blaðið - 09.08.2005, Page 4
4 I IWWLEWDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 blaAÍÖ
Hluta Lauga-
vegar lokaö
Laugavegi heíur verið lokað frá
Snorrabraut að Barónsstíg vegna
framkvæmda sem standa fram
til 7. nóvember næstkomandi.
Þó verður leiðin opin fyrir gang-
andi vegfarendur og samkvæmt
framkvæmdasviði Reykjavíkur
verður allt gert til þess að halda
gönguleiðum opnum, t.d. með
göngubrúm. Bflaumferð verður
þó bent á að fara hjáleiðir um
Bergþórugötu, Grettisgötu, Hverf-
isgötu og Barónsstíg. Ráðist er í
framkvæmdirnar í samráði við
hagsmunaaðila á svæðinu en
teldð verður við ábendingum
um það sem betur má fara í
síma 4118000. Um er að ræða
algera endurnýjun á lögnum
og götum á kaflanum svipað
og þegar hefúr verið gert víða
annars staðar í miðborginni. Þá
verður á sama tíma gengið frá
aðkomu að bflastæðahúsi sem
er að rísa á Stjörnubíósreitnum.
Einkavæðing Símans
gæti aukið þenslu
Líkur eru á að einkavæðing
Símans auki þenslu hér á
landi á næstu címinn
misserumað oiminíl
mati Greiningardeildar íslands-
banka. í morgunkorni bankans
segir að það hafi sýnt sig að í
kjölfar einkavæðinga hér á landi
hafi eignir haft tilhneigingu
til að verða verðmætari og er
sérstaklega bent á einkavæðingu
bankanna í þessu sambandi.
Hluti af slíkum ábata rennur í
vasa kaupenda sem aftur leitar
út í neyslu með tilheyrandi
aukningu á innlenda eftirspurn.
í greiningu fslandsbanka seg-
ir ennfremur að líkur séu á að
einkavæðingin dragi úr aðhaldi
ríkisfjármála. Merki þess verði
sýnileg m.a. í því frumvarpi til
fjárlaga sem nú er í vinnslu hjá
fjármálaráðuneytinu og lagt
verður fram á þingi í byrjun
október. Þar má búast við minni
afgangi en ella hefði verið. Með
þessum hætti er einkavæðing-
in einnig þensluhvetjandi.
Vefsíða vegna
díselhamsturs
Vegna hömstrunar í kjölfar verð-
hækkunar á díselolíu í byrjun
júlímánaðar hafa yfirvöld opnað
vefsíðuna www.diselolia.is. Þar
er tíundað að fólk geymi hamstr-
aða olíu á löglegan og öruggan
hátt og leiðbeiningar gefnar
til þess að stuðla að því. Borið
hefur á því að einstaklingar og
forstöðumenn fyrirtækja hafi
komið sér upp umtalsverðum
birgðum af olfu sem geymdar
eru á ófúllnægjandi hátt, m.a. í
bílskúrum og geymslum íbúð-
arhúsa. Ófúllnægjandi geymsla
á díselolíu skapar hættu við
eldsvoða, hefúr í för með sér
mengun berist hún í jarðveg eða
frárennsli auk óþæginda sem
hlotist geta vegna uppgufunar
á olíu og jafnvel heilsuspillandi
gufu í illa loffræstum rýmum.
Barnaníðingur við Smáralind:
Hugsanlega um gabb að ræða
Lögreglan í Kópavogi útilokar
ekki að hringingar í símasjálfsala í
Smáralind séu símaöt. „Þetta gætu
verið ungir strákar á aldrinum 10 til
12 ára að fíflast í jafnöldrum sínum“,
segir Björgvin Björgvinsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn í Kópavogi
en vill ekki fullyrða um hvort svo
sé. „Lögreglunni barst tilkynning á
föstudaginn að það væri maður að
hringja f símasjálfsala í Smáralind.
Ef ungir drengir svöruðu í símann
var reynt að lokka þá út í bíl með lof-
orði um að þar fengju þeir sælgæti."
Þegar rætt var við Björgvin var vitað
að þrír eða fjórir drengir hefðu svar-
að símanum. Lögreglan reyni nú að
hafa uppi á þeim til þess að varpa
ljósi á málið. Ekki er vitað til þess
að ungar stúlkur hafi lent í því sama.
Fcerslugjöld debetkorta
Dýrt spaug fyrir yngstu
Færslugjöld debetkorta hafa mest
áhrif á efnahag barna og ungmenna
að mati nokkurra verslana- og sölu-
turnaeigenda sem Blaðið ræddi við í
gær. Þessir aðilar benda á að börn og
ungmenni kaupi iðulega vörur fyrir
lágar upphæðir en þurfa að greiða
fast gjald fyrir hverja debetkorta-
færslu. Þannig sé ekki óalgengt að
börn komi og kaupi bland í poka fyr-
ir allt niður í 50 krónur og greiði fyr-
ir með kortinu sínu án þess að átta
sig á því að ofan á þau kaup leggist
13 til 14 króna færslugjald.
