Bændablaðið - 01.01.1993, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 01.01.1993, Blaðsíða 12
1.TBL. 7. ÁRG. JAN. - FEB. 1993 BÆNDABLAÐIÐ & LANDSBYGGÐIN EFTIR ÞÓRÐ INGIMARSSON AÐ BUA I SATT VIÐ NÁTTÚRUNA - megin umræðuefni á nýafstöðnum ráðunautafundi A að auka úthagabeit en draga úr notkun ræktaðs fóðurs? Á að draga úr ræktun eða hætta henni að mestu? Á að auka nýtingu bú- fjáráburðar en draga úr notkun tilbúins áburðar? Á að vista húsdýr sem mest í "náttúrulegu" umhverfi og varast innilokun þeirra? Er nauðsynlegt að bú minnki eða í öllu falli, að þau verði ekki stærri en hentar einni íjölskyldu um að annast? Er vélakostur í landbúnaði of fyrir- ferðarmikill og þungur? Er nauðsyniegt að minnka dráttar- vélar og önnur landbúnaðartæki því minni vélar valda síður skemmdum á jarðvegi? Eru þetta hugmyndir um að færa klukkuna aftur um nokkur ár eða áratugi eða er verið að horfa til þeirrar framtíðar sem bændur verða að skapa? Framtíðar í samvinnu við :mhverfi sitt og náttúruna. Umhverfisvæn viðhorf í land- búnaði voru til umfjöllunar á ráðu- nautafundi Búnaðarfélags íslands og RALA sem lauk f Reykjavík fyrir skömmu. Þetta er í fyrsta skipti sem leiðbeiningaþjónusta landbúnaðarins tekur umhverfis- áhrif sérstaklega til umfjöllunar en fagmenn í búvísindum hér á landi velta fyrir sér hvort breyttra viðhorfa og vinnuaðferða sé þörf í landbúnaði með hliðsjón af verndun umhverfis og náttúru- legra verðmæta. Ný viðhorf til gróðurverndar og ræktunarstarfa tengjast þessari umræðu á þeim grundvelli að bændur taki í aukn- um mæli í framtíðinni að sér þau viðamiklu verkefni sem framundan eru við stöðvun á eyðingu jarðvegs og gróðurs og uþpgræðslu lands. Náttúrulegt fóður í inngangserindi Ólafs Dýrmunds- sonar, landnýtingarráðunautar, á ráðunautafundinum kom meðal annars fram að um langt árabil hafi þau viðhorf verið ríkjandi á meðal umhverfisverndarsinna og' margra annarra aö fóður sem byggir hvað mest á sólarorku - það er gras og þá einkum úthagabeit - sé mun æskilegra til búfjárfram- leiðsiu en korn, auk þess sem hluta þeirrar kornframleiöslu sem nú er notuð til skepnufóðurs rnegi nýta til manneldis. Nútíma kornrækt byggist auk þess víða á orkufrekri rányrkju jarðvegs sem ekki standist kröfur um sjálfbæra búskapar- hætti. Þvf verði að draga úr ein- hæfri kraftfóðurnotkun en auka þess fstað notkun á gróffóðri. Egg úr hænu - ekki verksmiðju Ólafur Dýrmundsson benti á að lengi vel hafi umræður um gæði eggja, kjöts og mjólkur einkum snúist um hættu á neyslu mett- aðrar fitu og hækkun kólesteróls í blóði. Nú hafi athyglin hins vegar fremur beinst í vaxandi mæli að öðrum gæðaþáttum. Neytendur láti sig ekki lengur aðeins varða á hvern hátt neysluvörurnar séu samsettar heldur einnig hvernig þær séu framleiddar. Ýmis umhverfisjónarmið séu komin til sögunnar í þvf efni og megi þar meðal annars nefna um- hirðu og aðbúnað búfjár. Nú séu komnir fram á sjónarsviðið neyt- endur sem telji að tæknivæddur verksmiðjubúskapur nái ekki að skapa þær afurðir sem þeir