Dagsbrún - 25.01.1951, Qupperneq 1
DAGSBRÚN
070
0
9. árg. — 1. tbl.
jLAl-lD^BÓKASArN
UAl ; 8 o S 9 8
3 S LAi'J.DS
25. janúar 1951
Stöndum vörð
í tíunda sinn eiga nú Dagsbrúnar-
menn kost á að fela Sigurði Guðna-
syni og samstarfsmönnum hans forustu
í félagsmálum sínum og hagsmunabar-
áttu.
Þegar einingarstjórn Sigurðar Guðna-
sonar tók við forystu félagsins fyrir níu
árum var Dagsbrún í mikilli niðurlæg-
ingu og óreiðu. Sú varð reynslan þá af
flokkspólitískri samsteypustjórn manna,
sem enga þekkingu og litla getu höfðu
í félagsmálum og létu stjórnast af áhrif-
um og fortölum einstaklinga og félags-
afla, sem framandi eru verkalýðsstétt-
irini.
Engum stéttarþroskuðum verkamanni
var þá niðurlæging félagsins sársauka-
laus enda bundust þeir samtökum um
endurreisn félagsins og hófu það aftur
til vegs og virðingar, undir öryggri
stjórn Sigurðar Guðnasonar og samherja
hans. Alla tíð síðan hefur Dagsbrún o-
umdeilanlega haft forustu í hagsmuna-
baráttu verkalýðss'téttarinnar í landinu,
reynzt meðlimum sínum skjól og skjöld-
ur og veilt veikari stéttarfélögum marg-
háttaðan stuðning, sem oft hefur ráðið
úrslitum.
Hinn mikli styrkur Dagsbrúnar á
þessu tímabili og sá glæsilegi árangur
sem félagið hefur náð liggur í því, að
forustan heíur lagt megináherzlu á að
sameina alla verkamannastéttina, án til-
lits til flokksafstöðu og ólíkra lífsskoð-
ana, um hagsmunabaráttuna sjálfa.
Nú eru framundan kosningar í Dags-
brún og félagsmenn eiga, eins og oftast
áður, að velja milli tveggja lista.
Annar er A-listinn, borinn fram af
uppstillingarnefnd félagsins, samkvaémt
lögum þess, og samþykktur af trúnaðar-
ráði félagsins í einu hljóði. í formanns-
sæti listans er Sigurður Guðnason og
aðrir í stjórn þeir sömu og verið hafa
s.l. ár. Önnur trúnaðarsæti A-listans eru
að langmestu leyti skipuð kjörnum trún-
aðarmönnum félagsins á vinnustöðum,
einmitt þeim mönnum, sem verkamenn
sjálfir treysta bezt og hafa valið til að
gæta réttar síns og hagsmuna. Enda eru
allir frambjóðendur A-listans úr hópi
þeirra stéttarþroskuðu meðlima félags-
ins, sem hafa borið hita og þunga bar-
áttunnar og starfsins á liðnum árum og
um Dagsbrún
njóta því óskipts trausts allra góðra
Dagsbrúnarmanna.
Hinn listinn sem í kjöri er, B-listinn,
er annarrar ættar. Hann er ekki fram
kominn vegna áhuga Dagsbrúnarmanna
sjálfra, heldur að fyrirskipan og fyrir
frumkvæði utanstéttarafla, sem eru and-
víg verkalýðssamtökunum og láta engin
tækifæri ónotuð til þess að reyna að
stofna til pólitískrar sundrungar innan
þeirra.
Engan þeirra manna, sem skipa B-
listann, að einum undanskildum, þekkja
Dagsbrúnarmenn almennt. Formanns-
efnið er t. d. nýflutt í bæinn vestan af
landi og hefur aðeins komið á einn fund
í félaginu, enda ekki verið félagsmaður
nema rúmlega hálft ár. Önnur sæti list-
ans eru einnig að mestu skipuð gjörsam-
lega óvönum mönnum í félagsmálum,
áhugalausum um stéttarmálefni og ó-
þekktum innan félagsins.
