blaðið - 09.08.2005, Page 6
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 blaöiö
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
Tölvuþrjótar gœtu ráðist í bílatölvur
Öryggiskerfi bíla
enn ekki í hættu
Bílar framtíðarinnar munu hafa mun meiri tölvubúnað en bílar í dag. Slfkt gæti laðað að
þá sem búa til tölvuvírusa.
Undanfarin ár hefur tölvubúnaður
í bílum orðið sífellt flóknari og eng-
inn endir virðist vera á þeirri þróun.
Það hefur valdið ýmsum áhyggjum
að bílar geti í náinni framtíð orðið
skotmark þeirra sem búa til tölvu-
veirur. Sérstaklega er nú bent á bíla
sem eru með þráðlaust netsamband,
svokallað „Bluetooth-kerfi“, sem get-
ur hlaðið niður tónlist af netinu og
miðlað símtölum. Bent hefur verið
á að tölvuþrjótar geti séð sér leik á
borði og sent tölvuveirur og ýmis-
konar villukóða gegnum slík kerfi
og ruglað þannig tölvukerfi bílsins.
Getur orðið vandamál
í náinni framtíð
Að sögn Einars Þórs Einarssonar,
sérfræðings hjá Friðrik Skúlasyni,
er ekki sérstök ástæða til að hafa
áhyggjur af öryggi bíla af þessum or-
sökum að svo stöddu. Ef slíkar veir-
ur yrðu búnar til og sendar af stað
myndu þær einungis hafa áhrif á
hljóðkerfi og handfrjálsan símabún-
að bíla. Öryggiskerfi bílsins er hins-
vegar ekki í neinni hættu gagnvart
þessari ógn.
„Á hinn bóginn, ef litið er til fram-
tíðar og gert ráð fyrir því að ytri
tæki eins og sími og lófatölvur geti
átt bein samskipti við tölvukerfi
bílsins, þá getur þetta orðið að ör-
yggisvandamáli í umferðinni. Með
öðrum orðum þá er þetta ekki
vandamál í dag en á sennilega eftir
að verða meira vandamál í framtíð-
inni”, segir Einar.
Enginn bílaframleiðandi hefur
ennþá tilkynnt um árásir tölvu-
þrjóta á biía en talsmenn stærstu
bílafyrirtækjanna hafa greinilega
nokkrar áhyggjur af málinu og segja
að vel sé fylgst með þessum málum
afþeirrahálfu. ■
Umboðsmaður barna:
Miður að KEA sýnir
ekki skilning
„Mér þykir mjög miður að sjá að það
ríkir ekki skilningur hjá öllum um
fæðingarorlof, eins og Kaupfélagi Ak-
ureyringa í þessu tilviki“, segir Ingi-
björg Rafnar, umboðsmaður barna
um uppsögn Andra Teitssonar, fyrr-
um framkvæmdastjóra KEA, vegna
þess að hann á von á tvíburum með
konu sinni. „Það er alveg klárt að
þessi maður á rétt samkvæmt lög-
um og það er verið að brjóta á hon-
um. Hvað hann gerir af því tilefni
er auðvitað hans mál.“ Ingibjörgu
þykir mjög miður að öflugt fyrir-
tæki eins og KEA er - og sérstakíega
var - skuli ekki sýna þessum sjónar-
miðum ríkari skilning. „Menn hafa
margir hverjir leyst þetta blessunar-
lega án þess að heimurinn eða fyrir-
tækið hafi farist“, segir Ingibjörg og
nefnir sem dæmi að Tony Blair hafi
tekið sér feðraorlof þegar hann eign-
aðist sitt fjórða barn og sé hann þó
forsætisráðherra Bretlands. „Menn
hafa leyst mál sem þetta með ýms-
um hætti og er þetta eitthvað sem ég
tel mögulegt að leysa með einhverj-
um hætti í langflestum tilvikum.
Þannig að bæði fyrirtækin og ein-
staklingarnir sem í hlut eiga geti vel
við unað.“
Jafnréttismál sem kem-
uröllumtilgóða
.Umboðsmaður barna er auðvitað
mjög fylgjandi fæðingarorlofum,
ekki síður feðra en mæðra“, segir
Ingibjörg. Þá segir hún þetta vera
mjög mikið jafnréttismál fyrir kon-
ur sem karla. Konur hafi oft verið
dæmdar á vinnumarkaðinum á
þeirri forsendu að það komi sér
illa fyrir vinnuveitenda að hún fari
frá vegna barnsburðar. Það að karl-
menn fari líka í orlof jafni aðstöðu
kvenna á vinnumarkaði þar sem þá
sé ekki hægt að afgreiða þær einar
með þessum rökum.
„Ég tel einnig mjög mikilvægt fyr-
ir börnin að báðir foreldrarnir komi
að uppeldi og þeirri tengingu sem
er svo mikilvæg á fyrstu mánuðun-
um. Það er mjög mikilvægt að börn-
in tengist föður sínum með sama
hætti og móður. Mér þykir mjög
mikilvægt að fólk fái að nýta sér rétt
sinn til fæðingarorlofs og að það ríki
skilningur í öllu samfélaginu. Þetta
er eitthvað sem kemur okkur öllum
til góða þegar fram líða stundir." ■
Þrjár milljónir safnast
Kjartan Jakob Hauksson, sem er á
ferð í kringum ísland á árabát fyrst-
ur manna, áætlar að koma til Reykja-
víkur um næstu helgi og loka þar
með hringsiglingunni sem hófst síð-
asta sumar. Veðurguðirnir hafa sett
strik í reikninginn hjá Kjartani sem
er staddur rétt fyrir utan Vík í Mýr-
dal og hefur verið að athuga aðstæð-
ur. Kjartan bíður nú eftir að vindur
snúi sér til norðlægrar áttar eins og
veðurspá gerir ráð fyrir næstu daga
og mun um leið og sjór gengur niður
halda áfram frá Hjörleifshöfða enda
þýðir lítið að bjóða veðrinu birginn.
,Ég ætla samt að gera allt sem í mínu
valdi stendur til þess að það takist
að komast til Reykjavíkur um næstu
helgi“, segir Kjartan. Erfiðasti kafli
ferðarinnar er nú að baki en strax
og veður leyfir verður haldið af stað
að nýju.
Safnar fyrir fatlaða
Kjartan er með ferð sinni að safna í
sjóð fyrir fatlaða á vegum Sjálfsbjarg-
ar sem greiðir ferðakostnað fylgdar-
manna fatlaðra á ferðalögum. Þetta
er eini slíki sjóðurinn hérlendis en
ny ti hans ekki við þyrftu fatlaðir að
greiða tvöfalt fyrir ferðalög sín. Að
sögn Arndísar Guðmundsdóttur,
kynningar- og félagsmálafulltrúa
Sjálfsbjargar, hafa þegar safnast
um þrjár milljónir króna í sjóðinn
en vonast er til þess að hann nái í
tólf milljónir áður en ferðinni lýkur.
Þannig væri hægt að úthluta vöxt-
um án þess að ganga á höfuðstól-
inn. Hingað til hafi bæjarfélög og
einstaklingar gefið bróðurpartinn
af fjármagninu en vonast sé til þess
að stórfyrirtækin taki við sér á enda-
sprettinum. ■