vilja neyta og slíkar framleiösluaðferðir vekji jafnvel andúð á framleiðsl- unni. Burt úr búrunum í erindi Ólafs Dýrmundssonar kom fram að hin tæknivæddu fram- leiðslukerfi hafi kallað á aukna húsvist. Búfé sem áður hafi notið útivistar að einhverju marki, svo sem alifuglar og svín, komi nú tæpast undir bert loft og njóti ef til vill aðeins birtu frá rafljósum að því marki sem bjart sé haft hjá dýrunum. Dæmi séu um að svín séu höfð í myrkri til að hreyfing þeirra veröí sem minnst og þau nýti fóðrið bet- ur til vaxtar. Dæmi séu einnig um að kýr standi inni allt árið og slegið sé f þær á sumrin. Þá veröi í flest- um tilvikum að leggja verulegar hömlur á náttúrulegt atferli dýr- anna til að nýta sem best hvern fermetra í dýrum byggingum stór- búanna. Hafi þetta af sumum ver- ið kallað þröngeldi og eigi meira skylt við iönaðarframleiðslu en landbúnað. Ólafur sagði að nú gætti end- urskoðunar og nokkurs fráhvarfs frá þeirri stefnu, sem víða hafi rfkt að undanförnu og stundum verið kennd við "skynvæðingu" hér á landi. Siðferðileg sjónarmið hafi rutt sér til rúms og meira sé farið að huga að velferð og eðlilegu at- ferli búfjárins. Vankantar í verksmiðjuframleiðslu Ólafur Dýrmundsson sagði að þar sem geröar væru kröfur um há- marksafurðir væri mun meiri hætta á sjúkdómum í búfé og þar af leiðandi aukinni notkun lyfja. í lífrænni eða umhverfisvænni bú- fjárrækt sé hins vegar leitast við að halda lyfjanotkun f lágmarki með góðri umhirðu, hreinlæti og skyn- samlegum búskaparháttum. Hann sagði nauðsynlegt að ungviði fari ekki á mis við þau mótefni er það fái úr broddmjólk móður og hann benti á að skiptibeit dragi úr ormasýkingu í búfénaði. Þá nefndi Ólafur einnig þá notkun lyfja, sem beitt er til að örva vöxt, breyta vefjahlutföllum og auka mjólkurnyt. Notkun slíkra lyfja hefði færst í vöxt víða erlendis á undanförnum árum. Hann sagði aö flestir vankantar nútfmabúfjár- framleiðslu endurspeglist í verk- smiðjubúskap þar sem lifnaðar- hættir búfjár séu komnir langt frá hinu náttúrulega umhverfi. Græn efling atvinnu og byggöar í sveitum Varðandi hinn fslenska landbúnað sagði Ólafur Dýrmundsson að gera þyrfti alhliða úttekt á hverri búgrein fyrir sig. Skrásetja þyrfti lffræna staðla og afla opinberrar viðurkenningar á "grænum" vöru- merkjum fyrir allar umhverfis- vænar afurðir. Vegna fjölskyldu- búskapar á jöröum og einnig vegna strjálbýlis og þar af leiðandi minni mengunar og lyfjanotkunar en í nágrannalöndum okkar, séu meiri möguleikar á eflingu um- hverfisvænna búskaparhátta hér á landi. Þá verði að kanna hinar grænu leiðir í landbúnaði meöal annars til að auka atvinnu og efla byggð f sveitum landsins. Frá ráöunautafundinum. Eins og myndirnar bera meö sér hefur ungt fólk og þá ekki síst ungar konur, verið duglegt viö aö sækja þessa fundi. Má vera að ráðunautastarfið veröi smám saman að kvennastarfi? Koma hlandgryfjurnar aftur? Magnús Óskarsson, kennari á Hvanneyri, ræddi um umhverfis- væna ræktun á ráðunauta- fundinum. Hann benti meðal ann- ars á aö