVEITNA
LEITIÐ NÁNARI UPPLÝSINGA
HJUPUR HF. =
WUSH
Flúðum 801 Selfoss
Sími 98-66780
Söluskrifstofa Bolholti 4 105 R&ykjavík.
Sími 91-680425