blaðið - 09.08.2005, Page 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 blaðÍA
Áætlun um brottför
frá Gaza óbreytt
Ehud Olmert skipaður eftirmaður Netanyahus.
Ariel Sharon.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Israels, segist staðráðinn í að
flytja ísraelska landnema brott frá
Gaza-svæðinu og segir að afsögn
fjármálaráðherrans Benjamíns Net-
anyahu muni engin áhrif hafa á þá
ákvörðun. Netanyahu sagði af sér á
sunnudag í mótmælaskyni við fyr-
irhugaða brottför og eyðingu land-
nemabyggða á Gaza sem hefjast á í
næstu viku. Ekki er búist við þvi að
aðrir ráðherrar fylgi fordæmi Net-
anyahus og segi af sér en nokkuð
almenn samstaða ríkir um brottför-
ina frá Gaza.
Verðbréfamarkaður Israels hafði
fallið um 5% innan við klukkutíma
eftir að fjármálaráðherrann sagði af
sér en var óðum að koma sér á rétt-
an kjöl í gær. Sharon sagði að afsögn
Netanyahus myndi engin áhrif hafa
á efnahagsstefnu landsins og ekki
leið langur tími þar til hann hafði
skipað nýjan mann í starfið. Arftaki
Netanyahus er Ehud Olmert sem til
þessa hefur gegnt starfi aðstoðar-
forsætisráðherra og er mikill vinur
Sharons.
„Hnignun Likud-flokksins"
.Einhliða brottför án þess að fá nokk-
uð í staðinn er ekki rétta leiðin“,
sagði Netanyahu meðal annars í upp-
sagnarbréfi sínu. „Ég get ekki átt
hlut að þessari óábyrgu aðgerð sem
skiptir almenningi í tvær fylkingar,
skaðar öryggi landsmanna og mun í
framtíðinni skapa ógn við heild Jerú-
salems“, sagði hann ennfremur. Nú
er búist við þvi að Netanyahu muni
reyna að hrifsa forystu Likud-flokks-
ins af forsætisráðherranum Sharon
fyrir næstu kosningar. Netanyahu
gegndi sjálfur embætti forsætisráð-
herra ísraels árin 1996-1999.
Annar fyrrverandi forsætisráð-
herra, Ehud Barak, lýsti því yfir á
blaðamannafundi í gær að brott-
hvarf Netanyahus væri sögulegt
í þeim skilningi að stoðir Likud-
flokksins væru að bresta. Hvatti
hann ráðherra úr röðum Verka-
mannaflokksins, þeim flokki er Bar-
ak gegndi eitt sinn formennsku í, til
að segja sig úr stjórn Ariels Sharon
hið fyrsta. Þá hvatti hann stuðnings-
menn Likud til að sjá að sér og ganga
til liðs við Verkamannaflokkinn. ■
www.icelandair.is/newyork
Flug og gisting í þrjár nætur
Verð á mann í tvíbýlí á Cosmopolitan Hotel
15.-18. des., 20.-23. jan., 24.-27. feb., 10.-13. mars
Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskattar og þjónustugjöld
Hafið samband við söluskrifstofur lcelandair eða við Fjarsölu lcelandair
I síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17
og á sunnudögum kl. 10-16).
Nú geta handhafar Vildarkorts Visa og lcelandair
notað 10.000 Vildarpunkta sem 5.500 kr.
greiðslu upp í fargjaldið.
VR orloftávlsun
UnikUi
MasterCanl
Munið ferða-
ávlsunina
út í heim
ICELANDAIR
www.icelandair.is
Fjöldamorðingi
handtekinn í Úkraínu
Úkraínsk lögregluyfirvöld hafa
handtekið rússneskan mann sem
grunaður er um að hafa myrt allt
að 30 stúlkur sem horfið hafá und-
anfarna tvo áratugi. Samkvæmt inn-
anríkisráðherra Ukraínu, Hennady
Moskal, var maðurinn handtekinn
í Zaporizha-héraðinu í austurhluta
landsins. Hann mun hafa flutt frá
Síberíu til Úkraínu árið 1982 og sest
að í Dnipropetrovsk sem einnig er
í austurhluta landsins sem þá var
næst íjölmennasta svæði gömlu Sov-
étríkjanna.
Skýrslur lögreglunnar sýna að
fjölmargar stúlkur hurfu á svæðinu
frá árinu 1983 og töluðu fjölmiðlar
þá um hinn dularfulla „Pavlograd-
morðingja“ sem ábyrgð bæri á morð-
unum. Mikil rannsókn fór fram á
sínum tíma en enginn var handtek-
inn. Handtaka mannsins nú kemur í
kjölfar rannsóknar lögreglu á morði
á 10 ára gamalli stúlku sem myrt var
fyrir viku síðan.
Illræmdasti fjöldamorðingi Úkra-
ínu til þessa er Anatoly Onoprienko
sem árið 1999 var dæmdur fyrir að
myrða 52 manneskjur, þ.á.m. heil-
ar fjölskyldur, á ferðum sínum um
landið. Hann var dæmdur til dauða
en þeim dómi var breytt f lífstíðar-
dóm ári síðar þegar dauðarefsingar
voru aflagðar í landinu. ■
Ungir drengir létust
af banvænni veiru
Tveir drengir frá Tulsa í Bandaríkj-
unum, 7 og 9 ára gamlir, eru látnir
eftir að hafa sýkst af Naegleria-veiru
sem svonefnd slímdýr bera með sér.
Drengirnir eru sagðir hafa veikst eft-
ir að þeir syntu í skítugri tjörn og
létust þeir nokkrum dögum síðar.
Slímdýrin þrífast í gömlu, stöðnuðu
vatni og geta borist til manna í gegn-
um nef þeirra. Valda þau hitasótt, of-
skynjunum og miklum höfuðverkj-
um. Dánarorsök drengjanna mun
hafa verið heilabólga.
Veiran er nær alltaf banvæn en
heilbrigðisyfirvöld segja að 200
þekkt tilfelli af Naegleria-veiru
hafi komið upp á síðustu 40 árum
og af þeim hafi aðeins tveir lifað
af. Af öryggisástæðum var þremur
sundlaugum í Tulsa, sem vitað var
að drengirnir höfðu synt í, lokað til
að rannsaka hvort þeir hefðu borið
veiruna með sér í vatnið. Þær voru
opnaðar að nýju eftir að rannsóknir
sýndu fram á að svo var ekki. ■
Loftpróf unarbúnaður hékk úr kassa við Times-torg f New York í gær áður en vfsinda-
menn slepptu litlausu, lyktarlausu og skaðlausu„sporefnagasi" sem ætlað er að finna
möguleg eiturefni. Er þessi tilraun liður f undirbúningi Bandarfkjamanna fyrir mögulega
efnavopnaárás. Heimavarnarráðuneytið hefur eytt talsverðum fjármunum f rannsóknirn-
ar sem munu standa yfir í sex daga. Er markmiðið að vfsindamenn þrói aðferð sem gerir
þeim kleift að stjórna loftflæði ef eiturefnum yrði sleppt lausum f andrúmsloftið.