Sífellt fleiri börn með kort
Einn verslunareigandi sem Blaðið
ræddi við orðaði þetta þannig að erf-
itt væri að átta sig á því hvað börn-
in væru að gera. Þau væru alltaf að
spara peninginn og fá sem mest
fyrir hann. Þau færu jafnvel á milli
verslana til að athuga hvar til dæm-
is gosflaska væri ódýrust en virtust
ekki gera sér grein fyrir því hvað
kortafærslan kostaði þau. Sá benti
einnig á að það væri tilhneiging hjá
þessum viðskiptavinum að koma oft-
ar og kaupa lítið í hvert skipti.
Allir sem Blaðið ræddi við í gær
vegna málsins voru sammála um
að sífellt yngri sem og sífellt fleiri
krakkar væru nú með kort í stað
peninga.
Mikið hagræði af kortunum
Fjölmargir verslunareigendur hafa
sett sér reglur um lágmarksupphæð
sem kaupa þarf fyrir ef kort eru not-
uð. Þeir benda á að þeir þurfi sjálfir
að greiða fyrir hverja færslu og ef
keypt er fyrir mjög lága upphæð
í hvert skipti fari öll álagning af
vörunni beint til bankanna í formi
færslugjalda en ekki til verslunar-
innar sem selur vöruna. Allir sem
Blaðið ræddi við um málið voru sam-
mála um að mikið hagræði væri af
kortunum en að færslugjöldin væru
of há. Einn viðmælandi benti á að ef
Þetta er í fyrsta skipti sem mál sem
þetta kemur á borð lögreglunnar og
er ekki vitað til þess að slík mál hafi
áður komið upp. Þá er enginn grun-
aður enn um sinn að standa að baki
hringingunum.
Verið er að vinna að því að fá upp-
lýsingar frá símafyrirtækjum um
það hverjir hafi hringt i sjálfsalana.
„Þær upplýsingar þarf að fá með
formlegum hætti. Það eru ákveðnar
boðleiðir í því þar sem hugsanlega
þarf að fá úrskurð dómara sem get-
ur tekið sinn tíma.“
Smáralind bendir á lögreglu
Stjórnendur Smáralindar verjast
allra frétta af málinu og benda á lög-
regluna í Kópavogi. Þá var ekki hægt
að fá svör við því hvort áhyggjufull-
ir foreldrar hefðu haft samband við
Smáralind vegna málsins. Krakkar
stunda það mikið að hanga í og við
Smáralind og þá oft í sófum sem
staðsettir eru við símasjálfsalana
sem um er að ræða. Lögreglan hefur
ekki fengið frekari upplýsingar um
málið í kjölfar fréttaflutnings.
korthafana
Æ færri ungmenni greiða nú með pening-
um en velja kortin í staðinn.
ekkert gjald væri tekið af viðskipt-
um fyrir t.d. minna en 500 krónur
myndi það hafa mest áhrif á yngsta
viðskiptamannahópinn sem og að
reglur um lágmarksgjald myndi
heyra sögunni til. ■
Börnum fcekkar í Reykjavík
Barnafólk flytur í nágrannasveitarfélögin
Börnum á aldrinum 0-5 ára i Reykja-
vík hefur fækkað um 582 frá árinu
1994 til lok árs 2004 en fjölgað um
546 á sama tíma í Kópavogi. Þetta
kemur fram á vef borgarstjórnar-
flokks Sjálfstæðismanna sem og að
í lok árs 1994 hafi börn á þessum
aldri verið 10.168 í Reykjavík en
1.850 í Kópavogi. 1 lok árs 2004 voru
þau 9.586 í Reykjavík en 2.396 í Kópa-
vogi. Fjölgunin hefur verið um 30% í
Kópavogi en fækkun um 6% í Reykja-
vík.
Barnafólk vill sérbýli
Að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar
er ástæðan fyrst og fremst lóðaskort-
ur í Reykjavík.
„Við höfum margoft bent á þetta
vandamál og skýringin er að minni
hyggju að verulegum hluta sú að
barnafólk hefur sótt til þeirra sveit-
arfélaga sem hafa boðið upp á meiri
fjölbreytni í lóðum en Reykjavík.
Þessi hópur vill gjarnan búa í sér-
býli, hvort sem það er í einbýlis-, par-
eða raðhúsi. Það er meira framboð
af slíkum lóðum í nágrannasveitar-
félögunum og fólk sækir í það. Það
má því segja að margt barnafólk sjái
betri kosti hvað varðar íbúðarhús-
næði í nágrannasveitarfélögunum”
segir Vilhjálmur.