talið sé aö fosfórgrýti í heiminum muni aðeins endast f 300 til 400 ár. Framsýnir menn hafi bent á að spara megi þessa auðlind með þvf að minnka forsfórmagn f áburði og bera ekki meira á en það magn sem plöntur taka upp. Hann sagði að þar sem jarövegur bindi mikið af fosfór hafi verið reynt að sá honum f rastir til að minnka snertiflöt jarðvegs og áburðar. Þetta hafi meðal annars verið reynt í kartöflugörðum. Magnús benti einnig á að áður fyrr - á meðan notkun tilbúins áburðar hafi veriö minni - hafi bændur lagt áherslu á að varðveita næringarefnin f búfjáráburði, meðal annars með því að aðskilja saur og þvag. Þá hefði einnig verið reynt að forðast að áburðarefnin töpuðust við dreifingu. Búfjár- áburðinum hafi veriö ekið á tún á réttum tíma og við góðar veður- farsaðstæður. Að bera á við hagstæð skilyrði Magnús sagöi aö þróunin hafi orð- ið sú að verð á tilbúnum áburði hafi lækkað en fólki f sveitum fækkað. Minni áhersla hafi því verið lögð á notkun búfjáráburðar- ins og farið að dreifa honum á tún þegar tími hafi gefist til þess frá öðrum störfum. Meðferð á búfjár- áburðinum hafi einnig breyst mikið á undanförnum árum og af- drifaríkustu breytinguna megi án efa telja þegar fariö var að blanda vatni f hann - einkum í kúamykju. Við það hafi oft orðið svonefnd loftfyrrð gerjun f áburðinum og hættulegar lofttegundir myndast. Magnús sagði að af þessum sökum verði eflaust í framtíðinni hugað að því að byggja áburðar- geyma til hliðar við gripahús en ekki undir þeim. Orkugjafar sóttir í tæmanlegar auðlindir Magnús Óskarsson sagði að líklega teldu flestir að íslensk jarðrækt væri fremur umhverfisvæn. Land- ið sé kalt, strjálbýlt og einangrað og því lítið um meinvalda er krefj- ist notkunar á eiturefnum. Einnig sé útskolun áburðarefna lítil miðaö við flatareiningar. Þá sé mest rækt- að af túnum og því minni hætta á foki úr fiögum og göröum. Ekki megi þó gleyma því að við fóðuröflun og önnur bústörf sé mikið af orkugjöfum sótt í tæman- legar auðlindir og muni það enn aukast fari svo að íslendingar kaupi köfnunarefnisáburð frá öðr- um löndum. Sé um of mikla köfn- unarefnisáburðarnotkun að ræöa geti nítratmagn í fóðurjurtum orðið af mikið. Magnús Óskarsson lauk máli sfnu með þvf aö minna á hvernig breyta þurfi jarðrækt f heiminum: í fyrsta lagi megi hún ekki verða eins orkukræf og nú er, í öðru lagi verði að bæta meðferð á jarðvegi og í þriðja lagi veröi að bæta meðferð á beitilöndum og skógi meðal annars með minnk- andi notkun eiturefna. Hugmyndir búvísindamanna um umhverfisvæna búskaparhætti eru ekki afturhvarf til fyrri tfma. Hér eru frekar á ferðinni hug- myndir um aö styrkja náttúruna - draga úr ágengni gagnvart hinum náttúrulegu auðæfi og aðlaga fæðuframleiðsluna þeim mögu- leikum sem gæöi jaröar hafa til að bera f framtíðinni. ÞI GRÆN SÍÐA FRÁ RÁDUNAUTAFUNDI ■ GRÆN SÍÐA FRÁ RÁÐUNAUTAFUNDI ■ GRÆN SÍÐA FRÁRÁDUNAUTAFUNDI ■ GRÆN SÍÐA FR

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/910

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.