blaðið - 09.08.2005, Side 18
18 I MINNIWG
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 blaðið
Lát Peters Jennings
markar lok risanna þriggja
Einn ástsælasti fréttamaður
Bandaríkjana, Peter Jennings,
lést úr íungnakrabbameini
á sunnudag, 67 ára að aldri. Jenn-
ings stýrði fréttaþættinum World
News Tonight frá árinu 1983 en
hann hætti störfum vegna veikinda
í aprílmánuði síðastliðnum. Jenn-
ings hóf snemma feril sinn í frétta-
mennsku. Hann var í Berlín á sjötta
áratugnum þegar Berlínarmúrinn
var reistur og sagði áhorfendum sín-
um frá falli múrsins áratugum síðar
þegar hann var rifinn niður árið
1989. Með Jennings lýkur tímabili í
bandarísku sjónvarpi sem kennt er
við fréttarisana þrjá; Tom Brokaw
fréttaþuli NBC sem fór á eftirlaun
í desember í fyrra, Dan Rathers frá
CBS stöðinni sem sagði af sér í kjöl-
far fréttahneykslis í aðdraganda síð-
ustu forsetakosninga í Bandaríkjun-
um og Jennings sjálfs sem starfaði
við ABC stöðina frá árinu 1964.
einn af framkvæmdastjórum Can-
adian Broadcasting Corporation
og einn af frumkvöðlum Kanada-
manna í útvarpsfréttamennsku. Pet-
er Jennings hóf feril sinn í fjölmiðl-
um á táningsaldri og var orðin einn
af fréttaþulum CTV stöðvarinnar,
sem var aðalsamkeppnisaðili föður
hans, aðeins 24 ára gamall. Tveimur
árum síðar fluttist hann til Banda-
ríkjanna og hóf störf á ABC sjón-
varpsstöðinni sem fréttaþulur. Jenn-
ings varð fljótlega leiður á starfinu
og fékk sig fluttan í erlendu deildina
og á næstu árum flakkaði hann um
heiminn. Það sagði hann vera hið
besta starf því það byði upp á góða
viðkynningu af heiminum og væri
borgað af atvinnurekanda hans.
Af kassa á Austurvelli
Jennings flutti fréttir af öllum
helstu stríðsátakasvæðum heimsins
næstu áratugina og naut feikilegra
vinsælda fyrir vönduð störf. Peter
Jennings flutti meðal annars fréttir
af leiðtogafundi Ronalds Reagans
og Mikhaíls Gorbatsjovs sem fram
fór hér á landi árið 1986. Útsend-
ingarstöð ABC stöðvarinnar var
komið fyrir niður á Austurvelli og
þar stóð Jennings á kassa og flutti
bandarísku þjóðinni helstu tíðindi
frá Reykjavík. Fjölmargir íslenskir
blaðamenn tóku viðtal við þennan
bandaríska kollega sinn og báru hon-
um vel söguna.
Leitaði eftir áliti minnihlutahópa
Peter Jennings var þrátt fyrir vin-
sældir eða kannski vegna þeirra,
ítrekað gagnrýndur fyrir linkind í
fréttaflutningi sínum af málefnum
Palestínu-araba og mörgum þótti
sem óbeit hans á styrjaldarrekstri
Bandaríkjanna í Irak væri lítt dulin.
Hann sagði á móti að hann hefði allt
aðrar hugmyndir um fréttamanna-
hlutverkið en að hann ætti að vera
einhverskonar skoðanaleiðtogi.
„Þetta hlutverk er hannað til að velta
upp spurningum um hegðun stjórn-
valda og embættismanna, fyrir
hönd almennings." I samræmi við
þessar hugmyndir var Jennings ann-
álaður fyrir að velta upp skoðunum
ýmissa minnihlutahópa um hvers
kyns málefni. Jennings sóttist eftir
ríkisborgararétti í Bandaríkjunum
árið 2003 og voru prófniðurstöður
hans fullkomnar en hann svaraði
öllum spurningum réttilega. Hann
lofaði sína nýju ættjörð rækilega við
tilefnið.
Kvennamaður
Jennings naut ekki síður vinsælda
fyrir fágaða framkomu sína, útlit
og vandaðan fatasmekk. Honum var
reglulega líkt við James Bond sem
einnig klæddist tweed jökkum og
ljósum rykfrökkum á þessum tíma.
Hann var vinsælt viðfangsefni slúð-
urdálkaritara og naut hann mikillar
kvenhylli. Það var enda mikil hreyf-
ing á kvennamálum Jennings sem
var fjórgiftur. Eftirlifandi eiginkona
hans er Kayce Freed, fyrrverandi
sjónvarpsframleiðandi, og hann
skilur eftir sig tvö eftirlifandi börn
Heimshornaflakkari
Jennings, sem fæddist í Toronto í
Kanada, átti ekki langt að sækja
áhuga sinn á fjölmiðlum og fréttum
en faðir hans Charles Jennings var
sem hann átti með þriðju eiginkonu
sinni, rithöfundinum Kati Marton.
ernak@vbl.is
ABCNF
25-60%
AFSLÁTTUR
VERÐDÆMI: PAKISTAN JALDAR. ÁÐUR KR. 33.131
ER NÚ Á KR. 19.878.
Persía
TEPPAGALLERÍ
Bæjarlind 16, Sími: 568 6999
OPIÐ :
VIRKA DAGA 10 - 18 & LAUGARDAGA 11-16.