Stefna R-listans að þétta byggð
Eiríkur Hjálmarsson, aðstoðarmað-
ur borgarstjóra, segir að stefna R-
listans hafi verið að þétta byggðina
í Reykjavík og telur ekki útilokað að
fjölskyldufólk leiti frekar i gisnari
úthverfin.
„Fólk hagar búsetu eftir fjölskyldu-
háttum hverju sinni“ segir Eiríkur
en bendir ennfremur á að þróunin
í Reykjavík sé mjög sambærileg við
þróunina á Islandi. Um leið og ald-
urssamsetning íbúa breytist hafi
það meðal annars þau áhrif að færri
og færri börn eru á hverja konu.
Bæði Vilhjálmur og Eiríkur virð-
ast hinsvegar sammála um að þjón-
usta við barnafólk í Reykjavík sé
sambærileg við það sem gerist í ná-
grannasveitarfélögunum. Vilhjálm-
ur bendir hinsvegar á að þessi fækk-
un barna í Reykjavík hafi sparað
borginni byggingu fimm leikskóla.
3500 hafa sóft
um fæðingar-
orlof fyrstu 6
mánuði ársins
Alls sóttu 3543 foreldrar um fæðing-
arorlof eða fæðingarstyrk á fyrstu
sex mánuðum ársins samkvæmt
tölum frá fæðingarorlofssjóði sem
fást út frá umsóknum um fæðing-
arorlof. Af þessum foreldrum voru
50 feður og 11 mæður með 600
þúsund króna meðallaun á síðustu
tveimur árum. Mánaðarleg greiðsla
til foreldris í fullu orlofi getur
samkvæmt lögum um fæðingar- og
foreldraorlof ekki orðið hærri en
480 þúsund krónur eða 80% af 600
þúsund króna meðallaunum. Feður
sem sóttu um greiðslur úr Fæðingar-
orlofssjóði eru 1421 og því hefur 600
þúsund króna launaþakið, sem kom
til framkvæmda um síðustu áramót,
haft áhrif til lækkunar á greiðslum
hjá 3.5% feðra. Mæður sem sóttu
um fæðingarorlof á fyrri hluta
ársins eru 1549 og launaþakið hefur
haft áhrif á 0.7% þeirra. Greiðslur
til foreldra námu að meðaltali 170
þúsundum króna. Feður í fæðing-
arorlofi fá að meðaltali 229 þúsund
krónur en mæður að jafnaði 153
þúsund. Meðalaldur foreldra á
fyrstu sex mánuðum ársins var 30 ár.
Kvóti á
sjóstanga-
veiði ferða
Á vefnum skip.is er spurt hvort
stórfelld áform um sjóstangaveiðar
erlendra ferðamanna á Vestfjörðum
kalli á að fyrirtækin, sem selja veiði-
leyfin, kaupi kvóta vegna veiðanna.
1 lögum um stjórn fiskveiða er gert
ráð fyrir leyfi til frístundaveiða
en sá afli má þó ekki vera meiri
en sem svari til þess að menn
séu að veiða sér í soðið. 1 fréttum
hefur komið fram að sveitarfélög
á Vestfjörðum vinni nú að mark-
aðssetningu sjóstangaveiðiferða í
Þýskalandi og haft er eftir einum
forgöngumanni verkefnisins að
um 200 Þjóðverjar séu komnir
á biðhsta vegna veiðanna sem
áformað er að hefjist næsta sumar.
Alls muni verða gert út frá fimm til
sex byggðarlögum á Vestíjörðum.
Þjóðverjar stórtækir
Sjóstangaveiðar erlendra ferða-
manna, ekki síst Þjóðverja, hafa
verið nokkurt vandamál í Noregi
enda hafa Þjóðverjarnir verið stór-
tækir í veiðunum. Dæmi eru um að
menn komi á frysti- og kælibflum
og veiði mikið magn af þorski og
ufsa. Þórður Eyþórsson, deildar-
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu,
sagði í samtali við skip.is að ljóst sé
að ef veitt verði meira magn af fiski
en sem svarar til eigin neyslu þá
verði kvóti að koma á móti aflanum.
Hins vegar verði ekki amast við
hóflegum frístundaveiðum sem
séu í samræmi við ákvæði laga. ■
Alla virka daga
HÁDEGISVERÐARTILBOÐ 690.
Blandið saman allt að 3 réttum úr hitaborði
Frá 11.00-13.30
Tllbobin gllda ekkl með helmsendlngu Sóltún 3 S 562 9060 Bæjarllnd 14-16 S 564 6111
mEH0NC
® thailenskmotstofa