Þessi listi er barinn saman af flokks-
stjórnum gengislækkunarflokkanna,
með fullu samkomulagi við margselda
foringja Alþýðuflokksins, sem líklega
hyggjast á þennan hátt að standa við
stóru orðin um vægðarlausa baráttu
gegn afleiðingum gengislækkunarinnar,
sívaxandi dýrtíð og atvinnuleysi.
Niður í Holstein, höfuðstöðvum at-
vinnurekendastéttarinnar, var lista þess-
um komið saman. Formannsefnið hefur
kjörið Morgunblaðið málgagn hans,
blaðið sem frá fyrstu tið hefur svívirt
verkamenn og samtök þeirra í hverri
einustu vinnudeilu og reynt að vinna
þeim allt það ógagn, er það hefur mátt.
Þessi staðreynd mun reynast öllum
heilskyggnum og þroskuðum 'verka-
mönnum örugg vísbending um eðli B-
listans og tilganginn með framboði hans.
Þegar Dagsbrúnarmenn ganga nú til
kosninga í félagi sínu er nauðsynlegt að
íhuga hver verkefnin eru sem framund-
an bíða.
Atvinnuleysið er komið aftur. Hundr-
uð verkamanna búa við stopula eða alls
enga vinnu. Að svo er komið er bein af-
leiðing af stjómarstefnu afturhaldsins
og þeirri skoðun leiðtoga þess, að undir-
rót efnahagsöngþveitisins liggi í of háu
kaupi og of mikilli kaupgetu verka-
manna og launþega almennt.
Tilkynning
Kosning' stjómar, varastjórnar,
stjómar vinnudeilusjóðs, trúnað-
arráðs og endurskoðenda fyrir ár-
ið 1951 fer fram 1 skrifstofu félags-
ins dagana 27. og 28. þ. m.
LAUGARDAGINN 27. JANÚAR
hefst kjörfundur kl. 2. e. h. og
stendur til kl. 10 e. li.
SUNNUDAGINN 28. JANÚAR
liefst kjörfundur kl. 10 f. h., stend-
ur til kl. 11 e. h. og er þá kosningu
lokið.
Kjörstjórn Dagsbrúnar.
v__________________________________J
Þetta „mein“ ætla stjórnspekingar aft-
urhaldsins, sem ráða ríki og bæ, að
lækna með því að draga stórlega úr
framkvæmdum og atvinnurekstri, m. ö.
o. það er verið að skipuleggja atvinnu-
leysi, til þess að minnka kaupg»tu
verkalýðsins og launastéttanna.
Jafnframt þessu er dýrtíðin aukin svo
óðfluga, að fullvinnandi verkamenn
eiga í miklum erfiðleikum með að láta
laun sín hrökkva fyrir allra brýnustu
lífsnauðsynjum. Hjá þeim sem atvinnu-
lausir eru stefnir að algjörri neyð.
Þá hefur ríkisstjórnin sýnt verkalýðn-
um þá ósvííni, ofan á allt annað, að lög-
festa desembervísitölu 1950 sem kaup-
gjaldsvísitölu allt árið 1951, þvert ofan
í fyrirmæli gengislækkunarlaganna, svo
féleg sem þau þó voru.
Með þessum samræmdu ráðstöfunum
ætla valdhafarnir og atvinnurekenda-
stéttin að þröngva verkamönnum til að
búa möglunarlaust við síversnandi lífs-
kjör. Og til þess að tryggja framkvæmd
þessara ráðstafana og koma í veg fyrir
viðnám og gagnráðstafanir verkamanna
eru lítilsigldustu þjónar aftui'haldsins,
eins og B-listamennirnir í Dagsbrún,
sendir út af örkinni, og reynt að efla þá
til áhrifa í samtökum verkamanna.
Á því er enginn vafi, að höfuðverkefni
Dagsbrúnar á næsta starfsári verður að
berjast með öllum ráðum og fyllsta
þunga fyrir fullri atvinnu handa öllum
vinnufærum verkamönnum, að standa
öruggan vörð um unna sigra og réttindi
félagsmanna, og að hafa forgöngu um