blaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 26

blaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 26
þriðjudagur, 7. júní 2005 I blaðið 26 kvikmynd CRAIG MEÁfiEY MILLER GAMBOH Breskur glæpatryllir eins og þeir gerast bestir. Svartur húmor, ofbeldi og cool tónlist með Cult, Starsailor, FC Kahuna og Duran Duran. Frá framleiðendum Lock Stock & Snatch LAYERCAKE Mr& irMrs [bmitn smnRnVBio SÍMI564 0000 HUGSAOU STÓRT uHa im ni lanáu ibut rm FÓNDA LÖPÉZ LAUaAHAS. , FÓR BEINT Á TOPPINN f USA ;ONDA LÖPEZ FRÁ8ÆR ORÍNPflYND FRÁ ILSXSTJQRA1E6ALLY 6L0NDE iI ðooins 17 dögum! ***** Frettablaðið ★ * * * 112 kvikmyndir.is Syndkl. 4,5,7,8 og 10 Sýnd í Luxus kl. 4,7 og 10 B.i. 10 ára Geo'o Sýnd kl. 5.45,8 og 10.15 CO KAl Sýnd kL 8 09 10 Syndkl. 4 m/ísl.tali Synd kl. 5 og 8 B.i. 16 ára. BÍÓ.IS - allt á einum stað Slmi 553 2075 - bara lúxus I Ul I I AItl AI>lf) ★ ★ ★ ★ ★ MORCil.NBLADII) ★★★★ % i JTAk. WAUi E P! SODE m ,r- ■;///•(«/ Simimi ’ ® Sýnd kl. 6,9 og 10:30 DIARY OFAMAD BLACK WOMAN Sýnd kl. 5:45 og 8 www.laugarasbio.is REEnBaomn * síL' SlMI 551 9000 Sýnd kl. 6 og 9 B.i. 10 ára Sýnd kl. 6 Sýnd kl. 5.40,8 og 10.30 B.i. 16 ára Sýnd kl. 10.20 Bi. 16 ára Downfall *H**áS 2 Sýnd kl. 6 og 9 1 400 kr. í bíó! Clldlr á allar sýnlngar merktar með rauðu ( Gagnrýnendur lofa Anthony Ný plata söngvarans Anthony, I’m a bird now, hefur fallið vel í kramið hjá gagnrýnendum sem keppast við að hlaða söngvarann miklu lofi. Á vefiniðlinum Metacritic, sem tekur saman gagnrýni og reiknar meðal- tal, trónir platan I’m a bird now með Anthony and The Johnsons á toppnum. Það er því ljóst að ekki aö- eins íslenskir gagnrýnendur eru yfir sig hrifnir af Anthony heldur flestir helstu tónlistargagnrýnendur heims. Eins og kunnugt er mun Anthony halda tónleika á Nasa 11. júlí en hann hefur verið á tónleikaferðalagi undanfarið. Tónleikamir hafa einnig fengið lofsamlega dóma í fjölmiðlum og má því búast við að íslendingar verði ekki sviknir þegar hann kemur hingað til lands. Miðasala á tónleik- ana er í fullum gangi en miðar eru til sölu í 12 Tónum við Skólavörðustíg og á midi.is. Sandler nær sér í fegurðardís Samkvæmt heimildum The Sunday Telegraph hefur leikarinn Adam Sandler beðið hina 21 árs Jennifer Hawkins um að taka að sér hlutverk í væntanlegri mynd hans, Click. Hawk- ins, sem er frá Ástralíu, var kjörin Ungfrú alheimur árið 2004 og eftir að Sandler fylgdist með fegurðardísinni krýna arftaka sinn á þriðjudaginn í síðustu viku hringdi hann beint í um- boðsmann stúlkunnar til að fá hana til að leika í myndinni. Unga fegurð- ardísin sagði í viðtali að hún hrein- lega elskaði leikarann og hafi varla trúað því að hann vildi fá sig í leik- arahópinn og ef hún fái frí frá vinnu sinni vilji hún gjaman taka verkefnið að sér. Það er Columbia Pictures sem sér um framleiðslu Click, sem á að fara í sýningu í júní á næsta ári. Myndin er gamanmynd sem fjallar um ark- ítekt sem er algjör vinnualki. Þegar hann finnur furðulega fjarstýringu, sem gerir honum kleift að spóla fram og til baka á mismunandi tímabil í lífi sínu, fer líf hans að gjörbreytast. Fjarstýringin fer að taka af honum völdin og stjóma ákvörðunum hans og vandamálin láta ekki á sér standa eftir það. Leikstjóri myndarinnar er Frank Coraci en hann hefur unnið með Ad- am Sandler áður í myndunum The Waterboy og The Wedding Singer. Auk þeirra leikstýrði hann myndun- um Around the World in 80 Days og Murdered Innocence. Aðrir leikarar í myndinni Click eru Christopher Walken, Kate Beckinsale, Blake Her- on, Allen Covert, Peter Dante og Dav- id Hasselhoff. Madagascar í efsta sæti Teiknimyndin Madagascar skaust í efsta sæti topplistans í Bandaríkj- unum í gær en myndin náði að hala inn 101 milljón dala á fyrstu 10 sýn- ingardögunum. Myndin náði þar með nýjustu Star Wars myndinni, The Revenge of Sith, og gerði enn betur, en Star Wars situr í þriðja sæti á list- anum. Það er DreamWorks Animation sem framleiðir myndina en fyrirtæk- ið gerði einnig Shrek-myndimar og Sharktale. Madagascar var einum degi fljótarí en Shrek 1 til að ná 100 milljón dollara takmarkinu en Shrek náði þessari upphæð á 11 dögum. Ma- dagascar féll aðeins um 39% á ann- arri helgi, sem styður gott umtal sem af myndinni fer. Myndin fjallar um hóp dýra sem flýr dýragarðinn í New York sem þau hafa búið í, og kynnast lífinu úti í náttúmnni í fyrsta sinn. Það er Ben Stiller sem talar fyrir ljónið Alex, Chris Rock ljær sebra- hestinum Marty rödd sína og David Shcwimmer breytist í gíraffann Mel- man. Handritshöfundar em þeir Billý Frolick og Mark Burton. Madagascar verður frumsýnd á íslandi 13. júlí. ■ Crowe handtekinn fyrir líkamsárás Leikarinn Russel Crowe var hand- tekinn í gær og ákærður fyrir líkams- árás eftir að hann henti síma í and- lit hótelstarfsmanns. Crowe lenti í riffildi við starfmann Mercer Street hótelsins í New York en starfsmaður- inn hlaut minni háttar áverka og var fluttur á sjúkrahús. Hann gæti þó átt árs fangelsisvist yfir höfði sér ef hann verður dæmdur sekur. Leikarinn var staddur í New York til að kynna nýj- ustu mynd sína, Cindarella Man, þar sem hann leikur hnefaleikamann á kreppuáranum. Renée Zellweger leik- ur eiginkonu hans í myndinni en Ron Howard leikstýrir.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.