blaðið - 09.08.2005, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 blaAÍÖ
Verkefnisstjóri innan
S.þ. þáði mútur
Fyrrum forstjóri „olía-fyrir-mat“
verkefnis Sameinuðu þjóðanna í
Irak, Benon Sevan, hefur verið ásak-
aður um að þiggja mútur. Nefnd
sem rannsakaði mál Sevans komst
að þeirri niðurstöðu að hann hefði
þegið mútugreiðslur upp á allt að
150.000 dollara. Hefur nefndin nú
lagt til að Kofi Annan, ritari S.þ.,
aflétti friðhelgi Sevans svo hægt sé
að hefja glæparannsókn á athæfi
hans. Sevan, sem er Kýpurbúi, lét af
störfum sem forstjóri verkefnisins
á sunnudag þrátt fyrir að lögfræð-
ingur hans hafi staðfastlega haldið
því fram að ásakanirnar séu ekki
sannar.
„01ía-fyrir-mat“ verkefnið var sett
af stað árið 1996 með það að mark-
miði að gera þáverandi leiðtoga Ir-
aks, Saddam Hussein, kleift að selja
takmarkað magn af olíu í skiptum
fyrir vörur i mannúðarskyni og til
að létta hungursneyð i landinu. Frá
þvi að Saddam var steypt af stóli í
apríl 2003 hafa hins vegar ásakanir
legið i lofti um að írösk stjórnvöld,
stjórnmálamenn og fulltrúar Sam-
einuðu þjóðanna hafi ólöglega hagn-
ast á verkefninu.
„Ákærurnar eru rangar og þú sem
hefur þekkt mig í öll þessi ár ættir
að vita það“, sagði Sevan í bréfi til
Kofi Annans en Sevan hefur unn-
ið hjá S.þ. i fjóra áratugi. „Ég skil
fullícomlega þá pressu sem þú ert
undir en að fórna mér af pólitískum
hentugleika mun hvorki friða gagn-
rýnendur okkar né hjálpa þér eða
Sameinuðu þjóðunum", sagði hann
ennfremur. ■
Sviptingar í japönskum
stjornmálum
Junichiro Koizumi forsœtisráðherra boðar til nýrra kosninga eftir
að þýðingarmikið frumvarp hans varfellt.
inn, með þriggja trilljón dollara
eigum sínum, hefði orðið að stærsta
banka heims.
Upplausn innan LDP-flokksins
Vinni Koizumi kosningarnar mun
hann leiða LDP-flokkinn i ár til við-.
bótar, þar sem hann hefur þegar gef-
ið út að hann muni láta af embætti í
september 2006. Flokkur hans er þó
langt frá þvi að eiga sigur í kosning-
unum vísan. LPD hefur verið stærsti
flokkur Japans undanfarin 50 ár en
vinsældir hans hafa farið stigminnk-
andi undanfarið. Þeir meðlimir
LPD-flokksins sem kusu gegn frum-
varpinu munu vera reiðir yfir því að
Koizumi boði til nýrra kosninga í
stað þess að segja sjálfur af sér. Fjöl-
miðlar hafa látið í veðri vaka að Koiz-
umi muni leysa frá störfum þá þing-
menn úr flokki hans sem kusu gegn
frumvarpinu áður en nýju kosning-
arnar fara fram.
Japanska póstþjónustan er gríðar-
stór stofnun sem hefur um 25.000
útibú hvaðanæva um landið. Til
samanburðar hafa sjö stærstu bank-
ar landsins einungist 2.600 útibú. Þá
er japanski pósturinn stærsti kaup-
andi skuldabréfa japanskra stjórn-
valda og velta póstkerfisins er næsta
stjarnfræðileg. Frumvarp Koizumis
gekk út á að japanski pósturinn yrði
einkavæddur fyrir árið 2017 og skipt
niður í einkafyrirtæki sem sæju þá
um póstútborð og banka- og trygg-
ingastarfsemi. ■
Forsætisráðherra Japans, Junichiro
Koizumi, hefur leyst upp neðri deild
japanska þingsins og boðað snemm-
búnar kosningar þann 11. september
næstkomandi. Þessi aðgerð fylgir
í kjölfar þess að efri deild þingsins
felldi frumvarp um einkavæðingu
komst til valda árið 2001.
Landbúnaðarráðherra ríkisstjórn-
arinnar, Yoshinobu Shimamuram,
hefur sagt af sér vegna ákvörðunar
Koizumi um að halda kosningar 11.
september en flokkur forsætisráð-
herrans, LPD (Frjálslyndi lýðræðis-
Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, talar á biaðamannafundi í Tókíó í gaer.
japanska póstkerfisins í gær. Kosn-
ingin um frumvarpið er mikið
áfall fyrir Koizumi sem sagður er
hafa lagt orðspor sitt að veði í mál-
inu. Einkavæðing póstkerfisins var
hornsteinninn í efnahagsumbótun-
um sem Koizumi lofaði þegar hann
flokkurinn), hefur klofnað í tvennt
vegna málsins. Frumvarpið var fellt
með 125 atkvæðum gegn 108 og þar
af voru 22 þeirra sem kusu gegn
frumvarpinu meðlimir í LDP-flokk
Koizumis. Umbæturnar á póstkerf-
inu hefðu þýtt að japanski póstur-
Sandbylur tefur
stjórnarskrár-
viðræður
Mikill sandbylur í írak hefur kom-
ið í veg fyrir að mikilvægur fundur
írakskra leiðtoga geti farið fram.
