Bændablaðið - 01.01.1993, Side 4
1.TBL. 7. ÁRG. JAN. - FEB. 1993
ÁBURÐARVERÐ LÆKKAR
Vegna hagræðingar í rekstri Áburðarverksmiðjunnar
á undanförnum árum hefur nú verið unnt að lækka
verð á áburði um 5,2% frá síðasta ári. Verð á áburð-
arpoka af algengri tegund lækkar úr 1150 krónum í
1090 krónur. Á undanförnum árum hefur verð á
áburði frá Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi
hækkað minna en verðlagsbreytingar hafa gefið
tilefni til vegna sparnaðar í rekstri.
jjsasatiiutg?"
*^^^‘**S véU 08 fa'artæk'a' ^
Hjá okkur sitja gæöin í fyrirrúmi.
FAB Kúlu- og rúllulegur
TIMKEN Keilulegur
Ásþétti
opSfieit (onlinenlal Viftu- og tímareimar
precísion Hjöruliðir
SACHS Höggdeyfar
og kúplingar
Bón- og bílasnyrtivörur
Þekking Reynsla Þjónusta
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 814670
BÆNDABLAÐIÐ &
LANDSBYGGÐIN
Hagræöingarstarf þaö sem
unnið hefur veriö innan verk-
smiðjunnar hefur skilaö þessum
árangri. Þetta hefur gerst þrátt
fyrir aö framleiösla á áhuröi hafi
dregist saman um allt aö 25% frá
árinu 1984 aö samdrállur f hefö-
bundnum landbúnaöi fór að
segja til sfn f minnkandi áburöar-
kaupum. Hákon Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Áburöarverksmiöj-
unnar, segir aö rekstur fyrirtækis á
borö viö verksmiðjuna byggist á aö
leitaö sé allra leiða til að lækka
framleiöslukostnað. Meðal annars
hafi starfsfólki veriö fækkað veru-
lega í verksmiöjunni á undanförn-
um árum af þeim sökum eöa um
allt aö 85 manns. Vegna marg-
víslegra sparnaöaraögeröa heföi
hækkunarþörf hennar verið lægri
en verölagsbreytingar og komi nú
fram f lækkuöu veröi þegar verö-
lag standi nokkurn veginn í staö.
Hvaö framtíðina varöar sagði
Hákon Björnsson að nokkur óvissa
væri ríkjandi. Afkastageta verk-
smiðjunnar sé ekki nýtt aö fullu og
auk þess væri stærö hennar óhag-
kvæm rekstrareining boriö saman
viö stórar áburðarverksmiðjur í
Evrópu. "Viö stöndum þvf ekki
nægilega sterkt aö vígi ef til
innflutnings á áburöi kemur þegar
einkaleyfi verksmiöjunnar veröur
afnumið f ársbyrjun 1995," sagöi
Hákon Björnsson. "Verð á áburöi
er nú lágt f Evrópu en á móti
njótum viö nokkurrar fjarlægöar-
verndar þar sem dýrt er að flytja
tilbúinn áburö til landsins."
Þegar framleiösla verksmiðj-
unnar var í hámarki framleiddi hún
um 70 þúsund tonn af áburði á ári
en nú er framleiðsla hennar um 52
þúsund tonn.
LÁNVEITINGAR Á VEGUM LÍFEYRISSJÓÐS BÆNDA ÁRIÐ 1993
Á árinu 1993 verða lánveitingar
á vegum Lífeyrissjóðs bænda með svofelldum hætti:
1. Bústofnskaupalán.
1.1 Frumbýlingar, sem hófu búskap á árunum 1991,1992 og 1993,
eiga rétt á lánum til kaupa á bústofni (sauðfé, nautgripum,
svínum og kanínum).
1.2 Lánstími bústofnskaupalána er 8 ár og verðtrygging 100%.
Vextir eru 7,05% í janúar 1993 og breytast eins og meðaltalsvextir
Seðlabanka íslands á hverjum tíma.
2. Óbundin lífevrissjóðsláii.
2.1 Það er skilyrði fyrir veitingu lífeyrissjóðsláns að sjóðfélagi
skuldi eigi Stofnlánadeild landbúnaðarins vegna bústofnskaupalána
(annarra en loðdýralána vegna búháttabreytinga), íbúðabyggingar-
lána og óbundinna lána yngri en 4 ára. Eigi er heimilt að greiða upp
slík lán í því skyni að skapa nýjan lánsrétt. Þeir sem skulda lán, eldri
en 4 ára, eiga rétt á láni, sem nemur mismuninum á láni í samræmi
við áunninn lánsrétt, sbr. 2.8, og eldri verðtryggðum lánum.
Óverðtryggð lán greiðist upp að fullu.
2.2 Þeir sjóðfélagar eiga rétt á láni, sem náð hafa a.m.k. 3,0 stigum í
sjóðnum samkvæmt nýjustu iðgjaldaskrá og höfðu þá verið aðilar
að sjóðnum í tvö ár. Þegar lánsréttur er metinn samkvæmt þessari
grein er tekið tillit til allt að 70% af stigaeign í öðrum sjóðum, enda
hafi lánsréttur samkvæmt þeirri stigaeign eigi verið nýttur.
2.3 Lánsréttur fellur niður þegar sex mánuðir eru liðnir frá því að
sjóðfélagi greiddi síðast í sjóðinn. Ellilífeyrisþegar og þeir sem
hættu iðgjaldagreiðslum vegna aldurs, eiga þó rétt á láni, ef þeir
greiddu iðgjöld til sjóðsins fram að lífeyristöku eða til 70 ára aldurs.
2.4 Eftirlifandi makar látinna sjóðfélaga eiga lánsrétt í samræmi við
stigaeign hins látna sjóðfélaga.
2.5 Heimilt er að sækja um yfirfærslu óbundins láns af nafni eins
skuldara yfir á nafn annars, enda sé hinn nýi skuldari kaupandi að
eigninni sem er í veði fyrir láninu. Engu að síður telst upphaflegur
skuldari hafa með lántökunni nýtt lánsrétt sinn og yfirtaka lánsins
hefur ekki áhrif á lánsrétt þess sem lánið yfirtók. Stofnlánadeild
landbúnaðarins tilkynnir Lífeyrissjóði bænda um allar breytingar
af því tagi sem um ræðir í þessari grein.
2.6 Eingöngu er lánað gegn veði í fasteign. Stofnlánadeild
landbúnaðarins metur veðhæfi eigna, sem settar eru aö
veði fyrir láni.
2.7 Lánstími er 15 ár, verðtrygging 100% og
vextir eru 8,25 fastir ársvextir.
2.8 Lánsupphæð fer eftir stigaeign sjóðfélaga samkvæmt síðustu
iðgjaldaskrá og eftirfarandi töflu:
Stigaeign Lánsfjárhæð
3.000 - 9.999 800.000 kr.
10.000-15.999 900.000 kr.
16.000 - 20.999 1.000.000 kr.
21.000 stig eða fleiri 1.100.000 kr.
3. Gildistími
Lánareglur þessar gilda frá l.janúar 1993 til 31.desember 1993.
Sótt er um bústofnskaupalán og óbundin lán til Stofnlánadeildar
landbúnaðarins, Laugavegi 120,105 REYKJAVÍK, sími: 91-25444,
sem sér um útborgun lánanna og innheimtu og veitir jafnframt allar
nánari upplýsingar. Upplýsingar um lán eru einnig veittar á
skrifstofu Lífeyrissjóðs bænda, Bændahöllinni, Hagatorgi 1,
107 REYKJAVÍK, sími: 91- 624747, fax: 624727