Fundinum var ætlað að brjóta upp
jað þrátefli sem ríkt hefur um að
Vopnaður maður stendur vörð fyrir utan
byggingu í Bagdad, höfuðborg Iraks, í
gær. Mikill sandbylur geysaði I landinu í
gær og hafa stjórnarskrárviðræður tafist
vegna þess.
ljúka gerð stjórnarskrárinnar en
fyrirhugað var að hún yrði tilbúin
fyrir 15. ágúst næstkomandi. Margir
hinna fjölmörgu leiðtoga sem hugð-
ust sitja fundinn gátu hvergi farið
vegna bylsins. Þeirra á meðal var
loftkœling
————.,,
Verð fra 4SL9Ö0 én vitk.
ÍS-hÚSÍÖ 566 6000
■ ■ .............
leiðtogi Kúrda, Massoud Barzani,
en þyrla hans var föst á jörðu niðri
í norðri. Það var forseti landsins,
Jalal Talabani, sem ákvað að fundin-
um skyldi frestað.
1 fréttayfirlýsingu frá Talabani
sagðist hann vonast til að fundur-
inn gæti farið fram í dag „Fundur-
inn hefst á ný 9. ágúst og mun halda
áfram næstu daga. Við vonumst
til að ná samhljóða sátt um stjórn-
arskrána áður en hún verður send
til þingsins þann 15. ágúst“, sagði í
tilkynningu Talabanis. Samkvæmt
fulltrúum stjórnarskrárnefndarinn-
ar á eftir að ná sátt um minnst átj-
án atriði. Þar á meðal eru réttindi
kvenna, opinber tungumál landsins
og framtíð hinnar olíuauðugu borg-
ar Kirkuk í norðurhluta landsins.
.Ofbeldisaldan" hjaðnar
með lýðræði
Hundruð þurftu að leita læknisað-
stoðar vegna bylsins í gær, mest-
megnis vegna öndunartruflana, og
þá er minnst einn látinn. Umferð
stöðvaðist og flugvelli höfuðborgar-
innar var lokað. Andspyrnumenn
létu óveðrið ekki stöðva aðgerðir
sínar og minnst 12 voru myrtir víðs
vegar um landið. Fjölmiðlar greindu
frá því að flestir þeirra hafi verið ör-
yggisgæsluliðar en á meðal þeirra
látnu voru einnig tveir hermenn og
lögreglumaður. Utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Condoleezza Rice,
hefur lýst því yfir að framfarir í
stjórnarskrárviðræðum dragi mátt-
inn úr uppreisnarmönnum. Vill
hún meina að sú ofbeldisalda sem
ríkt hefur í írak undanfarnar vikur
muni hjaðna verulega þegar lýðræði
komist á í landinu. ■
Dæmdur fyrir morð sem
framiö var árið 1982
Breskur lögregluþjónn, Michael
Cheong, hefur verið fundinn sekur
um manndráp á glæpamanni sem
hann skaut til bana í Suður-Amer-
íkurikinu Guyana fyrir 23 árum síð-
an. Hinn 42 ára gamli Cheong hefur
alla tíð neitað því að hafa myrt hinn
tvítuga Brian Spencer. Atvikið átti
sér stað árið 1982 þegar Cheong var
jafn gamall hinum myrta og bjó í
Guyana. Hann mun hafa elt Spencer
uppi eftir að hinn síðarnefndi réðst
á og rændi konu Cheongs og reyndi
að beita systur hennar kynferðis-
legu ofbeldi. Cheong skaut Spencer
í bakið með skammbyssu með fyrr-
greindum afleiðingum. Flúði hann
til Bretlands ásamt konu sinni tveim-
ur árum eftir morðið og gekk í her-
inn og þaðan í lögregluna.
Samkvæmt breskum lögum sem
ná aftur til ársins 1861 er heimilt
að rétta yfir breskum borgurum í
morðmálum óháð þvl í hvaða landi
glæpur þeirra er framinn. Cheong
var sýknaður af morðákæru en fund-
inn sekur um manndráp þess í stað.
Dómur yfir honum verður kveðinn
upp þann 5. september næstkom-
andi. Morðið var leyndarmál milli
Cheongs og konu hans í tvo áratugi
eða þar til þau skildu í ósætti og hún
fór til lögreglu og greindi frá því að
fyrrverandi maður sinn væri morð-
ingi Spencers. ■
Indversk kona ber líkamlega fatlaðan eiginmann sinn á baki sér í borginni Kalkútta í gær. Á hverjum degi ganga hjónin allt að 20 kfló-
metra vegalengd og betla saman til að eiga í sig og á.